Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 81
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 81
HVAÐ SEGJA ÞAU UM ÁRAMÓT?
húsnæðislán. Að okkar mati munu þær
lausnir sem standa viðskiptavinum
okkar til boða, ásamt lagafrumvarpi
efnahags og viðskiptaráðherra varðandi
gjald eyrislán, fullnýta það svigrúm sem
bankinn hefur til að laga höfuðstól lána
að efnahag einstaklinga og heimila í
skuldavanda. Við höfum þegar náð ágæt
um árangri, þótt við vildum auðvitað
vera lengra komin í ferlinu, en um
14.000 viðskiptavina okkar hafa nýtt
sér þær lausnir sem eru í boði. Arion
banki kom á fót sérstöku ráðgjafateymi
fyrir einstaklinga í því markmiði að hafa
sam band við og ráðleggja þeim 1.200
við skiptavinum okkar sem við teljum að
þurfi viðbótaraðstoð.
Hvað varðar lán til fyritækja, sem eru
um 75% af lánabók Arion banka, þá
hefur okkur einnig orðið vel ágengt þar.
Við erum langt komin með að endur
skipuleggja stærri fyrirtæki og höfum
hafist handa við þau smærri. Reyndar
höfum við lokið vinnu við um 450
fyrirtæki og eigum um það bil 400 eftir,
svo við erum meira en hálfnuð. Við
gerum ráð fyrir að ljúka við fjárhagslega
endurskipulagningu fyrirtækja um mitt
næsta ár.
En ég vil ítreka að mikilvægt er að
hafa í huga þegar rætt er um varúðar
niðurfærslur og lánabók bankans að
efnahagsreikningur okkar endurspeglar
það sem við teljum vera raunvirði lána
m.t.t. niðurfærslna sem þegar hafa átt
sér stað og skuldaaðlögunar sem við
gerum ráð fyrir að þurfa að framkvæma í
framtíðinni.
Átt þú von á því að gjaldeyrishöftin
verði afnumin á næsta ári?
Gjaldeyrishöftin hafa nú verið við lýði í
yfir tvö ár og hafa markað starfsumhverfi
íslensku bankanna. Þau eru auðvitað
skemmandi að því leytinu til að þau ein
angra íslenskan fjármálamarkað frá um
heiminum. Samt sem áður er hægara
sagt en gert að aflétta þeim og það
verður ekki gert á einu ári. Ég geri ráð
fyrir að fyrstu skrefin í átt að afnámi þeirra
verði tekin á næsta ári, en að í reynd
verði höftin áfram í einhverju formi.
Óttast þú fjármagnsflæði frá landinu
með afnámi gjaldeyrishafta?
Erfitt er að segja fyrir um hvað muni
gerast fyrst eftir að höftunum verður
aflétt. Einhver þrýstingur er til staðar frá
uppsöfnuðu fjármagni innanlands sem
gæti viljað út ef höftunum væri aflétt, en
hins vegar myndi talsvert fjármagn líka
sækja inn í landið um leið og jafnvægi
kæmist á. Tíminn hefur unnið með okkur
hingað til og jákvæð þróun innanlands
hefur aukið líkur á árangri. Ég býst við að
það ferli haldi áfram.
Á hvaða leið ertu?
www.nasdaqomxnordic.com
Skráning á markað.
Fyrir fyrirtæki sem ætla sér lengra.