Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 31

Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 31
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 31 marorka var stofnað árið 2002 af VSÓ ráðgjöf og Jóni Ágústi en þá var að baki um sjö ára rannsóknar- og þróunarvinna við aðferðafræði til bættrar orkunýtingar skipa. Rannsóknir voru unnar í nánu samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann í Álaborg en vinnan leidd af doktorsverkefni Jóns Ágústs. Núna vinna um tuttugu manns við að þróa, framleiða, selja og markaðssetja vörur Marorku sem eru í notkun um allan heim og á liðnu hausti fékk Marorka Umhverfisverðlaun Norðurlanda. Fyrirtækið er í fremstu röð á sínu sviði. „Áhuginn á þessum málum kviknaði þegar ég varð vitni að mik- illi orkusóun og óþarfri mengun þar sem ég vann,“ segir Jón Ágúst. „Hagkvæm orkustýring getur þýtt gríðarlegan sparnað fyrir skip, skipafélög og útgerðir en þetta snýst líka um umhverfisvernd og ímynd.“ Jón Ágúst er ekki í nokkrum vafa um að kröfur um hagkvæmari rekstur, minni orkusóun, minni útblástur gróðurhúsalofttegunda og bætta ímynd í umhverfismálum auki spurn eftir vörum, ráðgjöf og þjónustu Marorku. „Við sjáum það reyndar nú þegar,“ segir Jón Ásgeir „Við erum um þessar mundir að ganga frá fleiri samningum við stór og viðurkennd fyrirtæki erlendis en við höfum gert áður.“ Jón Ágúst segir að sérstaða Marorku á þessu sviði sé að fyrirtækið bjóði upp á heildstæðar lausnir við orkustýringu. Í þessu felst ekki bara þróun og framleiðsla hugbúnaðar og vélbúnaðar heldur einnig ráðgjöf og fræðsla. Keppinautarnir hafa hins vegar fremur sinnt ein- stökum þáttum við orkustýringu. Tvö fimm ára tímabil liðin „Þróun sprotafyrirtækja tekur þrjú fimm ára tímabil,“ segir Jón Ágúst. Fyrsta tímabilið einkennist af rannsóknarvinnu og byrjun á vöruþróun. Næsta fimm ára tímabil einkennist af áframhaldandi vöruþróun og stöðlun ásamt framleiðslu á frumgerðum. Þriðja fimm ára tímabilið einkennist af markvissri markaðssetningu og sölu sem leiðir til vaxtar fyrirtækisins og verðmætasköpunar. „Marorka er einmitt á þessu þriðja stigi núna. Við erum að undirbúa vaxtarskeiðið,“ segir Jón Ágúst. Til þessa hefur fjármagn komið frá Tækniþróunarsjóði, AVS, Nýsköpunarsjóði og norrænum samkeppnissjóðum auk hlutafjár frá núverandi eigendum. „Þátttaka samkeppnissjóða hefur verið ein af meginforsendum fyrir árangrinum sem við höfum náð,“ segir Jón Ágúst. Hann reiknar með að sem fyrr verði vöxturinn fjármagnaður með tekjum af sölu en auk þess nýju hlutafé, vöruþróunarstyrkjum og lánum. Staðan í dag „Á meðan íslenska krónan var mjög sterk og þensla var í fjármálageiranum var mjög erfitt að byggja upp fyrirtækið,“ segir Jón Ágúst. „Bæði var rekstrarkostnaður of hár miðað við það sem var erlendis og erfitt var að fá fólk til starfa. Eftir gengishrunið er staðan önnur því mestallar tekjur Marorku eru í evrum og því hafa tekjur Marorku í íslenskum krónum hækkað mjög mikið. „Við höfum notað auknar tekjur til að stækka fyrirtækið og ráða fleira fólk,“ segir Jón Ágúst, sem telur að bjart sé framundan hjá Marorku, sérstaklega ef Íslendingar ákveða að byggja upp tæknigeirann með markvissum aðgerðum. Jón Ágúst segir að ein algengustu mistökin í uppbyggingu sprotafyrirtækja séu að horfa til of stutts tíma. Þetta sé ævistarf þar sem menn verði að leggja sig alla fram um að láta verkefnið ganga upp og horfa verði til minnst 15 ára þegar lagt er af stað. „Mikilvægt er að huga vel að því að fá með sér fólk með mikla reynslu af uppbyggingu fyrirtækja og sem hefur þolinmæði til að horfa til svo langs tíma,“ segir Jón Ágúst. „Við horfum björtum augum fram á veginn,“ segir hann, „og finnum til gleði yfir því að geta mætt í vinnuna á morgnana og lagt okkar á vogarskálarnar við að minnka orkusóun og útblástur gróðurhúsalofttegunda í heiminum.“ „hagkvæm orkustýring getur þýtt gríðarlegan sparnað fyrir skip, skipafélög og útgerðir en þetta snýst líka um umhverfisvernd og ímynd.“ Jón ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri marorku: vaxtarskeiðið er næst Starfsfólk Marorku í Borgartúni 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.