Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2010, Síða 53

Frjáls verslun - 01.10.2010, Síða 53
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 1 0 53 ALASKA RÚSSLAND KÍNA BERINGSSUND ÍSLAND NOREGUR LAPTEVHAF AUSTUR- SÍBERÍUEYJAR BOLSEVIKKAEYJA KAMTSJAKASKAGI TAIMYRSKAGI NOVA ZEMLJA KARAHAF MURMANSK KIRKINES GRÆNLAND ALASKAALASKA KANADA Mikilvægi norðurslóða og norðurheimskautsins hefur fengið nýja vikt með hlýnun jarðar og bráðnun íss á norðurslóðum. Áætlað er að um fimmtungur alls ónýtts jarðeldsneytis í heiminum sé að finna á þessum slóðum. Sem og að gríðarlegt magn af málmum sé á svæðinu. Siglingaleiðir um þetta svæði geta minnkað flutningskostnað frá Kína til Evrópu um 40 prósent – sem er mikilvægt fyrir Kína og Evrópu sambandið. Löndin sem eiga bein réttindi á þessum slóðum eru Bandaríkin, Kanada, Noregur, Grænland og Rússland. Norðausturleiðin er siglingaleiðin frá Kyrrahafi um Bergingssund og norðan við Rússland til Atlantshafs. Norðvesturleiðin liggur einn ig frá Kyrrahafi og um Beringssund en hins vegar á milli Kanada og Grænlands í gegnum norðurhluta Kanada – og tengir Kyrrahafið einnig við Atlantshaf. Eftir að Kína varð eitt stærsta hagkerfið í heiminum hefur um ræðan um að stytta siglingaleiðina frá Kína til Evrópu fengið meiri vigt. Hin hefðbundna siglingaleið frá Kína og Asíu til Evrópu er núna í gegnum Súesskurðinn. Áhugi Evrópusambandsins fyrir málefnum norðurslóða fer vaxandi í kjölfar aukins mikilvægis auðlinda svæðisins og opnun þess fyrir sigl­ ingum. ESB hefur mikla hagsmuni af opnun Norður­Íshafsins fyrir siglingum og bættum aðgangi að auðlindum þess. Ekkert aðildarríki ESB á land að Norður­Íshafi nema Danmörk í gegnum Grænland sem er ekki aðili að ESB. Pantaðu far núna Ef þig langar til að sigla Norðausturleiðina er best að leita eftir þjónustu Rosatomflot, stærstu útgerðar kjarnorkuísbrjóta í heim inum. Og það er vissara að panta strax því eftirspurn eftir þjónustu félags ins fer ört vaxandi. Vert er að leggja nafn þessa fyrirtækis á minnið. Það á örugglega eftir að koma við sögu, þegar og ef við Íslendingar verðum að einhverju leyti þátttakendur í þróun samgangna og viðskipta á norður slóðum. Greinarhöfundur við stjórnvölinn á kjarnorkuísbrjótnum Lenín. Lenín var stolt íshafsflota Sovétmanna og hélt Norðausturleiðinni opinni í fjörutíu ár. Nú á hann sér sex arftaka. „Rússar eru þeir einu sem eiga ísbrjóta sem geta þjónustað skip á þessari leið og fylgt þeim í gegnum ísinn.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.