Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 64
64 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0
FINNUR GEIRSSON,
forstjóri Nóa-Síríus:
Óhófleg völd ríkis og banka
FORRÁÐAMENN FYRIRTÆKJA
1. Hvaða árangur ert þú ánægðastur
með innan þíns fyrirtækis á árinu?
Fyrirtækið er að uppskera árangur af
viðamikilli endurskipulagningu í formi
ágætrar sölu og betri afkomu.
2. Áttu von á því að gjaldeyrishöftin
verði afnumin á næsta ári?
Það verður að teljast harla ólíklegt.
3. Óttast þú fjármagnsflæði frá landinu
með afnámi gjaldeyrishafta?
Já, sérstaklega ef kringumstæður
breytast ekki til batnaðar að öðru leyti.
4. Hvað telur þú að sé algengasta
umræðuefnið á meðal stjórnenda
núna?
Erfitt efnahagsumhverfi og óhófleg völd
ríkis og banka.
5. Finnst þér bankarnir hreyfa sig
hraðar við að afskrifa skuldir fyrirtækja
og endurskipuleggja fjármál þeirra?
Ég geri ráð fyrir að þetta sé í fullum gangi
núna.
6. Hvað var minnisstæðast hjá sjálfum
þér á árinu?
Nýr einstaklingur bættist í fjölskylduna.
HVAÐ SEGJA ÞAU UM ÁRAMÓT?
Finnur Geirsson
EYJÓLFUR Á. RAFNSSON,
framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Mannvits:
Traust á gjaldmiðlinum lítið
FORRÁÐAMENN FYRIRTÆKJA
1. Hvaða árangur ert þú ánægðastur
með innan þíns fyrirtækis á árinu?
Rekstur og afkoma á árinu verður
umfram markmið. Ennfremur fórum við
í góða stefnumótunarvinnu sem á eftir
að skila okkur árangri í framtíðinni. Hvort
tveggja byggist fyrst og fremst á öflugu
starfsfólki og góðum starfsanda.
2. Áttu von á því að gjaldeyrishöftin
verði afnumin á næsta ári?
Nei.
3. Óttast þú fjármagnsflæði frá landinu
með afnámi gjaldeyrishafta?
Þetta er ekki spurning um minn ótta.
Traust á gjaldmiðlinum er bara því miður
það lítið að svarið er já.
4. Hvað telur þú að sé algengasta
umræðuefnið á meðal stjórnenda
núna?
Ég veit ekki hvað aðrir eru að ræða innan
sinna veggja en að mínu áliti er kynt um
of undir neikvæðri umræðu í samfélaginu
og þar bera stjórnvöld og fjölmiðlar mikla
ábyrgð.
5. Finnst þér bankarnir hreyfa sig
hraðar við að afskrifa skuldir fyrirtækja
og endurskipuleggja fjármál þeirra?
Nei, en þeir hreyfa sig mishratt.
6. Hvað var minnisstæðast hjá sjálfum
þér á árinu?
Frábær ferð sl. sumar í góðum hópi, undir
góðri leiðsögn, í einstöku veðri, um Horn
vík á Ströndum og nágrenni hennar.
Eyjólfur Á. Rafnsson
„Þetta er ekki spurning um
minn ótta. Traust á gjald
miðlinum er bara því miður
það lítið að svarið er já.“