Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2007, Síða 19

Frjáls verslun - 01.04.2007, Síða 19
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7 19 gengur nógu vel sitja menn ekki uppi með sárt ennið heldur er tryggt að upprunalegur höfuðstóll skerðist ekki.“ „Þessi verðbréf eru ekki bundin við hlutabréf eingöngu. Sumir af viðskiptavinum okkar vilja fjárfesta í gjaldmiðlum, nokkrir í góð- málmum og enn aðrir í hrávöru. Allt kallar þetta á bæði sérþekkingu og áhættu umfram það sem margir vilja taka nema ef boðið er upp á bréf af þessu tagi,“ segir Bo. Hann heldur áfram: „Tökum dæmi: Segjum að keypt séu skuldabréf fyrir 80% af verðmæti fjárfestingarinnar og 20% sett í áhættusamari fjárfestingu. Skuldabréfin bera fasta 5% vexti í þrjú ár. Verðmæti þessara bréfa er þá 92,6% af heildinni í lokin. Segjum að lofað hafi verið genginu 106 í lokin. Áhættufjárfestingin þarf þá að skila (106,0-92,6)/20, eða um 67% af verðmæti sínu, til þess að náist að uppfylla upprunaleg loforð. Áhættan fyrir seljandann (bankann) er því ekki mjög mikil. Ef ávöxtunin á áhættuhlutanum er hins vegar 50% á þessum tíma á hlutabréfahlutanum, endar gengið í 122,6.“ Hvernig hyggjast þeir kynna þessa nýjung fyrir íslenskum fjárfestum? „Við munum bæði hafa samband við einstaka fjárfesta persónulega og líka boða til kynningarfunda. Þann 7. júní verðum við með kynningarfund á Hótel Sögu þar sem við förum yfir nokkra af þeim kostum sem við bjóðum. Þar kynnum við einmitt í fyrsta sinn tvær tegundir verðbréfa sem við höfum hannað sérstaklega með þarfir íslenska markaðarins í huga. Við höldum að þetta sé ávöxtunarmögu- leiki sem hentar vel fjárfestum sem komnir eru yfir miðjan aldur.“ Frekari tengsl? Ætlar FB eingöngu að bjóða Íslendingum upp á verðbréf af þessu tagi eða gæti bankinn hugsað sér að bjóða Íslendingum upp á frekari þjónustu? Kjeld Mosebo verður fyrir svörum: „Það kemur auðvitað til greina að veita góðum viðskiptavinum víðtæka þjónustu. Við getum vel hugsað okkur að veita mönnum bæði víðtækari ráðgjöf og líka getum við lánað þeim sem uppfylla almenn skilyrði. Við vitum að á Íslandi eru margir viðskiptavinir sem þurfa alhliða þjónustu og innan Evrópska efnahagssvæðisins eru engin landamæri fyrir fjármagn. Í Danmörku höfum við einbeitt okkur að minni og meðalstórum fyrirtækjum. Við höfum því reynslu af því að þjóna fyrirtækjum af þeirra stærðargráðu sem er algeng á Íslandi.“ Að síðustu vaknar sú spurning hvort FB óttist ekki að rétta Íslend- ingum litla fingurinn í ljósi þess að þeir hafa keypt upp mörg fyrirtæki í Danmörku. „Við viljum gjarnan fá Íslendinga í hluthafahópinn. Eignaraðildin að FB er dreifð og í samþykktum okkar er ákvæði um að hver hlut- hafi megi ekki fara með meira en 0,1% atkvæða á hluthafafundum. Þetta höfum við gert til þess að hlutabréfin séu ekki háð skamm- tímasveiflum og spákaupmennsku. Þannig að ef Íslendingar slást í hóp eigenda verða þeir þar fyrst og fremst vegna langtímaávöxtunar,“ segir bankastjórinn í lokin. Forstædernes Bank er í glæsilegum húsakynnum nálægt Íslandsbryggju. Svo skemmtilega vill til að í næsta húsi er nýtt og fallegt hótel, Islands Hotel. B A N K A V I Ð S K I P T I Bo Schmidt, framkvæmdastjóri fjárfestinga, og Kjeld Mosebo Christensen, bankastjóri Forstædernes Bank.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.