Frjáls verslun - 01.11.2010, Qupperneq 95
F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 95
í hefndarhug, glæpakóng með veikt hjarta og spilltar fíkniefnalöggur
sem eru í þann mund að breyta lífi hver annars til frambúðar. Leikarar eru
Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Sigurður Sigur jónsson
og Zlatko Krickic. Kurteist fólk er um nýfráskilinn verk fræðing í
Reykjavík sem lýgur sig inn í aðstæður um að geta bjargað sveitarfélagi á
Vesturlandi frá glötun með því að koma slátur húsi staðarins aftur í gang.
Aðalhlutverkið er í höndum Stefáns Karls Stefánssonar.
Aðrar leiknar kvikmyndir sem eru á lokastigi eru Þetta reddast
sem fjallar um ungan blaðamann sem drukkið hefir óhóflega. Hann
ákveður að bjóða kærustunni út að borða um helgi til að bjarga
sambandinu en um leið setur ritstjóri hans honum úrslitakosti.
Leikstjóri er Börkur Gunnarsson og með aðalhlutverkið fer Björn
Thors. Okkar eigin Osló er um Harald, sem lifir vernduðu lífi
og eyðir rómantískri helgi í Osló með Vilborgu sem lifir stjórnlausu
lífi. Þau hittast aftur á Íslandi í fríi sem breytir lífi beggja. Reynir
Lyngdal leikstýrir myndinni og með aðalhlutverkin fara Þorsteinn
Guðmundsson og Brynhildur Guð jóns dóttir. Á annan veg nefnist
kvikmynd sem Hafsteinn Gunnar Sigurðs son leik stýrir. Gerist
myndin á ótil greindum fjallvegum á níunda ára tugnum og fjallar
um tvo ólíka starfsmenn Vegagerðar innar sem vinna við að mála
merkingar á malbikaða vegi, slá niður tréstikur í veg kanta, fylla
í holur og annað til heyrandi. Mennirnir þurfa að takast á við og
umbera sérviskulega eiginleika hvor annars, deila litlu tjaldi og sofa í
táfýlu þétt hvor upp við annan.
Þá ber að geta fyrstu íslensku tölvuteiknuðu kvik myndarinnar,
Thors, sem Óskar Jónasson leikstýrir ásamt Gunnari Karlssyni og
Toby Kendal. Fjallar myndin um sjálfsöruggan ungling sem hefur yfir
að ráða galdravopni. Hann vingast við guði sem eru jafnmislyndir og
mennirnir og eignast óvin sem er vonda drottningin. Handritið skrifaði
Friðrik Erl ings son.
Heimildarmyndir í fullri lengd verða örugglega nokkrar á árinu, meðal
annarra Icelandic Food Centre, sem er mynd um það hvernig lítið land
vill sigra heim inn með stórum hugmyndum og fjallar myndin um fyrstu
íslensku útrásina. Leikstjóri er Þorsteinn J. Ísland FC er í leikstjórn
Roberts Douglas og er fylgst með íslenskum stuðningsmönnum enskra
félagsliða. Þá verða sýndir 2.5. hluti af Drauminum um veginn
í leikstjórn Erlends Sveins sonar og er hver hluti um 105 mínútur að
lengd.
Ólafur Darri Ólafsson í hlutverki Bödda í Roklandi, sem er fyrsta íslenska leikna kvikmyndin á árinu 2011.