Frjáls verslun - 01.10.2010, Blaðsíða 37
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 37
Verkefnalistinn III
Fyrir norðan hefur Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga komist að því,
með hjálp Saga Fjárfestingarbanka, að ekki er hægt að virkja án þess
að til komi erlend fjárfesting í orkuveri. Það yrði að stofna hluta
félag í erlendri eigu að hluta eða öllu til að sjá álveri á Bakka fyrir
rafmagni.
Það minnir óhjákvæmilega á hið umdeilda Magmamál og kaup
eigenda þess á HSorku. Það eru ekki ólögleg viðskipti en brjóta samt
í bága við hugmyndir um þjóðleg yfirráð yfir orkulindum lands ins.
Hvað er rétt í þeim efnum? Það skarst í odda í sumar með Katrínu og
Svandísi vegna HSorku.
Ragnheiður Elín segir að hin pólitíska óvissa sem myndaðist í Magma
málinu og andstaðan gegn stóriðju innan ríkisstjórnar hræði erlenda
fjárfesta.
Ál eða umhverfi
Það eru mjög mikilsverð rök bæði með og á móti svokallaðri stór
iðjustefnu. Til dæmis þessi:
Atvinnuleysi virðist vera að festast við um sjö prósent. Það er
meira en við eigum að venjast og veldur áframhaldandi land flótta.
Aðrar lausnir í atvinnumálum hafa ekki skilað sér í nýjum störf um og
tekjum að því marki sem orkufrekur iðnaður gerir.
Það liggja fyrir áætlanir um bæði virkjanir og iðjuver. Fjárfestar eru
áhugasamir ef þeir fá frið.
Því er haldið fram að bara það að hefja framkvæmdir fyrir alvöru í
Helguvík kalli á tvö þúsund. ný störf.
Það skortir innlent fjármagn til að skapa ný störf. Einangrun frá
erlendri fjárfestingu leiðir til fátæktar.
En á móti koma mikilvæg rök:
Öllum lausnum í orkumálum og stóriðju fylgja erlendar fjár fest ingar
og erlend ítök í íslensku atvinnulífi.
Náttúruspjöll fylgja öllum virkjunum og háspennuvirkjum tengd
um þeim.
Uppistöðulón kaffæra verðmætt land og jarðvarmavirkjunum fylgir
mengun.
Stóriðja mengar. Það er óhjákvæmilegt þótt unnt sé að hemja
meng unina að einhverju marki.
Á að láta panik í tímabundinni efnahagskreppu reka okkur út í að
glata fjárhagslegu sjálfstæði og spilla landinu?
Ef einblínt er á álver lenda öll eggin í sömu körfunni.
Atvinnumál í gíslingu
Eftir nýafstaðinn ársfund Alþýðusambands Íslands þarf ekki að fara í
grafgötur með viðhorf launþegahreyfingarinnar. Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, talaði þar um „ótrúlegt framtaksleysi stjórnvalda í atvinnu
málum“ og nauðsynlegar atvinnu og tekjuskapandi fram kvæmdir.
Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins, SA, hafa áður sagt það sama.
Og ef spyrja á hvort ASÍ og SA hallist fremur að stefnu Katrínar
eða Svandísar liggur svarið líka fyrir:
„Það er mikið áhyggjuefni að svo virðist sem málaflokkurinn atvinnu
mál hafi verið tekinn í gíslingu fámenns hóps og ríkisstjórnin í raun
misst forræði á málinu,“ sagði Gylfi á ársfundi ASÍ.
Það hefði vissulega þótt sæta stórtíðindum ef forseti ASÍ hefði sent
Alþýðubandalaginu slík skilaboð meðan það var við lýði. Og að ASÍ
og SA töluðu einu máli.
En núna í kreppunni er þrýstingurinn mikill: Getur þjóðin beðið?
PERSÓNUR OG LEIKENDUR:
Svandís Svavarsdóttir: Fædd á Selfossi 24.8. 1964.
Foreldrar: Svavar Gestsson og Jónína Benediktsdóttir.
Gift Torfa Hjartarsyni. Fjögur börn, tvö frá fyrra hjónabandi.
Stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983.
Nám og kennsla í íslensku, málvísindum og táknmálsfræði.
Formaður VG í Reykjavík 20032005.
Borgarfulltrúi VG 20062009.
Alþingismaður VG í Reykjavík suður frá 2009.
Umhverfisráðherra frá 10. maí 2009.
„Ég treysti því að Svandís gefi ekki eftir.“
Pétur Óskarsson, Sól í Straumi.