Frjáls verslun - 01.11.2010, Side 11
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 11
ÞAU HAFA ORÐIÐ
MARKAÐURINN AÐ RÉTTA SIG VIÐ
Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala:
FASTEIGNAMARKAÐURINN03
egar Ingibjörg Þórðardóttir er
beðin að lýsa árinu 2010 hvað
varðar fasteignamarkaðinn hér á
landi segir hún að fyrri hluta ársins hafi
verið deyfð yfir markaðinum en frá miðju
ári hafi verið stígandi þrátt fyrir erfiðar
ytri aðstæður og hún er bjartsýn á að hann
komist í jafnvægi á nýju ári. „Í fyrstu viku
desember jókst velta mjög, bæði hvað
varðar fjölda kaupsamninga og fjárhæðir,
þannig að í raun og veru er það að sýna sig
að fólk hefur trú á fasteignamarkaðnum.
Fasteignir hafa í gegnum tíðina verið
öruggasta fjárfestingarformið þrátt fyrir
verðsveiflur. Almenningur og aðrir fjárfestar
þekkja hvað þeir eru með í höndunum og
vita hvernig fasteignamarkaðurinn virkar.“
Þ
„MIKKI
REFUR“
Loftur Ólafsson, sérfræðingur
hjá Íslandssjóðum:
ERLENDI FORSTJÓRINN04
ppgangur lággjaldaflugfélagins Ryanair
undir stjórn Michaels O’Learys á sér
fáar hliðstæður. Það hefur sjaldan verið
logn molla í kringum Michael, enda maðurinn
með af brigðum berorður, yfirlýsingaglaður og oft
og tíð um stuðandi í framkomu. Hann hefur beitt
ýms um ráðum til að vinna viðskiptamódeli fyrir
tæk isins sess og ekki kallað allt ömmu sína í þeim
efnum. Og hann ber lágkostnaðarhugmyndina
utan á sér í orðsins fyllstu merkingu íklæddur
bol eða skyrtu og hæfilega snjáðum buxum.
Michael gæti verið met sölubókahöfundinum og
hugsuðinum Nassim Taleb að skapi, en hann telur
að menn eigi að fara varlega í að treysta mönnum
í jakkafötum og með bindi. Stjórnunarstílinn
myndu sumir kalla „hrjúfan“ svo ekki sé fastar að
orði kveðið.
Að einhverju leyti má segja að Michael kippi sér
ekki upp við að vera þeim verstur sem hann ann
mest, það er farþegum. Og hann gefur ekki mikið
fyrir að viðskiptavinurinn hafi alltaf rétt fyrir sér.
Þó að það kunni að búa einhver refsskapur að
baki hefur Michael þvert á móti sagt að við skipta
vinurinn hafi oft rangt fyrir sér.“
U
HLUTABRÉF Í BANDA
RÍKJUNUM HAFA
FORYSTUNA
Sigurður B. Stefánsson, sjóðstjóri hjá Rose Invest:
ERLEND HLUTABRÉF05
að hefur verið svolítið
sér kennilegt mynstur í
alþjóð legum hluta bréfum í
sumar og haust,“ segir Sigurður B.
Stef ánsson. „Það var dágóð hækkun
í langflestum löndum í september
og október en í nóvember var
lækkun sem nam til dæmis 45% í
Banda ríkjunum en töluvert meira
í sumum Asíuríkjum; til dæmis
10% á Indlandi þar sem lækkun var
mest.“
Hlutabréfin fóru að sögn Sigurðar
að hækka aftur í desember og bendir
hann á að það séu í raun og veru
hlutabréf í Bandaríkjunum sem
hafa forystuna þessar vikurnar.
„Hækkunin þar er meiri að meðal
tali en víðast hvar annars staðar.
Fyrstu dagana í desember var búið
að vinna upp alla lækkun frá nóvem
ber og í raun og veru er útlitið það
sem eftir er af árinu ágætt. Í desem
ber er söguleg hefð fyrir svo
kölluðu jóla sveinaralli (e. Santa
Claus Rally) á Wall Street
og því fylgir stundum
nokkurra prósenta
hækkun.“
Þ