Frjáls verslun - 01.10.2010, Side 47
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 47
Menntamannahverfi
Sigurður ólst upp við Aragötuna. Hann er
sonur Ármanns heitins Snævarr, rektors
og hæstaréttardómara, og Valborgar
Sigurðardóttur skólastjóra. Við Aragötuna
voru ráðherrar eða prófessorar í öðru hverju
húsi og stundum hvort tveggja í senn: Gylfi
Þ. Gíslason bjó þar og Ólafur Jóhannesson
í næsta húsi. Gunnar Thoroddsen skammt
undan og Vigdís forseti á númer 2 og
þannig mætti áfram telja. Þarna bjó elítan.
Sigurður samþykkir þetta tal um uppeldi í
elítuhverfi umyrðalaust. Stefán bróðir hans
bregst hins vegar reiður við.
„Við vorum engin helv … elíta! Foreldrar
okkar áttu ekki bót fyrir rassinn þegar þau
byrjuðu að búa,“ segir Stefán. „En það voru
aðrir í hverfinu sem litu á sig sem elítu.“
Hjónabönd
Sigurður var kvæntur Beru Nordal og því
tengdasonur Jóhannesar Nordal seðla
banka stjóra. Þau eiga tvö börn en skildu.
Síðar kvæntist Sigurður Eydísi Kristínu
Sveinbjarnar dóttur geðhjúkrunar fræðingi,
aðstoðarfram kvæmda stjóra hjúkrunar
á Landspítala. Þau eiga fjögur börn til
samans, hann tvö og hún tvö. Eydís er systir
Þórunnar Svein bjarnardóttur, þingmanns
og fyrrverandi ráðherra.
„Við vorum fyrst í tvö ár í fjarbúð, Eydís
fyrir vestan og ég fyrir austan læk,“ segir
Sigurður. „Það var síðan undir lok fyrri
aldar að við rugluðum saman reytunum og
fluttum með börn, hund og buru í Selja
hverfi. Svo drapst hundurinn og börnin
urðu stór. Og við Eydís tókum okkur upp
með okkar hafurtask og yngsta barnið og
fluttum í Þingholtin.“
„Hann er brjálæðislega góður kokkur,“
segir Sefán um heimilishaldið hjá bróðurn
um.
Hann segist hafa verið fimm mínútur að
ganga í vinnuna í ráðhúsinu en þótt það
of langt og sé nú þrjár mínútur að ganga í
stjórnarráðið.
Maraþonhlaupari
Þó er Sigurður ekki sporlatur, hvorki
að upplagi né erfðum. Faðir hans gekk
mikið og hafði mikla hreyfiþörf. Ef til
vill voru sömu gen sem gerðu Sigurð að
lang hlaupara. Stefán bróðir hans segir að
Sigurður hafi verið íþróttamaður og til
dæmis æft fótbolta.
„Ég man reyndar ekki eftir að hann
stundaði aðrar íþróttir í menntaskóla en
að reykja camel en hann hefur alltaf verið
mjög sprækur,“ segir Stefán. Sigurð minnir
að hann hafi alls hlaupið 15 maraþon, þar
á meðal á Kúbu og víðar utanlands, „og
einhvern slatta af hálfum hér og þar“ bætir
hann við. Hann hafi meira að segja setið
um það á fundum og ráðstefnum erlendis,
til dæmis hjá OECD í París, að komast í
hlaup. Hann viðurkennir einnig að hafa
oft sagst vera að fara á fund síðdegis þegar
hann ætlaði í raun og sann að hlaupa.
„Þetta var heilmikil vinna og hlaupa
skórnir eru sem stendur aðallega á hillunni,
hvað sem síðar veður,“ segir Sigurður. „Mitt
helsta afrek á íþróttasviðinu er að hafa
verið Gunnlaugi Júlíussyni, ofurhlaupara
og hagfræðingi Sambands sveitarfélaga,
fyrir mynd og nokkur hvatning. Þetta hef ég
fyrir satt og beint frá Gunnlaugi.“
Fyrirmynd ofurhlaupara
Gunnlaugur vill síst af öllu gera lítið úr
þessu afreki Sigurðar. „Það er rétt hjá
Sigurði. Hann var mín stóra fyrirmynd,“
segir Gunnlaugur
„Ég man vel fyrsta maraþonhlaupið sem
ég tók þátt í. Það var í Reykjavík sumarið
2000. Þar hljóp Sigurður líka og mér þótti
hann áberandi léttur á fæti. Hann var hrein
og tær fyrirmynd,“ segir Gunnlaugur, sem
ólíkt Sigurði hefur haldið áfram að hlaupa
og lengt leiðirnar með árunum.
Gunnlaugur kannast þó við að það sé
tímafrekt að stunda langhlaup eins og
Sigurður segir.
„Þetta er bara fyrirsláttur hjá Sigurði,“
segir Gunnlaugur sem nú hleypur daglega
fyrir vinnu, leggur af stað klukkan sex að
morgni á virkum dögum en hálfsex um
helgar.
Djöfullegt að hann reykir
Gunnlaugur vann hjá bændasamtökunum
þegar hann kynntist Sigurði fyrst. Síðasta
áratuginn hafa þeir þó einkum átt mikil
samskipti: Gunnlaugur hjá Sam bandi
sveitarfélaga en Sigurður sem borgar hag
fræðingur.
„Hann er afskaplega traustur. Sterka hlið
hans er þjóðhagfræðin og ég er viss um að
Jóhanna verður ekki svikin af að fá hann í
vinnu,“ segir Gunnlaugur.
„Ég met hann mikils bæði sem fræðimann
og félaga en djöfullegt að hann skuli ekki
geta hætt að reykja,“ segir Gunnlaugur.
Stefán Snævarr lýsir bróður sínum svo að
hann sé húmoristi og orðheppinn en ekki
skaplaus. „Hann er langrækinn ef í það er
farið,“ segir Stefán.
N Æ R M Y N D A F S I G U R Ð I Á R M A N N I S N Æ V A R R
„Stundum þarf auðvitað efnahagsstjórn að ganga þvert á markaðinn.“