Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0
28. AMD PHENOM II X6 1090T
Örgjörvi (36.900 kr. hjá www.tolvutaekni.is). Þetta er kannski ekki
hraðvirkasti sex kjarna örgjörvi á markaðnum, en verðið er umtalsvert
lægra en hjá keppinautunum. Það þýðir að sex kjarna tæknin er að verða
aðgengileg almúganum.
29. LIVESCRIBE ECHO SMARTPEN
Jaðartæki (Verð frá u.þ.b. 25.000 kr., www.livescribe.com). Þetta
flotta eintak af annarri kynslóð snjallpenna samtvinnar hljóðupptökur
og handskrifaða minnispunkta þannig að notandinn getur hlustað á
upptökuna á þeim tímapunkti sem orð var skrifað með því að smella
á viðkomandi orð með pennaoddinum. Ný staðsetning á USBtenginu
gerir kleift að nota pennann sem inntakstæki fyrir tölvu þegar hann er
tengdur.
30. GOOGLE GMAIL
Vefþjónusta (ókeypis, www.gmail.com). Flottir nýir eiginleikar
á borð við forgangsinnhólf, sem flokkar tölvupóstinn í forgangsröð
með tilliti til fyrri hegðunar notanda við lestur og flokkun tölvupósts,
styrkja enn frekar þessa öflugu tölvupóstþjónustu. Þar að auki verða
spjall eiginleikarnir sífellt betri.
31. WESTERN DIGITAL MY BOOK ESSENTIAL
Harður diskur (25.990 kr. hjá www.buy.is). Þeir sem þurfa mikið
pláss á einum utanáliggjandi hörðum diski fá sínar óskir uppfylltar hér.
1,5 TB af geymsluplássi ætti að duga fyrir svo til alla en ef ekki, þá er til
3 TBútgáfa af þessum diski, sem reyndar er ekki enn farin að dúkka
upp hjá íslenskum netverslunum.
32. CLICKFREE NETWORK CN2
Afritunarstöð (ca. 30.000 kr. fyrir 500 GB, www.clickfree.com).
Þessari afritunarstöð fylgir hugbúnaður sem gerir það einstaklega
þægilegt að taka öryggisafrit af mörgum tölvum í gegnum þráðlausa
nettengingu.
33. FLIPBOARD
Forrit fyrir handtölvur (ókeypis, www.flipboard.com). Þetta
iPadforrit breytir Facebook og Twitterstraumum notandans jafn
óð um í nokkurs konar sérsniðið tímarit. Með Flipboard flettir maður
í gegnum myndir, myndbönd og gullkorn vina sinna en getur einnig
valið innbyggð söfn Flipboard af gagnastraumum frá vinsælum vef
svæðum.
34. PANASONIC HDC-SDT750
Vídeótökuvél (verð um 300.000 kr., www.panasonic.com). Vantar
þig þrívíddarmyndefni fyrir nýja þrívíddarsjónvarpið þitt? Hvers vegna
ekki að búa það til sjálfur? Með HDCSDT750 fylgir laus 3Dlinsa sem
má festa á f/1.5, 12Xopticalzoom Leicalinsu vélarinnar. Þar með er
hún fyrsta 3Dvídeóvélin á neytendamarkaði. Án 3Dlinsunnar tekur
vélin svo hefðbundnar 1080p vídeómyndir, 60 ramma á sekúndu.
35. HANDCENT SMS
Farsímaforrit (ókeypis, www.hancent.com). Næst þegar iPhone
notandi gerir grín að því hvernig Androidsíminn þinn ræður við
grunnverkefni farsíma á borð við að senda SMS og taka á móti þeim
skaltu sýna honum Handcent SMS. Það er auðstillanlegt og þægilegt
í notkun auk þess að vera framar langflestum öðrum SMSforritum
þegar kemur að nytsamlegum eiginleikum.
36. XMIND
Hugbúnaður (ókeypis, www.xmind.net). Ef þið viljið beita hug
korta gerð við verkefnastýringu og annað utanumhald ykkar frábæru
hug mynda eru tveir meginkostir í stöðunni: Að borga ríflega 40.000
krónur fyrir öflugasta tólið, Mindmanager frá Mindjet, eða borga
ekkert fyrir ókeypis útgáfuna af Xmind. Hún er með alla helstu grunn
eiginleika og virkar á Windows, Mac og Linux.
37. PC TOOLS INTERNET SECURITY 2011
Öryggishugbúnaður (u.þ.b. 5.750 kr. fyrir þriggja tölvu ársleyfi,
www.pctools.com/internetsecurity). Verðið á þessum öryggis hug
búnaðarpakka er mjög sanngjarnt miðað við hversu vel hann stóð sig
í prófunum PC World á því hvernig hann varðist allra handa tölvu
óværu.
38. SEAGATE MOMENTUS XT
Harður diskur (26.900 kr. hjá www.tolvutaekni.is). Þessi 7200 snún
inga, 2,5tommu innværi harði diskur fyrir fartölvur getur vistað 500 GB
af gögnum. Forskot hans á keppinautana felst hins vegar í innbyggðu 4GB
flashhraðminni, sem gerir hann miklu hrað virk ari en hefðbundna harða
diska.
29 Með Livescribe Echo Smartpen skrifar notandinn minnispunkta
og tekur upp hljóð í leiðinni.
34 Panasonic HDCSDT750 er fyrsta þrívíddarvídeóvélin á
neytendamarkaði.
31 Þarftu geymslupláss? Þá er Western Digital My Book Essential
svarið, með allt að 3 TB minni.
36 Með ókeypis hugbúnaðinum Xmind má búa til hugkort á einfaldan hátt.