Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2010, Page 62

Frjáls verslun - 01.11.2010, Page 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 Hvaða fjögur atriði eru brýnust í efna­ hagsmálum þjóðarinnar? 1. Aflétta gjaldeyrishöftum Fyrir lítið land skiptir meginmáli að versl­ un við útlönd sé sem greiðust. Þess vegna er brýnt að aflétta sem fyrst höft­ um á viðskipti með erlendan gjald eyri. Gjaldeyrishöft geta ef til vill átt rétt á sér í skamman tíma, þegar hætta vofir yfir, en ekki til langframa. 2. Fjölþjóðlegur gjaldmiðill Einnig þarf að vinna að því að taka upp gjaldmiðil sem fleiri en Íslendingar nota og auðvelda þannig viðskipti við útlönd. Góð byrjun væri að sækjast eftir svipuð­ um samningi og Danir hafa gert við Evróp ska seðlabankann um að bankinn styðji við gengi krónunnar gagnvart evru. Ef of torsótt þykir að taka upp evru eftir hefð bundnum leiðum má minna á að nokkur lönd, sem hafa verið í svipaðri stöðu og Ísland, virðast hafa góða reynslu af því að taka erlendan gjaldmiðil upp einhliða. 3. Auknar kröfur til opinberra fjármála Þegar farið verður að nota fjölþjóðlegan gjaldmiðil á Íslandi verður að gera meiri kröfur til opinberra fjármála en áður. Til dæmis verður að draga úr heimildum sveitarfélaga til þess að taka lán. Mikilvægt er að íbúar á hverjum stað borgi sjálfir þær skuldir sem sveitarfélögin hafa þegar stofnað til, en ríkið taki ekki að sér að borga reikninginn. Það ýtir bara undir óráðsíu seinna. Draga verður úr ríkisábyrgðum á fjárskuldbindingum eftir því sem kostur er. Þær eru ekki ókeypis aðferð við að lækka vexti, eins og stundum hefur heyrst. 4. Fólk velji sér lífeyrissjóð Núna er mikill áhugi á að nota lífeyrissjóði í alls kyns þjóðþrifaverkefni, önnur en að greiða lífeyri. Það er í sjálfu sér eðlilegt, því að þarna er mikill hluti af því sem eftir er af auði landsmanna. Besta leiðin til þess að koma í veg fyrir slíka misnotkun á sjóðunum er að fólk fái sjálft að velja sér lífeyrissjóð. Það mun þá borga í þá sjóði sem einbeita sér að því að ávaxta lífeyrissparnað, fremur en þá til dæmis sem hafa hugann meira við að móta endurreisn íslensks atvinnulífs. SIGURÐUR JÓHANNESSON, aðjúnkt við Háskóla Íslands: Taka upp fjölþjóðlegan gjaldmiðill Sigurður Jóhannesson ÞÓRÐUR FRIÐJÓNSSON, forstjóri Kauphallarinnar: Afnám gjaldeyrishafta HVAÐ SEGJA ÞAU UM ÁRAMÓT? Hvaða fjögur atriði eru brýnust í efna­ hags málum þjóðarinnar? 1. Afnema gjaldeyrishöftin Nú eru kjöraðstæður í íslensku efna hags ­ lífi til að afnema gjaldeyrishöftin. Sam ­ keppnis hæfni atvinnulífsins og eign a staða þjóðarbúsins er sterk og raun ­ gengi sögulega lágt. Það hefur skilað sér í myndarlegum afgangi af við skiptum við útlönd. Ekki eru haldbær rök fyrir koll­ steypu efnahagslífsins við afnám, því mið að við ástand efnahagslífs eru yfir ­ gnæf andi líkur á því að raungengi krón­ unnar styrkist til framtíðar. Það er skaðlegt að bíða með afnám gjald eyris hafta, því lengur sem við bíðum því meira draga þau þrótt inn úr efna hagslífinu og rýra traust á þjóðar búskapnum. 2. Eignarhald á fyrirtækjum komist í hendur frambúðareigenda Mikilvægt er að koma eignarhaldi á fyrir­ tækjum í hendur frambúðareigenda, en Þórður Friðjónsson MAT HAGFRÆÐINGA MAT HAGFRÆÐINGA

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.