Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 96
96 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0
TEXTI: HILMAR KARLSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
Fólk
RAGNHEIÐUR DAVÍÐSDÓTTIR,
eigandi Tjónavarna
Nafn: Ragnheiður Davíðsdóttir
Fæðingarstaður: Reykjavík, 28. júlí, 1954
Foreldrar: Guðmunda Jónína Helgadóttir
og Davíð Ágúst Guðmundsson
Maki: Jóhann Sævar Óskarsson
Börn: Svavar Jóhannsson og Jökull
Jóhannsson
Menntun: Íslenska og hagnýt fjölmiðlun frá
HÍ. Próf frá Lögregluskóla ríkisinsRagnheiður Davíðsdóttir:
„Innbrot hafa færst í aukana
í kreppunni og nú eru
innbrotsþjófarnir orðnir
bíræfnari en áður og hika
ekki við að brjótast inn á
miðjum degi þegar fólk er í
vinnunni.“
agnheiður Davíðsdóttir
stofnaði fyrirtækið
Tjónavarnir í október
sl. Fyrirtækið sérhæfir sig í
fræðslu og fyrirlestrum um
alls kyns tjónavarnir sem til
heyra heimili og fjölskyldu.
Þjónustan er ætluð starfsfólki
fyrirtækja og stofnana, þ.e.
Ragnheiður kemur á staðinn
og heldur fyrirlestur um
brunavarnir, vatnstjónsvarnir,
þjófa og innbrotavarnir og
slysavarnir innanhúss sem utan.
Ragnheiður hefur mikla reynslu
af hvers konar forvörnum.
„Ég starfaði í lögreglunni til
margra ára og kynntist þar
ýmsu misjöfnu sem mótaði
mjög afstöðu mína til forvarna
og öryggismála og starfaði
einnig sem forvarnafulltrúi
VÍS þar sem ég heimsótti
framhaldsskóla, fyrirtæki og
stofnanir með fræðslu af þessu
tagi. Ég sá samt að lögreglan
var ekki framtíðarstarf og
skellti mér í nám í íslensku og
fjölmiðlafræði í HÍ á „gamals
aldri“, og myndi án efa vera
enn í námi ef ég hefði ráð á því.
Það var svo ótrúlega gaman í
háskólanum.
Ég áttaði mig fljótt á að þörf
var á þjónustu á borðvið þá sem
Tjónavarnir veita. Fólk veit af
hinum ýmsu hættum en það
þarf að minna reglulega á ýmsa
þætti er lúta að forvörnum
heimilisins, eins og t.d. að
skipta árlega um rafhlöðu í
reyk skynjurum og að þeir þurfi
að vera í hverju svefnherbergi.
Þá er eitt og annað hægt að gera
til að koma í veg fyrir innbrot
með fyrirhyggju sem kostar
enga peninga. Innbrot hafa
færst í aukana í kreppunni og
nú eru innbrotsþjófarnir orðnir
bíræfnari en áður og hika ekki
við að brjótast inn á miðjum
degi þegar fólk er í vinnunni.
Með ýmsum ráðum er hægt að
verjast þessum óboðnu gestum.
Þá er einnig hægt að forðast
bruna og vatnstjón með því
að láta þvottavélar aldrei vera
í gangi á nóttunni því það
kviknar í þvottavélum, þótt
ótrúlegt sé,“ segir Ragnheiður
og vitnar í reynslu sína af
tryggingamálum.“
Ragnheiður er mikil útivistar
kona og er í ritnefnd Útiveru:
„Ég hef mikið yndi af því
að ganga á fjöll og hef m.a.
gengið um Hornstrandir og
víðar á Vestfjörðum en ég á
ættir að rekja til Haukadals
í Dýrafirði sem mér finnst
reyndar einn fallegasti staður á
landinu. Ég ríð einnig út mér
til skemmtunar og á eina meri
austur í Flóa hjá systur minni
og fer á bak eins oft og kostur
er. Þá stunda ég líkamsrækt af
miklum móð og æfi reglulega
í Sporthúsinu. Ég á fjögur
barnabörn, 18 ára tvíbura og
stelpu og strák á 2.
og 3. ári og fæ aldrei nóg af
því að dunda mér með þeim og
dekra við þau.“
R