Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2010, Side 28

Frjáls verslun - 01.11.2010, Side 28
FRAMKVÆMDASTJÓRI KJÖRÍSS 2010MAÐUR ÁRSINS VALDIMAR HAFSTEINSSON Valdimar Hafsteinsson, 44 ára forstjóri Kjöríss í Hveragerði, er maður ársins 2010 í íslensku atvinnulífi, að mati Frjálsrar verslunar. Hann hefur verið forstjóri Kjöríss í samfellt sextán ár. TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON aldimar Hafsteinsson, 44 ára forstjóri Kjöríss í Hvera­ gerði, er maður ársins 2010 í íslensku atvinnulífi, að mati Frjálsrar verslunar. Hann hefur verið forstjóri Kjöríss í samfellt sextán ár og byggt fyrirtækið upp ásamt systkinum sínum og móður eftir að faðir hans – og einn stofnenda Kjöríss – Hafsteinn Kristinsson féll skyndilega frá 1993, aðeins 59 ára að aldri. Systir Valdi­ mars, Guðrún, rak fyrirtækið í eitt ár en eftir það tók Valdimar við. Guðrún er markaðsstjóri Kjöríss. Kjörís er fjölskyldufyrirtæki og hefur verið frá upphafi. Það skuldar lítið og er með sterkt eiginfjárhlutfall, 59%. Vörumerkið er mjög þekkt. Þetta er vel rekið fyrirtæki í matvælaiðnaði. Veltan var yfir 902 millj ónir á síðasta ári og hagnaður fyrir skatta um 43 milljónir króna. Það er traust og vandað fólk sem að því stendur. Félagið hefur vaxið hægt og þétt frá stofnun án þess að taka neinar kollsteypur. „Við höfum engan keypt og engum selt þannig að hér er eingöngu um innri vöxt að ræða,“ segir Valdimar. Þegar hann er spurður um afkomuna brosir hann og segir að þetta hafi gengið. „Það er enginn ofurgróði í þessum iðnaði en við erum réttum meg­ in við núllið, það fer þó eftir árferði.“ Kjörís er ekki eitt af stærstu fyrirtækjum landsins en það er fjórði stærsti vinnuveitandinn í Hveragerði. Það stendur með sínu fólki og fólkið í Hveragerði stendur með Kjörís. Það ríkir gagnkvæm virðing og hollusta á milli fyrirtækisins og starfs­ manna. Við hrunið ákvað fyrirtækið að segja engum upp, lækka engin laun og minnka ekki starfshlutfallið hjá neinum. „Kostnaðurinn jókst vissulega verulega hjá okkur við hrun krón unnar, svo sem vegna hækkunar á aðföngum, en það átti líka við um starfs menn okkar, þeirra kostnaður jókst líka,“ segir Valdimar. Það hefur aldrei komið til greina að flytja fyrirtækið úr Hveragerði. Þar er það stofnað og þar eru ræturnar. Fjölskyldunni hafa borist mörg glæsileg kauptilboð í fyrirtækið en hún hefur hafnað þeim öllum; þetta er þeirra fag og við þetta vil fjölskyldan starfa. Þau eru líka sannfærð um að ef þau selja fyrirtækið þá verði það flutt úr Hveragerði; það vilja þau ekki. Kjörís er farsæll matvælaframleiðandi sem hefur byggt reksturinn á ráðdeild og sparnaði. „Það er sá arfur sem við systkinin fengum frá for­ eldrum okkar,“ segir Valdimar. Fyrirtækið fór varlega í útlánabólunni miklu á árunum 2003 til 2007 og býr að því núna. Skuldahlið efnahagsreikningsins er í góðu lagi á sama tíma og skuldir næstum sjö þúsund lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi eru í ólagi eftir hrunið og þarfnast endurfjármögnunar. Kjörís er eitt þekktasta vörumerki landsins og nær fljótlega að rjúfa eins milljarðs króna múrinn í veltu. Ís er vinsæll. Kjörís er með um það bil 260 vörunúmer og framleiðir sjálft um 160 vörutegundir af ís. Í kjölfar EES­samningsins varð innflutningur á ís frjáls og þá ákvað fyrirtækið að flytja inn þekktan ís frá stórfyrirtækinu Unilever, t.d. Magn­ um­ísinn. Erlendir ferðamenn velja frekar þekkt erlend vöru merki í ísnum og þetta er leið Kjöríss til að mæta þeirri þörf. Eigendur Kjöríss eru Laufey Valdimarsdóttir og börn hennar fjögur; Valdimar, Guðrún, Aldís og Sigurbjörg, og Guðmundur Kristinsson, bróðir Hafsteins, sem á fjórðungshlut. Þau sitja öll í stjórn nema Valdimar. Í stjórn Kjöríss sitja því fjórar konur og einn karlmaður. Húsnæði Kjöríss í Hveragerði. 28 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.