Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2010, Side 98

Frjáls verslun - 01.11.2010, Side 98
98 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0 Fólk JANNE SIGURÐSSON, framkvæmdastjóri framleiðslu hjá Fjarðaáli Nafn: Janne Sigurðsson Fæðingarstaður: Álaborg, Danmörku, 23. október 1966 Foreldrar: Ruth og Kristian Pedersen Maki: Magnús Sigurðsson Börn: Tenna Elisabet Magnúsdóttir, 21 árs, Ásbjörn Viking Magnússon, 16 ára Menntun: Cand. scient. í tölvu- og stærð- fræði frá háskólanum í Álaborg Janne Sigurðsson: „Í sumar keyptum við okkur þó stórt hjólhýsi svo þegar veðrið er gott er aldrei að vita nema hægt verði að rekast á okkur á ferð um landið.“ em framkvæmdastjóri framleiðslu hjá Fjarðaáli ber ég ábyrgð á teymi sem sér um kerskála, steypuskála, skautsmiðju og við hald í álverinu. Ég hef verið hjá Fjarðaáli nánast frá upp hafi, eða í fjögur og hálft ár. Mér bauðst tækifæri til að taka þátt í að byggja upp þetta frábæra fyrirtæki og þessi tími hefur verið ein staklega gefandi. Þetta er í raun tækifæri sem maður fær aðeins einu sinni á ævinni. Í upphafi var ég fram­ kvæmdastjóri tölvuteymis en varð framkvæmdastjóri ker skála áður en ég tók við umsjón með allri fram leiðslunni. Þessa dagana erum við að vinna saman að aðgerðaáætlun fyrir árið 2011. Ég vil helst ekki fara í jólafrí án þess að ljúka því verkefni og öllu öðru sem þarf að vera tilbúið fyrir næsta ár. Það gekk allt mjög vel hjá okkur á þessu ári, að vísu kom dálítill skrekkur í okkur þegar gosið í Eyjafjallajökli brast á og við vorum með tilbúnar neyðar áætl anir ef öskufall yrði fyrir austan, en það hefði getað haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir okkur. Sem betur fer varð ekkert af því og við sjáum fyrir okkur bjarta framtíð í fyrirtækinu, þar sem tækifærin verða mörg á næstu árum.“ Janne er dönsk og kom fyrst til Íslands árið 1988. „Ég kom til að vinna í fiski á Eskifirði. Var á Íslandi í eitt ár í frystihúsinu Eskju. Hitti eiginmann minn, Magnús Sigurðsson, og saman fórum við til Dan merkur þar sem við áttum heima fram til sumarsins 2005. Þá tókst mér loksins að fá Magnús til að flytja heim til Íslands. Við höf­ um verið gift í rúm 20 ár og Maggi, sem er múrari, rekur lítið verktakafyrirtæki. Hann er kannski Íslendingur á papp­ írunum en á margan hátt er hann meiri Dani en ég! Við eigum tvö börn sem eru bæði fædd í Danmörku og töluðu ekki íslensku þegar við fluttum til Íslands en nú finnst þeim mjög skemmtilegt að leiðrétta íslensku móður sinnar. Við búum á Eskifirði og erum stolt af því að vera Aust firðingar! Hér sköpum við næstum 25% af öllum tekjum Íslands af vöruútflutningi, en erum samt minna en 4% af íbúum landsins.“ Janne er menntaður stærðfræð­ ingur og tölvuverkfræðingur en segist ekki kunna mikið á tölvur. „Ég hef alltaf unnið við stjórn­ un, unnið meira með fólki en í tölvum og ég fæ stundum að heyra það þegar ég bið um aðstoð við tölvuna. Ef ég á að vera alveg hrein­ skilin, þá er lítill tími fyrir áhugamálin. Það sem ég hef mestan áhuga á er vinnan. Það er svo gaman að fá að vera með öllu þessu frábæra fólki sem vinnur með mér. Í sumar keypt­ um við okkur þó stórt hjólhýsi svo þegar veðrið er gott er aldrei að vita nema hægt verði að rekast á okkur á ferð um landið. Við notum helst hverja einustu helgi til að fara á einhvern góð­ an stað og njóta þess að vera úti. Móðir mín býr í Danmörku og systkini mín líka. Það var sérstök tilhlökkun fyrir mig að fá mömmu til okkar á Eskifjörð yfir jólin og við ætlum að verja tímanum með henni og stóru tengdafjölskyldunni minni hér fyrir austan yfir hátíðarnar. Það er ekki hægt að hugsa sér betri jól og áramót.“ S Gleðilegt nýtt ár. Með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða. UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA Við erum þakklát og stollt yfir þeim fjölmörgu áföngum sem náðust á árinu. Umhverfisvottun Svansins JANÚAR 2010 Umhverfisverðlaun Umhverfisráðuneytisins APRÍL 2010 Premier Print Awards OKTÓBER 2010 VR fyrirmyndarfyrirtæki MAÍ 2010

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.