Frjáls verslun - 01.04.2007, Blaðsíða 60
60 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7
L A X V E I Ð I
Veiðifélagið Lax ehf. var stofnað árið 1996 um leigu Laxár í Kjós af erlendum veiðimönnum í samvinnu við hinn
kunna stangaveiðimann Ásgeir Heiðar. Árið
2000 kom enska fyrirtækið Shackleton, sem
var að hluta til í eigu ferðaskrifstofunnar
Frontiers, að leigunni og var með ána á leigu
fram til ársins 2003. Ásgeir Heiðar var stað-
arhaldari í Kjósinni á þeim árum.
Nýir eigendur, með Gísla Ásgeirsson og
Jóhannes Kristinsson í forsvari, komu að
félaginu árið 2004 og eftir að samstarf tókst
með þeim og feðgunum Jóni Þór Júlíussyni
og Júlíusi Jónssyni, sem starfræktu veiði-
félagið Hreggnasa ehf., voru öll árleigumál
þessara aðila sameinuð undir merkjum Lax
ehf. árið 2006.
Framkvæmdastjórar félagsins eru nú Jón
Þór Júlíusson og Gísli Ásgeirsson sem er
einnig formaður Veiðiklúbbsins Strengs sem
haft hefur Selá í Vopnafirði á leigu um
áratugaskeið.
Félagið er nú með mörg veiðisvæði á
leigu og nægir í því sambandi að nefna Laxá
í Kjós, Úlfarsá (Korpu), Grímsá í Borg-
arfirði, Gljúfurá í Húnavatnssýslu, sjóbirt-
ingsveiðiána Litlá í Kelduhverfi, Svalbarðsá
í Þistilfirði, Vesturdalsá í Vopnafirði, Sunnu-
dalsá í Vopnafirði og Stóru-Ármót í Hvítá í
Árnessýslu. Nýlega var einnig gengið frá leigu
Lax ehf. á Hafralónsá í Þistilfirði og Langá
á Mýrum og tekur félagið við rekstri beggja
ánna sumarið 2009.
„Við getum ekki kvartað undan við-
brögðum markaðarins. Við vorum búnir
að selja öll okkar laxveiðileyfi fyrir jól en
auðvitað er alltaf eitthvað um að menn geti
ekki nýtt leyfin og við því höfum við verið að
bregðast,“ segir Gísli, en þrátt fyrir gott gengi
í veiðileyfasölunni segir hann það tilfinningu
sína að eftirspurnin sé ekki alveg eins mikil
og í fyrra en þá varð reyndar algjör sprenging
á íslenskum veiðileyfamarkaði.
Sókn í ýmiss konar afþreyingu
hefur aukist
Hátt verð á laxveiðileyfum og miklar hækk-
anir undanfarin ár hafa vakið athygli en Gísli
og Jón Þór segja að ekkert annað en aukin
spurn eftir veiðileyfum skýri verðhækk-
anirnar.
„Ásóknin í laxveiði hefur aukist mikið
undanfarin ár og fjölmargir fá ekki þau leyfi
sem þeir óska eftir. Framboð og eftirspurn
ráða verðinu. Margt hefur áhrif í þessum
efnum. Efnahagur fólks hefur batnað og sókn
í ýmsa afþreyingu hefur aukist. Það nægir að
„Ásókn útlendinga hefur snarminnkað“
Gísli Ásgeirsson og Jón Þór Júlíusson eru framkvæmdastjórar hjá Laxi ehf.
LAX:
Gísli Ásgeirsson og Jón Þór Júlíusson, framkvæmdastjórar hjá Laxi ehf.