Frjáls verslun - 01.04.2007, Page 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
… TIL JÓNASAR FR. JÓNSSONAR,
FORSTJÓRA FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS:
Yfirtökunefnd hefur verið í brennidepli vegna
viðskiptanna í Glitni nýlega og í FL-Group á
sínum tíma. Er þetta máttlaus nefnd, kemur
til greina að leggja nefndina niður og fela
Fjármálaeftirlitinu störf hennar?
Sjálfsaðhald er áhrifaminna
„Fjármálaeftirlitið er hið lögboðna stjórnvald varðandi
yfirtökumál. Yfirtökunefnd var sett upp fyrir tilstuðlan
markaðsaðila með aðkomu opinberra aðila, meðal ann-
ars Fjármálaeftirlitsins, sem tilraun til þriggja ára að
sjálfsaðhaldi eða „self-regulation“. Almennt getur slíkt
sjálfsaðhald átt vel við á mörkuðum þar sem aðilar
eru reiðubúnir til að leggja öll spil á borðið og sækjast
eftir ráðgjöf. Við slíkar aðstæður getur þessi leið verið
fljótlegri en stjórnsýsluleiðin. Hins vegar er sjálfsaðhald
áhrifaminna við þær aðstæður, þegar aðilar vilja komast
hjá yfirtökuskyldu og hafa
lítinn áhuga á samstarfi.
Spurningin snýr frekar að
því hvort sjálfsaðhald henti
hinum unga íslenska mark-
aði, sem einkennist af til-
tölulega stórum eignarhlutum,
miklum tengslum og þar sem
hefðir eru í mikilli mótun.“
… TIL ÁSGEIRS JÓNSSONAR,
FORSTÖÐUMANNS
GREININGAR KAUPÞINGS:
Kaupþing banki spáði því í upphafi árs að úrvals-
vísitalan færi í 8.000 stig í lok ársins. Núna hefur
hún þegar rofið þann múr. Hvernig verður fram-
vindan það sem eftir lifir ársins?
Svigrúm til hóflegra hækkana
„Það er rétt, hlutabréfamarkaðurinn hefur verið mun líflegri en
við gerðum ráð fyrir í upphafi árs. Í Þróun og horfum sem við
gáfum út þann 17. apríl síðastliðinn hækkuðum við spá okkar
í 8.500 stig og hefur Úrvalsvísitalan nú nálgast þá spá veru-
lega. Við teljum að enn sé svigrúm til hóflegra hækkana innan
ársins en sjáum á þessari stundu ekki ástæðu til að breyta
spá okkar frá því í apríl. Rétt er þó að hafa í huga að staðan
á hlutabréfamarkaði getur breyst hratt, bæði til hins betra og
til hins verra, og gengi einstakra félaga getur sveiflast mikið á
stuttum tíma.“
… TIL SNORRA SIGURÐSSONAR,
FRAMKVÆMDASTJÓRA SÓLAR HF.:
Sól, sem er þekkt fyrir að framleiða djús,
hefur keypt, Emmessís. Fólk kaupir oft djús
í sólinni, en hvar liggur mesta samlegðin
við þessi kaup?
Sameinum sterk vörumerki
„Sól ehf. og EMMESSÍS eru bæði matvælafram-
leiðslufyrirtæki sem selja þekkt og sterk vörumerki.
Fyrirtækin verða ekki sameinuð með neinum látum. Við höfum
sett saman verk- og tímaáætlun sem nær til eins árs þar sem
tekið er á þeim verkþáttum sem þarf að framkvæma og verður í
raun ekki lokið fyrr en eftir rúmlega 1.000 daga þegar starfsemin
öll sameinast undir einu þaki í nýju verksmiðjuhúsi. Samlegð fyr-
irtækjanna getur orðið veruleg ef vel tekst til og
hægt að nefna samlegð á eftirfarandi sviðum:
vörustjórnun hráefna og umbúða, aukið innkaupa-
afl, verksmiðju- og framleiðslustjórnun, fjármálastjórn, bókhald
og almenn skrifstofuþjónusta, starfsmannamál, sala og dreifing
afurða, stjórnun markaðsstarfs og meiri auglýsingakraftur og
sýnileiki á markaði.“
��
��
�
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��