Frjáls verslun - 01.04.2007, Qupperneq 31
D A G B Ó K I N
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7 31
Group eignast 50% í félaginu
fyrir mitt árið, og félagið allt á
árinu 2008. Kaupin verða fjár-
mögnuð að hluta til með lánsfé.
Eftir kaupin verður áætluð
velta Icelandair Group fyrir árið
2007 um 72 milljarðar króna,
sem er um 30% aukning frá
rekstrarárinu 2006. En hins
vegar er áætlað að á ársgrund-
velli verði velta Icelandair Group
yfir 80 milljarðar króna eftir
kaupin á Travel Service.
13. maí
Jón Ásgeir
flytur til New York
Fram kom í þættinum
Sjálfstæðu fólki þar sem fjallað
var um Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóra Baugs, að hann og
sambýliskona hans, Ingibjörg
Pálmadóttir, munu flytjast til
New York nk. haust. Þau hafa
keypt glæsilega íbúð í borginni
en Ingibjörg mun hafa búið þar
áður þegar hún nam innanhúss-
arkitektúr.
Ys og þys í New York.
14. maí
Kaupþing með
20% í Storebrand
Kaupþing tilkynnti þennan
dag að eignarhlutur bankans í
norska trygginga- og fjármála-
fyrirtækinu Storebrand ASA
væri kominn í 20%. Sagði að
í ljósi þessa hefði Kaupþing
ákveðið að Storebrand yrði fært
sem hlut-
deildarfélag
í reikningum
bankans.
Að sögn
Kaupþings
hafði eign-
arhlutur
bankans í
Storebrand verið færður á gang-
virði og dragi þessi breyting því
úr markaðsáhættu bankans.
15. maí
Verðstríð
danskra banka
Þessi frétt þótti skemmtileg.
Hún var um að verðstríð
danskra banka færi harðnandi.
En fyrr um daginn hafði Danske
Bank tilkynnt að hann myndi
afnema þjónustugjöld hjá þeim
sem nota netbanka og banka-
sjálfsala. Þá sagðist bankinn
ætla að afnema árgjöld fyrir
kreditkort og greiða viðskipta-
vinum á milli 600 og 3.000
danskra króna árlegt vaxtaálag
eftir umfangi viðskipta. Bloggað
var um þessa frétt hér heima
og spurt hvenær verðstríð yrði á
milli banka hérlendis.
Merck fór á 430 milljarða króna.
15. maí
Merck selt
á 430 milljarða
Hún var orðin nokkuð löng
sagan um tilraunir Actavis til
að kaupa samheitalyfjasvið
þýska lyfjarisans Merck. Hún
endaði með því að nýlega gaf
„Novator mun beita
sér fyrir enn aukinni
áhættusækni í rekstri
félagsins, fækka í stjórn
þess og birta aðeins á
opinberum vettvangi þær
upplýsingar, sem almennt
er krafist af óskráðum
félögum.“
12. maí
KAUPÞING SELUR HLUT SINN Í ÖLGERÐINNI
Stjórnendur Ölgerðarinnar
hafa núna eignast fyrir-
tækið að fullu, en tilkynnt
var þennan dag að fjórir
stjórnendur Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar og Danóls
hefðu keypt 31% hlut
Kaupþings í fyrirtækjunum.
Fjórmenningarnir eru
þeir Pétur Kr. Þorgrímsson
markaðsstjóri, Ólafur Kr.
Guðmundsson, sölustjóri
Danóls, Friðjón Hólmbertsson,
framkvæmdastjóri veit-
ingasviðs, og Kristján Elvar
Guðlaugsson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs hjá
Ölgerðinni.
Skömmu eftir ára-
mót keyptu Andri Þór
Guðmundsson, forstjóri
Ölgerðarinnar, og Októ
Einarsson, framkvæmdastjóri
Danóls og stjórnarformaður
Ölgerðarinnar, tæplega 70%
hlut í félögunum.
Hreiðar Már
Sigurðsson.
14. maí
Eiður selur Háfell
Sagt var frá því Eiður H.
Haraldsson, eigandi verktaka-
fyrirtækisins Háfells frá 1986,
hefði selt allt sitt hlutafé til
félags í eigu Skarphéðins
Ómarssonar og Jóhanns
Gunnars Stefánssonar. Eiður
mun starfa áfram hjá félaginu
í ráðgefandi hlutverki.
Háfell hefur starfað við
mörg þekkt verkefni á und-
anförnum árum en það
stærsta um þessar mundir
er gerð Héðinsfjarðarganga í
samvinnu við tékkneska fyrir-
tækið Metrostav.
Af öðrum verkefnum
Háfells á undanförnum
árum má nefna tvöföldun
Reykjanesbrautar, færslu
Hringbrautar árið 2005 og
endurgerð Sæbrautar.
magna umtalsverðan hluta kaup-
verðs með lánsfé og því ljóst
að Actavis verður á samstæð-
ugrundvelli verulega skuldsett
að yfirtökunni lokinni. Novator
mun beita sér fyrir enn aukinni
áhættusækni í rekstri félags-
ins, fækka í stjórn þess og birta
aðeins á opinberum vettvangi
þær upplýsingar, sem almennt
er krafist af óskráðum félögum.
Það er mat Novators að sú
aukna áhætta, sem fylgir slíkri
skuldsetningu og stefnu, sé
ekki heppileg fyrir almenna fjár-
festa og því rétt að gefa öðrum
fjárfestum tækifæri til útgöngu
áður en að slíkum breytingum
kemur.“