Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2010, Síða 12

Frjáls verslun - 01.11.2010, Síða 12
12 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 ÞAU HAFA ORÐIÐ HALDA STEFNUNNI Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri sam skipta og viðskiptaþróunar hjá Auði Capital: BREYTINGASTJÓRNUN06 GRÓSKA OG ÁRÆÐI Thomas Möller, framkvæmdastjóri Rýmis: STJÓRNUN08 AUKINN ÁHUGI FJÁRFESTA Jón Snorri Snorrason, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands: FYRIRTÆKIÐ OG ÞJÓÐFÉLAGIÐ07 m þessar mundir eru miklar þjóðfélagsbreytingar og margt sem fólk vill að breytist en hlutirnir gerast hægt. Fólk van­ metur oft hvað breytingar geta tekið langan tíma. Auð vitað vill það að hlutirnir breytist hraðar en þegar það finnur að svo er ekki er hætta á að fólk gefist upp og leiti aftur í sama gamla farið, segi að þetta hafi verið ómögulegar breytingar og hlutirnir ekki gengið upp. Staðreyndin er sú að það er eðlilegt að fólk finni fyrir óvissu vegna þess að mikil óvissa fylgir miðju breytingaferli; gamli tíminn er ekki alveg farinn og sá nýi ekki kominn. Það er mikilvægt að fólk átti sig á að það er eðlilegur hluti af breytingaferlinu. Það er ástæðulaust að gefast upp og fara aftur í sama farið. Það er betra að halda áfram stefnunni.“ U axtalækkunin sem Seðlabankinn tilkynnti mun geta haft jákvæð áhrif á fjárfestingar fyrirtækja og áhuga fjárfesta á fyrirtækjum. Hún mun koma skuldugum fyrirtækjum mjög til góða og lækka vaxtabyrði þeirra. Hún mun líka hafa þau áhrif að fjár­ fest ingarkostir verða fýsilegri og hún ætti að auka áhuga fjárfesta á að fjárfesta í fyrirtækjum og hlutabréfum þannig að þetta er tækifæri fyrir einhver fyrirtæki og banka að skrá fyrirtæki á markað í Kauphöll Íslands. Ferðaþjónustan er ein sú atvinnugrein sem myndi hagnast á þessari vaxtalækkun og ætti að geta dregið að sér fjárfesta. Síðan kemur á móti að þessi möguleiki er nánast tekinn í burtu af fjármálaráðuneytinu með tillögum um gífurlega flókna og erfiða framkvæmd skattheimtu á fyrirtæki í ferðaþjónustu sem dregur auðvitað úr afkomu þeirra og áhuga fjárfesta. Að mínu mati má segja að það sé nánast verið að leggja ferða þjón­ ustuna í einelti í skattheimtu sökum góðs gengis í stað þess að verð launa hana.“ V homasi Möller finnst fimm atriði standa upp úr í rekstri fyrirtækja um þessar mundir og einkenna íslenskt atvinnulíf. „Það er í fyrsta lagi þetta lága raungengi krón ­ unnar sem þýðir bæði tækifæri og ógn anir þar sem óvissan er mikil – hvort styrkist krónan eða veikist? Ef hún styrkist minnkar sam keppn­ ishæfni íslensks iðnaðar og ferða þjónustu en ef hún veikist lenda innflutn ingsfyrirtækin í vanda. Forgangsmál lands stjórn arinnar er að halda genginu stöðugu. Traust er að myndast í viðskiptum við útlönd, stöðugt gengi tryggir traustið áfram. Í öðru lagi er erfitt aðgengi að fjármagni til að vaxa. Því skiptir máli að nýta fjármagnið vel, halda niðri birgðum, lána sem minnst og rukka hratt og örugglega.“ Thomas telur í þriðja lagi að flest fyrirtæki séu í því sem hann kallar „survival mode“; þau eru að reyna að lifa af fram að næstu upp sveiflu. „Það þýðir að það er mikil varkárni, kostn­ aðarfælni og menn sníða sér stakk eftir vexti. Það jákvæða við þetta er að starfsfólkið þjappar sér saman um velgengni fyrirtækisins. Það vill halda vinnunni, leggur sig fram, lítur á sig sem meðeiganda og vill halda fyrirtækinu sínu gangandi. Í fjórða lagi er gríðarleg gróska, hugmynda­ auðgi og áræði í gangi. Til Rýmis kemur dag­ lega fólk sem er að stofna nýjar verslanir eða fyrirtæki og kaupir hillur og alls konar búnað fyrir nýjan og vaxandi rekstur. Kreppan býr til ferskar hugmyndir. Í fimmta lagi er mjög lág arðsemiskrafa hjá eigendum; það eru allir sáttir við að eiga fyrir reikningum og launum og vonast til að upp­ sveiflan komi fljótlega.“ T
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.