Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2010, Page 36

Frjáls verslun - 01.11.2010, Page 36
36 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 Lítil starfsmannavelta Að sögn Valdimars er mestallt starfsfólkið frá Hveragerði og starfs­ manna velta lítil. Lengst af þótti það til tíðinda hve fáir erlendir iðn­ verkamenn unnu hjá fyrirtækinu en hópurinn hefur orðið fjöl breytari með árunum, samfara því sem samsetning íbúa í Hvera gerði hefur breyst. „Við teljum að það hafi reynst farsælt að vera með fyrir tækið í Hveragerði. Það hefur marga kosti, hér höfum við hitann og gufuna en við notum gufukerfið mikið til að hita upp tanka og til að þrífa. Þótt við séum kannski litlir á landsmælikvarða erum við stórir hér, enda erum við fjórði stærsti vinnuveitandinn í Hveragerði. Vinnuaflið hefur verið stöðugt, okkur hefur alla tíð gengið vel að fá starfsfólk og við höfum sjaldan þurft að auglýsa eftir fólki. Ég held við njótum þess að vera aðeins fyrir utan höfuðborgarsvæðið og fólk sé hollara sínu heimafólki. Enda eigum við aldrei í vandræðum með að fá starfsfólk þannig að við höfum skapað okkur gott orðspor í bænum.“ Þetta er gagnkvæm hollusta. Við hrunið ákvað fyrirtækið að segja engum upp, lækka engin laun og minnka ekki starfshlutfallið hjá nein­ um. „Kostnaðurinn jókst vissulega verulega hjá okkur við hrun krónunnar, svo sem vegna hækkunar á aðföngum, en það átti líka við um starfsmenn okkar, þeirra kostnaður jókst líka,“ segir Valdimar. Þegar ljóst var í hvað stefndi eftir hrun var haldinn fundur með starfs­ mönnum þar sem þeim var gerð grein fyrir stöðunni og allir hvattir til að leggjast á árarnar, meðal annars með því að koma með hugmyndir um aðhaldsaðgerðir og hvernig lækka mætti kostnað. Þau systkini leggja áherslu á að þá hafi reynt á samstöðu starfsmanna og styrk fyrirtækisins. En hrunið hefur einnig skapað fyrirtækinu tækifæri. Innlendur framleiðslukostnaður hefur lækkað og samkeppni við innflutning er miklu hagstæðari. „Við fluttum inn talsvert af íssósum á góð æris­ tímanum en í framhaldi af falli krónunnar og hærra innkaups verði að utan fórum við að þróa þessar vörur og hefur það reynst mjög vel. Að því leyti var kreppan uppspretta nýsköpunar hér innan húss og við fórum af stað með hugmyndir sem skiluðu sér í vörum sem hafa reynst happadrjúgar. Við tókum meðvitaðar ákvarðanir um Vandinn var að láta ekki glepjast af þeim gylli­ boðum og tækifærum sem buðust. Við vorum t.d. spurð hvers vegna við værum ekki í útrás, það þótti dálítið púkó að vera ekki í því. NOKKRAR VÖRÐUR Á VEGI 1966 Hafsteinn Kristinsson stofnar Ostagerðina hf. 1969 Kjörís hóf starfsemi í mars í Hveragerði. 1971 Fyrirtækið setur fyrst allra frostpinna á markað á Íslandi. 1988 Einn stofnenda, Gylfi Hinriksson, selur hlut sinn í félaginu til Hafsteins og bræðra hans. 1991 Kjörís selur nýbyggða dreifingarstöð í Reykjavík og flytur skrifstofur og söludeild til Hveragerðis. 1993 Hafsteinn Kristinsson lést og dóttir hans Guðrún tekur við sem framkvæmdastjóri tímabundið. 1994 Valdimar Hafsteinsson tekur við framkvæmdastjórastöðunni. 1995 Gildistaka EES-samningsins opnar á innflutning á ís. Kjörís semur við Unilever um innflutning á þeirra ísvörum. 1996 Stofnun sölustöðvar á Akureyri og dreifing fyrir Norðurland. 1997 Sigfús Kristinsson selur hlut sinn í Kjörís til núverandi eigenda. 2000 Lager stækkaður í Hveragerði. 2006 Samkeppnisstaða loks jöfn, með sölu Emmessísgerðar úr Mjólkursamsölunni til einkaaðila.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.