Frjáls verslun - 01.04.2007, Page 83
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7 83
„Það er ánægjulegt að sjá
hve almennur áhugi hefur
vaxið á golfíþróttinni,“ segir
Jón H. Karlsson, forstjóri
Flügger. „Aðstaðan er öll
að batna til æfinga og mun
batna enn frekar, einkum
yngri kynslóð golfara til heilla.
Brautryðjandinn, Birgir Leifur,
gefur gott fordæmi og ég trúi
því að innan 10 ára verðum
við með þrjá til fjóra leik-
menn sem spila að jafnaði á
Evróputúrnum.“
Jón byrjaði að spila golf
árið 1981 og spilar hann
að jafnaði tvisvar í viku yfir
sumartímann. „Ástæðan var
aðallega sú að góður vinur
minn hafði þá stundað íþrótt-
ina um skeið og lýsingar hans
vöktu áhuga okkar, nokkurra
yngri handboltafélaga hans, á
að prófa.“
Jón segir að golfið sé
heillandi íþrótt sem kalli á að
menn geri alltaf betur næst.
„Það er endalaust hægt að
leita fullkomnunar án þess
þó að eiga möguleika á að
ná henni. Þá skemmir ekki
fyrir útiveran og skemmtileg
samvera með góðum félögum.
Einnig má nefna að mjög
skemmtilegt er að spila á
mótum og þá að kynnast
nýjum félögum sem lenda
með manni í leikhópi.“
Auður Björk Guðmundsdóttir:
Er í Útgerðar-
félagi Árdísar
Auður Björk Guðmundsdóttir.
„Veiðin veitir mér mikla ánægju og
það er frábær tilfinning að komast
úr amstri dagsins í höfuðborginni
og út í náttúruna.“
„Ég fór í mína fyrstu stangveiði fyrir um 10 árum en ég
fór þá með betri helmingnum í Langá,“ segir Auður Björk
Guðmundsdóttir, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs VÍS og
varaformaður Félags viðskipta- og hagfræðinga.
Auður Björk byrjaði síðan að stunda stangveiðina markvisst
fyrir um fimm árum. Hún segir að á meðal þess sem heilli sig
við veiðina séu náin tengsl við náttúruna. „Það er fátt yndislegra
en að standa úti í góðri á í góðu veðri og það er gaman að finna
spennuna sem fylgir því þegar fiskurinn bítur á. Veiðin veitir mér
mikla ánægju og það er frábær tilfinning að komast úr amstri
dagsins í höfuðborginni og út í náttúruna.“
Auður Björk veiddi stærsta laxinn sinn til þessa í Þverá, í
Klapparfljótinu, í ágúst árið 2005 og var hann 10,5 pund.
Auður Björk hefur verið í Útgerðarfélagi Árdísar í fjögur ár en
um er að ræða félagsskap kvenna sem hafa áhuga á stangveiði.
Á vegum félagsins er farið í þrjár til fjórar veiðiferðir árlega og
þetta sumarið verður farið í Laxá í Laxárdal, Hítará og Þverá. Jón H. Karlsson. „Aðstaðan er öll að batna til æfinga og mun
batna enn frekar yngri kynslóð golfara til heilla.“
Jón H. Karlsson:
Heillandi íþrótt