Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2010, Síða 37

Frjáls verslun - 01.11.2010, Síða 37
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 37 Það ríkti mikið bræðralag við stofnun Kjöríss. Stofnendur voru bræð urnir Gylfi og Bragi Hinrikssynir ásamt bræðrunum Hafsteini, Guðmundi og Sigfúsi Kristinssonum. Frumkvöðlar að stofnun Kjöríss voru Hafsteinn, mjólkurtæknifræðingur, og Gylfi, véltæknifræðingur. Hafsteinn hafði starfað hjá Búnaðarsambandi Íslands og Osta- og smjör- sölunni áður en hann stofnaði Ostagerðina hf. í Hveragerði 1966, sem hann rak í tvö ár. Gylfi rak heildsölu í Reykjavík, G. Hinriksson hf., auk þess að hafa komið að rekstri Rjómaísgerðarinnar í upphafi, en það var fyrsta ísgerð landsins. Gylfi og Bragi seldu hluti sína í Kjörís. Það gerði einnig Sigfús Kristinsson árið 1997 til núverandi eigenda. Í dag er félagið því í eigu Laufeyjar, ekkju Hafsteins, og barna þeirra, Aldísar, Guðrúnar, Valdimars og Sigurbjargar. Einnig er bróðir Hafsteins, Guð mundur, eigandi í félaginu, með fjórðungshlut. Þeir bræður Hafsteinn, Guðmundur og Sigfús Kristinssynir hafa allir verið áberandi í sunnlensku atvinnu- og menningarlífi. Guðmundur starfaði um árabil hjá Landsbankanum en eftir að hann fór á eftir laun hefur hann helgað sig ritstörfum. Hann er höfundur bókarinnar Sumar landið, þar sem hann tekur viðtöl við framliðið fólk um hvernig það er að deyja og hverjir taki á móti því. Meðal þeirra sem Guðmundur náði sam bandi við var sonur hans, sem lést í bílslysi fyrir átta árum. Bókin hefur selst mjög vel nú fyrir jólin. Áður hafði meðal annars komið út eftir Guðmund bókin Styrjalda r árin á Suðurlandi sem er merk heimild um hernámið. Þriðji bróðirinn, Sigfús, hefur verið mikilvirkur byggingarverktaki á Selfossi um árabil og byggt fjölda merkra bygginga þar og víðar, m.a. hús Kaupfélags Árnesinga, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Sjúkrahús Suðurlands. Auk þess hefur hann rekið trésmiðju á Selfossi. Hann seldi hlut sinn í Kjörís árið 1997 til núverandi eigenda. MIKILVIRKIR BRÆÐUR Hafsteinn Kristinsson Guðmundur Kristinsson Sigfús Kristinsson þetta og hættum að flytja inn vörur í tæpt ár og ákváðum að þróa vörur sem að hluta til komu í staðinn fyrir þær erlendu. Við þróuðum sósur, sem við gátum gert sjálf, en hafði áður verið hag stæðara að flytja inn,“ segir Valdimar. Eitt stærsta matvælafyrirtæki landsins Velta Kjöríss á síðasta ári var 902 milljónir króna sem jafngilti 13% aukningu frá fyrra ári sem var hrunárið 2008. Félagið verður nálægt því að fara í einn milljarð króna í veltu á þessu ári. Það er eitt stærsta matvælaiðnfyrirtæki landsins en þar að auki hefur það tekið að sér dreifingu á innfluttum ís. Valdimar segir að félagið hafi heldur verið að auka hlutdeild sína þótt breytingar gerist hægt á þessum markaði. Innflutningur heildsöluaðila á ís nemur um það bil 12% af heildarsölu en þegar tekið er tillit til þess innflutta íss sem innlendir framleiðendur selja verður magnið um 15%. Þessi hlutföll hafa í sjálfu sér breyst lítið frá því að innflutningur hófst. Talsverðir flutningar fylgja starfsemi félagsins en það vinnur ís úr sem nemur 1,2 milljónum lítra af mjólk á ári og ekki er fyrirferðin minni eftir að búið er að breyta mjólkinni í ís. Kjörís kaupir mjólkina í formi fljótandi mjólkur, undanrennudufts og smjörs. Að sögn Valdimars hefur félagið vaxið hægt og þétt frá stofnun án þess að taka neinar kollsteypur. „Við höfum engan keypt og engum selt þannig að hér er eingöngu um innri vöxt að ræða.“ Þegar hann er spurður um afkomuna brosir hann og segir að þetta hafi gengið. „Það er enginn ofurgróði í þessum iðnaði en við erum réttum megin við núllið, það fer þó eftir árferði.“ Þess má geta að Kjörís var eitt af fyrstu matvælafyrirtækjum á landinu til að framfylgja reglugerðum heilbrigðisyfirvalda um uppsetningu innra eftirlitskerfis í sinni matvælavinnslu. „Fyrstu tuttugu árin fór talsverð orka í þennan stóra keppinaut sem var Mjólkursamsalan en svo hefur áherslan farið meira í að bregðast við breytingum á markaði,“ segir Guðrún. Hjá Kjörís starfa tveir mjólkurfræðingar og félagið hefur margvíslega þekkingu sem gæti nýst til framleiðslu annarra mjólkurvara. Það er freistandi að spyrja hvort ekki hafi komið til greina að fara í aðra framleiðslu. „Við höfum staldrað við það sem við kunnum best og haldið okkur við það. Á meðan við teljum okkur geta gert betur í ísframleiðslunni einbeitum við okkur að ísnum. Auðvitað höfum við gælt við ýmsar hugmyndir og prófuðum til dæmis að framleiða þeytikrem um skeið fyrir tuttugu árum en lítill áhugi var á því. Við höfum haldið okkur við ísvörur og tengdar afurðir og látum það gott heita enn um sinn. Við aftökum þó ekki að grípa tækifæri ef þau gefast,“ segir Valdimar og bætir við: „Þá hefur matvörumarkaðurinn breyst mikið síðustu áratugi með mikilli samþjöppun sem hefur leitt til þess að lágverðsbúðirnar eru orðnar stærri og sérframleiðslan fyrir þær meiri. Maður hefur þurft að fylgja þeim breytingum eftir og þjónusta markaðinn eftir bestu getu.“ HAFSTEINN, GUÐMUNDUR OG SIGFÚS KRISTINSSYNIR Gylfi Hinriksson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.