Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 48

Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 8. INSTAPAPER Forrit fyrir síma og önnur smátæki (ókeypis, www.instapaper. com). Þetta forrit, sem fáanlegt er fyrir fjölmörg mismunandi stýri kerfi og tæki, tekur saman texta og myndir af vefsíðum og sendir í far símann eða handtölvuna, þannig að auðvelt er að lesa síðar þegar maður hefur tíma til. Þegar maður finnur athyglisverða grein á netinu og er með vafra viðbót Instapaper uppsetta smellir maður einfaldlega á „Lesa síðar“ og þá gerir vafrinn greinina aðgengilega á auðlæsilegu formi í sím anum eða handtölvunni. 9. MICROSOFT SECURITY ESSENTIALS Veiruvarnarbúnaður (ókeypis, www.microsoft.com/security_ess­ en tials). Þegar Microsoft hefur innreið á einhvern markað er eftir því tekið. Og þegar vara fyrirtækisins er jafnskotheld og þessi verður bylt­ ing á markaðnum. Þessi veiruvarnarbúnaður býður upp á allt sem hefðbundinn notandi þarfnast; öflug veirugreiningartól í einum pakka með einföld notendaskil sem auðvelt er að læra á – og hann er ekki stöðugt að trufla mann með skilaboðum. 10. APPLE IPHONE 4 Snjallsími (frá 139.990 kr. á www.epli.is). Þrátt fyrir efasemdir í upphafi hefur þessi nýjasti iPhone­sími reynst vera flottur, aðlaðandi og með fjölmörgum nýjungum sem keppinautarnir þurfa að eltast við að herma eftir. Hönnunin er fyrsta flokks, hugbúnaðurinn fjöl­ breytt ur og skjágæðin frábær – allt eins og lög gera ráð fyrir. 11. GOOGLE CHROME Netvafri (ókeypis, www.google.com/chrome). Toppurinn í vafra­ deild inni að mati PC world er Google Chrome, hraðvirkur og vel hannaður með hrein og þægileg notendaskil. Hann styður fjölmargar vafra viðbætur og öryggiseiginleikar vafrans eru sterkir. Til viðbótar er Chrome með mjög fjölbreytta eiginleika fyrir þá sem vilja sérsníða vafr ann sem mest. 12. HTC HD7 Snjallsími (129.990 kr. hjá www.buy.is). Það er enn of snemmt að dæma um velgengni Windows Phone 7­stýrikerfisins frá Microsoft, en HTC HD7, sem notar það, er mjög flottur og öflugur snjallsími. Hann er með 4,3 tommu WVGA skjá, 16 GB minni, Xbox Live­ tengingu og Zune­tónlistarspilarann, sem gera hann einstaklega öfl­ ugan í afþreyinguna. 13. CRUCIAL REALSSD C300 Gagnageymsla (verð frá 47.900 kr. hjá www.tolvutaekni.is). Þessi SSD (Solid State Drive) gagnageymsla er sú fyrsta sinnar tegundar sem PC World hefur prófað sem styður 6­gígabita­á­sekúndu SATA – sem þýðir á mannamáli að gögnin eru skrifuð hraðar en hefðbundið er. Auk hraðans stóðst gagnageymslan öll önnur próf PC World með toppeinkunn. Hægt er að fá þessa í bæði 128 GB og 256 GB útgáfu. 14. BLIZZARD ENTERTAINMENT STARCRAFT II Tölvuleikur (8.995 kr. hjá www.elko.is). Hér er komið framhald af hinum gríðarvinsæla herkænskuleik frá 1998 og tólf ára bið var vel þess virði – Starcraft veldur engum vonbrigðum. 15. PANASONIC LUMIX DMC-LX5 Stafræn myndavél (99.995 kr. hjá www.ht.is). DMC­LX5 fer fyrst að skila sínu þegar hún er tekin úr „Auto“ og sett á „Manual“, því þar býður hún ofursnöggan auto­fókus, frábær vídeógæði og macro­stillingu sem leyfir manni næstum að snerta myndefnið með linsunni. Til viðbótar má nefna bjarta f/2.0­linsu og mikil myndgæði við litla birtu. 16. MICROSOFT OFFICE 2010 Skrifstofuhugbúnaður (frá 19.900 kr., hjá www.ok.is). Eftir að hafa árum saman gefið Google Docs eftir markaðinn fyrir skrifstofuhugbúnað á netinu byggir Microsoft loksins vefútgáfur helstu forritanna inn í nýj­ asta Office­pakkann. Word, Excel og PowerPoint eru nú öll með nýj um eigin leikum til að vinna í skjölunum með öðrum á netinu. Þar að auki er PowerPoint nú með innbyggt tól til að spila og vinna með mynd bönd, flottar nýjar skiptingar milli glæra og þægilegt tól til að spila glæru­ sýningar á netinu. 17. WESTERN DIGITAL WD TV LIVE Margmiðlunarspilari (29.900 kr. www.netverslun.is). Þessi smáa en 9 Með útgáfu Security Essentials tók Microsoft veiruvarnarbransann með trompi. 13 Crucial RealSSD C300 er hraðvirkari en helstu keppinautarnir. 14 Við biðum lengi eftir Starcraft II, en hann sveik ekki þá loksins hann kom.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.