Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 47
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 47
1. GOOGLE ANDROID 2.2
Stýrikerfi fyrir snjallsíma (fylgir með ýmsum snjallsímum, www.
android.com). Árið 2010 hefur verið ár snjall og farsíma að mati PC
World og því er viðeigandi að stýrikerfi fyrir snjallsíma sé valið besta
tæknivaran 2010. Android 2.2 frá Google bar af, enda er það flott og
þægilegt í notkun, fyrir það hafa verið þróuð öflug og góð forrit og
það er nægilega fjölhæft til að hægt sé að nota það á tækjum af ýmsum
stærðum og gerðum. Þannig má nota það á símum og töflutölvum
frá svo til öllum framleiðendum sem áhuga hafa á að nýta stýrikerfið.
Android gefur neytendum þannig val milli framleiðenda öfugt við
iOS sem keyrir iPhonesímana frá Apple. Velgengni stýrikerfisins
hefur enda verið slík að búist er við að fleiri notendur verði komnir
með Android fyrir lok árs heldur en iOS. Við þetta bætist góður vafri
sem styður Flash 10.1, raddstýring á öllu stýrikerfinu og ört vaxandi
safn forrita. Allt þetta gerir Android 2.2 (sem einnig er þekkt sem
Froyo) að snjallsímastýrikerfinu sem aðrir framleiðendur þurfa nú að
reyna að velta úr sessi.
2. APPLE IPAD
Töflutölva (verð frá 154.900 kr. hjá www.siminn.is eða www.voda
fone.is). Við erum núna í miðri tæknibyltingu þar sem hand heldar
töflutölvur eru í fararbroddi. iPad á alla virðingu skylda sem tækið sem
hóf þessa byltingu. Í fjölmörg ár hafa hinir ýmsu fram leiðendur reynt
að setja töflutölvur á markaðinn án árangurs, en Apple gerði allt rétt
með flottri hönnun (kemur það einhverjum á óvart?), öflugum en um
leið einföldum notendaskilum og gríðarlegu magni góðra forrita.
3. AMAZON KINDLE (ÞRIÐJA KYNSLÓÐ)
Bókalesari (u.þ.b. 25.000 kr., www.amazon.com). Amazon umbylti
bókalesaratækninni með þriðju kynslóð Kindlebókalesarans. Þessi
útgáfa tengist netinu þráðlaust og gerir þannig bókakaup auðveld
gegn um netverslanir, auk þess sem EInk Pearlskjárinn er skýr og
hönn unin flott og þægileg. Frjáls verslun veit ekki til þess að hægt sé að
kaupa Kindle hér á landi, en hingað kominn með tollum, vörugjöldum
og aðflutningsgjaldi má áætla að verðið sé í kringum 25.000 krónur.
4. SAMSUNG GALAXY TAB
Töflutölva (grunnverð u.þ.b. 70.000 kr. án aðflutningsgjalda. Ath.
einnig bindigjöld farsímafyrirtækja). Þessi flotta töflutölva er sú
langbesta sem notar Androidstýrikerfið sem PC World hefur prófað.
Flottur hugbúnaður og hönnun gerir þetta að mjög nytsamlegri
græju – nokkurs konar iPad fyrir þá sem eru ekki innvígðir í Makka
heim inn. Spurningin er bara hvenær þessi græja verður í boði hér á
landi og hvað hún mun þá kosta – enn sem komið er virðist hún ein
ungis vera í boði með bindingu við farsímafyrirtæki erlendis.
5. SONY ALPHA NEX-5
Stafræn myndavél (114.995 kr. hjá www.budin.is). Þessi fyrsta
smámyndavél frá Sony með útskiptanlegri linsu er sú besta sem PC
World prófaði á árinu. Ástæðurnar eru m.a. frábær mynd og vídeó
gæði, skemmtilegir eiginleikar sem gera það einstaklega einfalt að taka
panoramamyndir eða myndir í lítilli birtu, og að með því að upp færa
innbyggðan hugbúnað myndavélarinnar er hægt að taka þrívíddar
myndir.
6. HP ENVY 14 BEATS EDITION
Fartölva (grunnverð sennilega frá um 200.000 krónum, www.hp .com).
Envy 14 er ein af flottustu fartölvum ársins. Og með Beats Edition er
allt sett í botn fyrir tónlistaráhugamennina með flottri svartri hönnun,
rauðri baklýsingu, svörtu krómi og sérstökum Beatsheyrnar tólum.
7. SAMSUNG GALAXY S
Snjallsími (109.900 hjá www.vodafone.is og www.siminn.is). Á lista
PC World var það strangt til tekið Samsung Epic 4G sem tók þetta sæti.
En þar sem það er einungis ein útgáfa Samsung Galaxy S sem einungis
fæst hjá einu fyrirtæki á Bandaríkjamarkaði setjum við Evrópubúarnir
einfaldlega Galaxy S hér, enda er hann margverðlaunaður, nú síðast
af EISA sem snjallsími ársins 20102011. Þessi hefur það allt; flottan
skjá, 1 GHz örgjörva, hraðan gagna flutning og notar að sjálfsögðu
Androidstýrikerfið.
Sony Alpha NEX5 er fyrsta
smámyndavél Sony með
útskiptanlegri linsu.
5
2
Töflutölvan iPad er sú fyrsta
sinnar tegundar sem nær
almennum vinsældum.