Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2010, Side 49

Frjáls verslun - 01.11.2010, Side 49
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 49 24 knáa græja spilar efni af flakkara eða USB­minnislykli í HD­gæðum, en einnig er hægt að spila gegnum hana efni af tölvum sem tengdar eru heim ilisnetinu eða nettengja hana og spila þannig efni af netinu, t.d. You tube. 18. BLIZZARD ENTERTAINMENT WORLD OF WARCRAFT Tölvuleikur (5.995 kr. hjá www.elko.is). Þriðja útgáfan af þessum gríðarvinsæla netleik felur í sér verulega yfirhalningu á honum og sýnir hvers vegna World of Warcraft er enn leiðandi á þessu sviði. Hann er bara ný kominn á markaðinn, en sérfræðingar PC World þurftu ekki langan spilatíma til að fullvissa sig um að hann yrði meðal allra bestu leikja ársins. 19. ADOBE CREATIVE SUITE 5 Myndvinnsluhugbúnaður (verð frá u.þ.b. 220.000 kr., www.adobe. com/products/creativesuite). Fyrir atvinnufólk í grafískri hönnun er þessi hugbúnaðarpakki toppurinn á tilverunni. Með CS5­útgáfunni eru ýmsar fínar nýjungar auk þess sem aukin áhersla er á eiginleika sem henta fyrir vefhönnun. 20. CANON EOS 7D Stafræn myndavél (289.900 kr. án linsu hjá www.netverslun.is). Þessi 18­megapixla myndavél er með alla eiginleika sem toppljósmyndarar óska eftir, en verðið er að nálgast það sem hörðustu áhugamenn eru tilbúnir að greiða. Meðal eiginleika má nefna háupplausnar­LCD­skjá, fína „Live View“ ­eiginleika og 1080p vídeó auk 8­ramma­á­sekúndu stöð uga myndatöku. 21. SONY HANDYCAM NEX-VG10 Vídeótökuvél (verð u.þ.b. 300.000 kr. www.sonystyle.com/product/ en/nexvg10). Þessi nýstárlega vídeótökuvél er með útskiptan legri linsu og getur tekið 1080p AVCHD vídeó og 14 megapixla kyrrmyndir. Þar að auki er hún umtalsvert ódýrari en sambærilegar vélar á markaðnum. Hún er hins vegar ekki fáanleg hér á landi og því þurfa áhugasamir að sjá um innflutninginn sjálfir. 22. ALIENWARE M11X Fartölva (329.900 kr. www.ejs.is). Loksins er komin ofurlétt fartölva sem er nægilega öflug til að ráða við alvöru þrívíddarleiki. M11x­línan er með Core i5­ eða i7­örgjörva auk þess að nýta Optimus­grafík­ tæknina frá nVidia til að skila leikjunum óaðfinnanlega. 23. SONY READER POCKET EDITION PRS-350 Lestölva (u.þ.b. 25.000 kr., www.sonystyle.com/product/en/ prs350sc). Þessi lestölva sker sig frá keppinautunum með því að vera minni – með einungis 5 tommu skjá – og hún er því afar létt og nett. Skjár inn er engu að síður auðlæsilegur, sem er jú það sem skiptir mestu máli. 24. NVIDIA GEFORCE GTX 460 Skjákort (37.900 kr., hjá www.computer.is). Ertu að leita að öfl­ ugu en ódýru skjákorti fyrir leikina eða myndvinnsluna? nVidia tók svolítið seint við sér þegar DirectX 11­tæknin kom til skjalanna, en með GTX 460 hafa þeir stimplað sig inn aftur með frábæra grafíkvinnslu á mjög góðu verði. 25. LOGITECH C910 Vefmyndavél (17.500 kr., hjá www.kisildalur.is). Með þessari vel hönnuðu vefmyndavél fást kristaltær 1080p myndgæði. Þar að auki styður vélin SkypeHD­myndsímtöl, sem gerir hana að enn betri kosti. 26. BUMP Farsímaforrit (ókeypis, www.bu.mp). Þarftu að senda lag, tengi­ liðaupplýsingar eða jafnvel PayPal­greiðslu milli tveggja snjallsíma? Keyrðu þá þetta forrit á báðum símum, sláðu þeim saman, og færslan er framkvæmd. Þetta virkar meira að segja milli iPhone­ og Android­síma. 27. NORTON ANTIVIRUS 2011 Veiruvarnarforrit (u.þ.b. 4.600 kr. fyrir árs áskrift á einni tölvu, www.nortonantiviruscenter.com). Þessi veiruvörn skilaði alltaf fyrsta flokks frammistöðu í reglulegum prófunum PC World á veiru varnar­ búnaði. Að auki eru notendaskilin vel hönnuð og auðskiljanleg. 18 Nýjasta viðbótin við World of Warcraft er frábærlega vel heppnuð 20 Canon EOS 7D er með allt sem kröfu­ hörðustu ljósmyndarar óska sér. 22 Alienware M11x er smá en glettilega kná þegar kemur að tölvuleikjunum. nVidia GeForce GTX 460 er öflugt en ódýrt skjákort.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.