Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 94

Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 94
94 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 Kvik myndir BREYTING Á BÍÓFLÓRUNNI Í REYKJAVÍK Kvikmyndahúsin í Reykjavík hafa verið í föstum skorðum í mörg ár. Þar hafa ráðið lögum og lofum tveir stórir aðilar, Sena og Sambíóin, en auk þess hefur Laugarásbíó verið rekið sem sjálfstæð eining. Á árinu urðu þær breytingar að Sena hætti sýningum í Regnboganum og metnaðarfullir einstaklingar stofnuðu félag sem tók við húsinu, kallaði Bíó Paradís og þar má segja að nú sé vettvangur þeirra sem vilja njóta kvikmyndalistarinnar eins og hún gerist best. Í haust opn uðu svo Sambíóin nýtt og fullkomið kvikmyndahús í Egilshöll, sann kallað lúxusbíó, svo segja má að Sambíóin hafi tekið afgerandi forystu hvað varðar fjölda kvikmyndahúsa og sýningarsala. Bíó Paradís var kærkomin viðbót í bíóflóruna. Í kynningu á starfseminni segir: „Bíó Paradís sýnir nýjar áhugaverðar kvikmyndir frá öllum heimshornum auk hvers kyns eldri mynda, erlendra sem innlendra, hýsir kvikmyndahátíðir og stendur fyrir fjölbreyttum kvikmyndatengdum viðburðum. Þá er unnið að því að koma á reglulegum skólasýningum í húsinu þar sem markmiðið er að efla þekkingu og menntun í þessari mikilvægu listgrein. Hús af þessu tagi eru meðal lykilstofnana höfuðborga víðsvegar um heim, vinsælir áfangastaðir fyrir heimamenn jafnt sem ferðamenn. Þau má til dæmis finna á öllum Norðurlöndunum, í flestum Evrópu­ löndum og í helstu borgum Bandaríkjanna og Kanada.“ Einn stærsti atburður ársins er kvikmyndahátíðin RIFF, alþjóðleg kvik­ myndahátíð, sem olli ekki vonbrigðum frekar en áður. Á hátíðinni í ár, sem hófst 23. september, voru sýndar 140 kvikmyndir frá 29 lönd um, margar þeirra íslenskar, nýjar sem eldri myndir. Á meðal gesta á hátíðinni var Jim Jarmusch, sem m.a. spjallaði við áhorfendur um myndir sínar og tók þátt í umræðum um kvikmyndalistina í Háskóla Íslands. 2011 Ólíklegt er að jafnmargar kvikmyndir verði frumsýndar 2011 og á síðasta ári og fer niðurskurðurinn þá kannski fyrst að koma í ljós. En þegar eru fáeinar kvikmyndir nánast tilbúnar til sýningar og ber þar fyrst að telja Rokland sem gerð er eftir skáldsögu Hallgríms Helga ­ sonar. Fjallar myndin um Bödda Steingríms sem snýr aftur heim á Sauðárkrók eftir tíu ára námsdvöl í Þýskalandi og fer að kenna við Fjölbrautaskólann. En Krókurinn reynist of lítill staður fyrir svo stór­ yrtan og hagyrtan mann og Bödda er sagt upp störfum eftir að hafa gengið fram af nemendum í helgarferð þar sem ungfrú Norðurland fótbrotnar á söguslóðum Grettis Ásmundarsonar í Drangey. Leikstjóri er Marteinn St. Þórsson og með hlutverk Bödda fer Ólafur Darri Ólafsson. Rokland verður frumsýnd 28. janúar. Ólafur de Fleur Jóhannesson er nánast tilbúinn með tvær kvikmyndir sem fara í sýningar á árinu, Borgríki og Kurteist fólk. Fyrrnefnda myndin fjallar um unga lögreglukonu sem svipt er ástinni, bifvélavirkja Mennirnir þurfa að takast á við og umbera sérviskulega eiginleika hvor annars, deila litlu tjaldi og sofa í táfýlu þétt hvor upp við annan. Gísli Örn Garðarsson í hlutverki sínu sem Júníor í Kóngavegi. Með honum á myndinni er þýski leikarinn Daniel Bruhl sem leikur erlendan ferðafélaga Júníors. Órói er mynd um unglinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í heimi hinna fullorðnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.