Frjáls verslun - 01.04.2007, Page 63
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7 63
L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R
voru því geirar eins og málmiðnaður, járnbrautir, vatnsveitur
og símafyrirtæki þjóðnýtt og þá einnig BP. Olíuvinnsla var
í örri þróun, BP leitaði olíu um allan heim, keypti upp fyr-
irtæki og tók að vinna olíu í Norðursjónum.
Forsenda þjóðnýtingar var að einkafyrirtæki gættu þess
ekki nægilega að fjárfesta, reksturinn væri
almennt óhagkvæmur og slík fyrirtæki gætu
ekki stækkað nóg. Þegar kom fram á 9. ára-
tuginn hafði þetta snúist við. Keith Joseph,
efnahagsráðunautur Margaret Thatchers,
hafði lesið hagspeki Chicago-skólans, áleit
breskt viðskiptalíf algjörlega staðnað og nú
þyrfti einmitt að einkavæða allt heila kerfið
til að tryggja fjárfestingar, hagkvæmni og
eflingu. Breska einkavæðingin fór á fulla
ferð og 1987 var BP að fullu einkavætt og
úr ríkiseign.
John Browne og BP Á þessum tíma hafði
John Browne nýlokið námi í Cambridge og var farinn að
vinna hjá BP þar sem faðir hans starfaði líka. John Browne
náði því að starfa hjá fyrirtækinu í 41 ár sem er sannarlega
að verða óvenjulangur tími. Starfsferill hans er líka af því
tagi sem varla þekkist lengur því hann byrjaði sem lærlingur
1966, vann sig síðan upp og áfram, varð framkvæmdastjóri
1991 og aðalforstjóri 1995.
Staða John Brownes í atvinnulífinu var fádæma sterk og
sama var með sambönd hans í stjórnmálaheiminum. Hann
var nátengdur bæði Tony Blair forsætisráðherra og ekki síður
Gordon Brown fjármálaráðherra sem tekur
við af Blair á næstunni. Hann var aðlaður
2001, á sæti í lávarðadeildinni, en hefur
ekki stundað setur þar.
Upphaflega stóð til að hann hætti á
næsta ári en fyrir nokkrum mánuðum var
tilkynnt að starfslokum hans yrði flýtt til
júlíloka til að liðka fyrir greiðri yfirtöku.
Óskilgreind merking þessarar yfirlýsingar
var álitin tengjast rannsókn í Bandaríkj-
unum á starfsemi BP í kjölfar slyssins sem
varð þar 2005 í olíuhreinsistöð BP. Fram að
slysinu benti allt til að saga BP og stjórnar
Brownes undanfarin ár væri ein samfelld
sigursaga.
Erfiðleikarnir höfðu hrannast upp fyrir og um árið 1990
en Browne þótti megna að snúa fyrirtækinu rækilega við.
Eins og önnur stórfyrirtæki var stefnt að því að stækka og
eflast, meðal annars með samruna við og yfirtöku á öflugum
Sagan snýst um mann
sem enskir fjölmiðlar
kalla Sólkónginn – og
um ungan mann sem
ratar úr blankheitum inn
í munaðarlíf þar sem
hann missir algjörlega
fótanna, eiginlega sagan
um Öskubusku sem
lendir aftur í öskustónni.
John Browne ásamt einkaritara sínum, Anji Hunter, fyrrum ritara Blairs.