Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 8
KYNNING8 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
P lastiðjan er leiðandi fyrirtæki á sviði framleiðslu, þróunar, hönnunar og sölu umbúða og sérhæfir sig í heildarlausnum tengdum umbúðum fyrir lítil, meðalstór og stór fyrirtæki. Fyrirtækið var stofnað árið 1973 og hefur verið rekið sem
fjölskyldufyrirtæki allar götur síðan. Í fyrstu
var fyrirtækið á Eyrarbakka en fluttist síðar
að Gagnheiði 17 á Selfossi árið 1983. Hjá
Plastiðjunni starfa tíu manns.
Burðarás fyrirtækisins hefur undanfarin
ár verið matvælaumbúðir og vörur fyrir
matvælaiðnað. Í upphafi var einnig framleitt
einangrunarplast, frauðbakkar og kassar en
framleiðslan hefur á síðustu árum að mestu
færst yfir í plastumbúðir fyrir gos, vatn, safa,
skyr og jógúrt og fleiri sambærilegar vörur.
Undanfarið hefur fyrirtækið verið að breikka framleiðslu sína, fengið
nýjar vélar og endurskipulagt húsnæði sitt með hagkvæmni í huga.
Axel Óli Ægisson, framkvæmdastjóri og Hans Adolf Hjartarson,
fjármálastjóri segja okkur nánar frá framtíðaráætlunum fyrirtækisins
og þeim nýjungum sem Plastiðjan býður viðskiptavinum sínum.
Fyrirtæki vilja innlenda framleiðslu
„Það sem við einbeitum okkur nú að er að auka vöruframboð okkar
á öllum sviðum. Við höfum þjónað mörgum fyrirtækjum í áranna rás
með ýmsan varning, meðal annars öllum vatnsframleiðendum með
drykkjarflöskur og erum að auka vægi okkar
á þeim markaði, auk þess sem við leggjum
áherslu á plastumbúðir fyrir neysluvarning á
borð við jógúrt og skyr. En í raun er okkur
ekkert óviðkomandi á þeim neyslumarkaði
sem við leggjum áherslu á og getum tekið allt
að okkur, höfum vélar og mannskap til þess.
Okkar helstu samkeppnisaðilar hafa fyrst
og fremst verið erlend fyrirtæki en í því
ástandi sem við búum við í dag í þjóðfélaginu
er leitað meira eftir innlendri framleiðslu,
svo framarlega sem hún sé samkeppnisfær í
gæðum og verði og hafa fyrirspurnir til okkar aukist mikið.
Hvað varðar útflutning þá höfum við enn ekki lagt áherslu á hann
en inni í okkar framtíðaráformum er útflutningur og er skemmtilegt
að geta sagt frá því að erlendur aðili kom til okkar fyrir stuttu að
eigin frumkvæði til að kanna fyrirtækið með það í huga að panta frá
Plastiðjan
Góður kostur fyrir
íslensk fyrirtæki
Plastiðjan er leiðandi fyrirtæki í
framleiðslu, þróun, hönnun og
sölu á umbúðarlausnum til við-
skiptavina og byggir starfsemi
sína á þekkingu, áreiðanleika og
áratugalangri reynslu í framleiðslu
umbúðarlausna.
Plastiðjan er búin fullkomnum vélabúnaði og tvær nýjar vélar bíða uppsetningar.