Frjáls verslun - 01.11.2010, Blaðsíða 33
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 33
liðin á markaðnum, nýjar vörur fái meðbyr sem aðrar fái ekki. „Það er
ekkert feimnismál að okkur þykir afskaplega vænt um lógóið okkar, við
erum alin upp með því, þetta er nánast nafnið okkar,“ segir Guðrún
sem hefur gegnt stöðu markaðsstjóra síðustu fjögur árin.
Fjölskyldan hafði áður þurft að gera upp við sig hvort hún vildi standa
í rekstrinum. Hafsteinn faðir þeirra rak fyrirtækið allt til dánardægurs
1993 og hafði þá byggt upp fyrirtækið með öflugar stoðir en enginn fór
dult með að ábyrgðin var öll á hans herðum. Fráfallið var skyndilegt,
Haf steinn, aðeins 59 ára gamall, fékk heilablóðfall og lést. Við það færðist
allt í einu ábyrgðin á rekstrinum yfir á eftirlifandi eiginkonu, Laufeyju, og
börn þeirra. Valdimar var þá í námi í iðnaðartæknifræði og varð það að
ráði að Guðrún tæki við rekstrinum til að byrja með eða þar til Valdimar
hefði lokið námi ári seinna. Guðrún segir að það að taka við stjórn fyrir
tækisins aðeins 23 ára hafi verið strangur skóli. Með sameiginlegu átaki
þeirra systkina, móður þeirra og fjölskylduvina hafi það tekist.
Beint liggur við að spyrja hvort ekki hafi komið til greina að selja fyrir
tækið á þessum tímamótum. „Það kom aldrei til greina hjá móður okkar,
því hún taldi að þá hefði fyrirtækið farið úr Hveragerði. Það hefur alltaf
verið hennar keppikefli að halda þessum störfum hér í bæjarfélaginu. Við
sameinuðumst strax um að halda fyrirtækinu.“
Svo vildi til að Hafsteinn faðir þeirra hafði verið byrjaður að dreifa
ábyrgð á rekstrinum á fleiri – en framan af var hann allt í öllu. Ári áður
en Hafsteinn lést hafði í fyrsta skipti verið ráðist í ítarlega stefnu mótun
Starfsmenn sýna fyrirtækinu hollustu og þetta er
gagnkvæm hollusta. Við hrunið ákvað fyrirtækið
að segja engum upp, lækka engin laun og
minnka ekki starfshlutfallið hjá neinum.
Eigendur Kjöríss eru Laufey Valdimarsdóttir og börn hennar fjögur, frá vinstri; Aldís, Valdimar, Guðrún og Sigurbjörg. Guðmundur Kristins
son, bróðir Hafsteins á fjórðungshlut. Þau sitja öll í stjórn nema Valdimar. Í stjórn Kjöríss sitja því fjórar konur og einn karlmaður.