Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 92
92 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
Kvikmyndir
Martin Scorsese hafði ætlað að gera
kvikmynd um ævi Theodores Roosevelt,
The Rise of Theodore Roosevelt, forseta
Bandaríkjanna, á eftir The Departed og
var búinn að tryggja DiCaprio í hlutverk
Roosevelts en sú mynd fór í bið og hann sneri
sér að Shutter Island. Auk þessa hefur Scorsese
verið að vinna að heimildarmynd um George
Harrison, sem ekki hefur fengið nafn enn sem
komið er.
Shutter Island er sakamálamynd og sálrænn
tryllir sem örugglega á eftir að koma mörgum
á óvart. Skáldsagan er margslungin. Án þess
að fara nánar út í undirstöðurnar sögunnar er
óhætt að segja að væntanlegir áhorfendur ættu
að taka margt sem kemur fyrir sjónir þeirra
með fyrirvara, það er að segja ef Scorsese
heldur sig við skáldsöguna að öllu leyti. Ætla
má að Scorsese og handritshöfundurinn Laeta
Kalogridis hafi eitthvað átt við söguna til að
ná fram myndrænum áhrifum.
Morðingi hverfur sporlaust
Shutter Island gerist um miðbik sjötta ára-
tugarins. Lögreglumaðurinn Teddy Daniels
(Leonardo DiCaprio) er sendur ásamt aðstoð-
armanni sínum, Chuck (Mark Ruffalo) til
Shutter-eyju þar sem starfrækt er geðsjúkrahús
sem hýsir morðingja sem hafa verið úrskurðaðir
geðveikir. Kona ein, Rachel (Emily Mortimer),
sem hafði myrt fjölskyldu sína er horfin
sporlaust. Hún sást síðast í klefa sínum en
enginn getur útskýrt hvernig hún hvarf þaðan
þar sem engin sjánleg merki eru um að brotist
martin scorsese leikstýrir leonardo diCaprio í hrollvekjandi sakamálamynd sem
gerist á eyju þar sem eina byggingin er sjúkrahús sem hýsir geðveika glæpamenn.
LeitAð Að
MorðingjA
á AfSkekktri eYju
tExti:
hiLmar KarLsson
f
lestir geta verið sammála um
að The Departed (2006) sé ekki
með allra bestu kvikmyndum
Martin Scorsese. Hún er samt
eina kvikmyndin sem Scorsese
hefur fengið óskarsverðlaunin fyrir sem besti
leikstjóri. The Departed fékk þrenn önnur
óskarsverðlaun en ekki í stærstu flokkunum
svo leiða má líkur að því að ein ástæðan fyrir
verðlaununum til Scorsese hafi verið sú að
ekki var hægt að ganga fram hjá honum
eina ferðina enn. Scorsese hafði áður verið
tilnefndur fimm sinnum sem besti leikstjóri
án þess að fá verðlaunin.
Aldrei er að vita nema Scorsese fái enn
eina tilnefninguna á næsta ári fyrir Shutter
Island, en þegar er farið að tala um hana
sem fyrstu „óskarsmyndina” en hún verður
frumsýnd í byrjun október, meðal annars
hér á landi, og eru væntingar miklar eins
og oftast þegar Scorsese á í hlut. Eins og í
The Departed, The Aviator (2004) og Gangs
of New York (2002) er Leonardo DiCaprio
í aðalhlutverki í Shutter Island, sem gerð er
eftir skáldsögu Denis Lehane, sem skrifað
hefur meðal annars skáldsögurnar Mystic
River og Gone Baby Gone, sem báðar voru
kvikmyndaðar með góðum árangri.
sHuttEr islAnd:
Martin Scorsese og Leonardo DiCaprio við tökur á Shutter Island.
Mark Ruffalo og Leonardo
DiCaprio í hlutverkum
lögreglumannanna sem koma
til Shutter-eyju til að rannsaka
hvarf dæmds morðingja.