Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2010, Page 48

Frjáls verslun - 01.10.2010, Page 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 S T J Ó R N U N Friðrik Eysteinsson, aðjunkt í markaðs- fræði við viðskipta- fræðideild Háskóla Íslands. Friðrik Eysteinsson, aðjunkt í markaðsfræði við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, hélt at hyglisvert erindi í Háskóla Íslands nýlega undir yfirskriftinni: Porter er dauður! Lengi lifi Barney? Þetta var býsna ögrandi – en hvað liggur að baki hjá Friðriki? Við báðum hann að skrifa grein máli sínu til stuðnings. PORTER ER DAUÐUR! LENGI LIFI BARNEY? Hvers vegna ná sum fyrirtæki viðvarandi betri árangri en önnur? Þetta er vissulega mikilvæg spurning. Er það vegna atvinnugreinarinnar sem fyrirtæki starfa í eða þeirra auðlinda og færni sem fyrirtæki búa yfir? Eða ræðst mismunandi árangur kannski fyrst og fremst af samkeppnishæfni viðkomandi lands sem þau starfa í? Og hvor skyldi á endanum hafa réttara fyrir sér Íslandsvinurinn Micheal E. Porter eða Jay B. Barney? Ég komst að þeirri niðurstöðu í fyrirlestri mínum að það væri Jay B. Barney. Michael E. Porter Michael E. Porter er prófessor við Harvard Business School. Sérsvið hans eru stefnu­ mót un fyrirtækja og samkeppnishæfni þjóða og svæða. Meðal þekktustu verka Port ers eru bækurnar Competitive Strategy (1980), Competitive Advantage (1985) og Competitive Advantage of Nations (1990). Meðal helstu framlaga Porters eru atvinnuvegasýn hans (fimm krafta líkan ið) og demantslíkanið/klasakenningar (sam keppnis­ hæfni þjóða). Jay B. Barney Jay B. Barney er prófessor við Max M. Fisher College of Business. Sérsvið hans eru m.a. stefnumiðuð stjórnun og frumkvöðlafræði. Meðal þekktustu verka Barneys eru greinar hans „Strategic factor markets: Expectations, luck and business strategy (1986)“, sem er ein af undirstöðugreinum auðlindasýnarinnar, og „Firm resources and sustained competitive advantage (1991)“, sem einna oftast er vitnað í. Eitt helsta framlag Barneys er hið svokallaða VRIO­líkan en með því er hægt að leggja mat á það hvort auðlindir eða færni fyrirtækja séu styrkleikar, veikleikar eða hugsanlegar uppsprettur varanlegs samkeppnisforskots. Í stefnumiðaðri stjórnun hefur í megin­ atr iðum tveimur skýringum verið teflt fram á mismunandi árangri fyrirtækja; atvinnu­ vegasýn Michaels E. Porters og auðlindasýn Jays B. Barneys. Atvinnuvegasýn Michael E. Porters Atvinnuvegasýnin var sett fram af Michael E. Porter 1980 og leitar skýringanna utan fyrir tækisins, þ.e. í atvinnugreininni sjálfri og hvernig fyrirtækið getur staðfært sig í henni, nýtt styrkleika sína til að verja sig fyrir samkeppni eða hafa áhrif á hana sér til hagsbóta. Sumum fyrirtækjum tekst að aðgreina sig frá keppinautunum og ná for skoti á þá. Þau ná betri árangri en meðal­ talið í atvinnugreininni með því að vera ann að hvort leiðandi í lágum kostnaði eða að greiningu – skapa meiri ávinning fyrir kaup endur og ná fram hærra verði. Það er síðan miserfitt fyrir keppinautana að herma eftir stefnu þessara fyrirtækja og reyna að staðfæra sig betur í atvinnugreininni sem aftur skýrir hvers vegna munurinn á árangri fyrirtækja innan sömu atvinnugreinar getur verið viðvarandi. TEXTI: FRIÐRIK EYSTEINSSON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON O.FL. Auðlindir og færni innan fyrir tækja (t.d. virði vörumerkja, tengsl við viðskiptavini, fyrir tækjabragur, rútínur, þekking og færni starfsfólks) skipta meira máli en bæði atvinnugreinin sem fyrirtækin eru í og samkeppnishæfni landsins.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.