Frjáls verslun - 01.04.2007, Síða 24
24 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
FORSÍÐUGREIN • GESTUR JÓNSSON
Mál atvikuðust þannig að Ragnar Tómasson lögmaður,
sem rak stóra fasteignasölu, bauð mér skrifstofuaðstöðu
þar sem hann var með fasteignasöluna gegn því að ég ynni
fyrir hann í klukkutíma á dag. Ég tók því. Ég var því 24 ára
gamall þegar ég hóf lögmannsstörf
og er enn að,“ segir Gestur.
Gestur var skipaður verjandi Jóns
Ásgeirs í Baugsmálinu og hann segir
að því verkefni hafi fylgt gríðarlega
mikil vinna. „Málið hefur nánast
gleypt allan minn tíma undanfarin
tvö til þrjú ár. Verkefni af slíkri
stærðargráðu er þess eðlis að það er
einum manni ofviða og því hef ég unnið að vörninni með
mörgum öðrum lögmönnum og við höfum þurft að leita
mikillar sérfræðiaðstoðar á öðrum sviðum sérstaklega frá
endurskoðendum og tölvumönnum. Þetta er frábær hópur
sem hefur unnið vel saman enda erum við sannfærð um
réttmæti þess málsstaðar sem okkur er treyst fyrir.
Þjóðin þekkir gang Baugsmálsins þótt flestir hafi tapað
þræðinum. Fyrst var gefin út ákæra
í 40 liðum. Þegar upp var staðið
hafði 32 verið vísað frá dómi en þeir
átta liðir sem fengu efnislega með-
ferð enduðu allir með sýknudómi.
Í annarri umferð málsins var gefin
út ákæra í 19 liðum. Þeim fyrsta
og alvarlegasta var fljótlega vísað frá
héraðsdómi og sú ákvörðun síðar
staðfest í Hæstarétti. Dæmt var um þá 18 ákæruliði sem þá
stóðu eftir í héraðsdómi 3. maí síðastliðinn. Þegar upp var
staðið var Jón Ásgeir sakfelldur í einum ákærulið en öðrum
Jón Gunnar Ottósson:
Þúsund skáka einvígi
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúru-
fræðistofnunar Íslands og vinur Gests, sagði
að þeir Gestur hefðu fyrst hist í afmæli hjá
sameiginlegum vini þegar þeir voru ellefu
eða tólf ára.
„Vinátta okkar hófst þó ekki fyrir alvöru
fyrr en við komum saman í Menntaskólanum
við Hamrahlíð. Við höfum báðir mjög gaman
af að tefla og spila og höfðum það fyrir reglu
að tefla þúsund skáka einvígi á hverjum
vetri á meðan við vorum í menntaskóla
og mig minnir að þær hafi farið upp í tvö
þúsund einn veturinn. Einu sinni hittumst
við meira að segja á aðfangadagskvöld og
tefldum alla nóttina. Gestur er gríðarlegur
keppnismaður og góður í flestu því sem
hann tekur sér fyrir hendur enda á hann það
til að vera tapsár.
Gestur er mikill fjölskyldumaður, opinn og
mikil félagsvera. Hann er einstakur að því
leyti hvað hann er gegnheill og heiðarlegur
og það er eitt af því sem ég virði mikið í fari
hans. Gestur er traustur og góður vinum
sínum og vinskapur okkar hefur haldist þrátt
fyrir að stundum hafi liðið margir mánuðir
og jafnvel ár þar sem við höfum ekki hist.
Vinátta okkar hefur styrkst í seinni tíð og við
erum aftur farnir að
leika okkur saman
til dæmis við veiði
og hann er alltaf að
reyna að plata mig
í golf.
Það vita líklega
fáir að Gestur
er mjög stríðinn
og stríðnin hefur
stundum verið
dálítið miskunnarlaus. Ég minnist þess að
einu sinni þegar við vorum sextán ára var
mér boðið heim til hans í mat og það var
kjötsúpa í matinn. Kjötsúpa var á þeim tíma
besti matur sem ég fékk en Gestur sagði
móður sinni að mér þætti hún hræðilega
vond. Mamma hans setti því lítið á disk-
inn til að hlífa mér og það var alveg sama
hvað ég sagði því hún trúði Gesti og hélt
að ég væri bara að reyna að vera kurteis.
Þarna sat ég því og fékk nánast ekkert að
borða þrátt fyrir að þetta væri uppáhalds-
maturinn minn og Gestur skemmti sér
konunglega. Ég kann svo sem ýmsar fleiri
og meira krassandi sögur um hann en
finnst ekki viðeigandi að hafa þær eftir
hér,“ sagði Jón Gunnar Ottósson forstjóri
Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Eiríkur Tómasson:
Gestur stóð á bak
við allt saman
„Ég er búinn að
þekkja Gest frá því
að við vorum sjö
ára,“ sagði Eiríkur
Tómasson, próf-
essor við lagadeild
Háskóla Íslands.
,,Við kynntumst
í barnaskóla og
vorum saman í
skóla þar til við lukum prófi í lögfræði. Leiðir
skildu um tíma í menntaskóla þar sem við
tókum mismunandi brautir en við höfum
alltaf haldið vinskap. Ég tel mig því þekkja
hann vel. Gestur er fyrst og fremst skarp-
greindur og hefur farsælar gáfur. Hann leysir
því öll verkefni sem hann tekur að sér fram-
úrskarandi vel.
Hann getur verið hræðilega stríðinn.
Við vorum til dæmis einu sinni saman í
andaglasi og þar fékk ég fremur óþægilegar
upplýsingar sem komu illa á mig og höfðu
slæm áhrif á mig á tímabili. Síðar kom svo
í ljós að það var Gestur sem stóð á bak við
allt saman.
Við höfum átt mörg sameiginleg áhuga-
S
AG
T
U
M
G
ES
T
JÓ
N
S
S
O
N
Í minningunni voru uppvaxtarárin
í Kópavogi frábær tími og lífið
einn samfelldur leikur. Þarna voru
rosalega margir krakkar og opin
svæði úti um allt þar sem spilaður
var fótbolti eða eitthvað brallað.
Jón Gunnar Ottósson.
Eiríkur Tómasson.