Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 61
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 61
kaffiáhuginn lifnar
„Áhugi minn á kaffi vaknaði fyrir alvöru
síðasta árið sem við vorum í Bandaríkjunum
eftir að ég kynntist kaffihúsaeiganda þar.
Ég spurði hvort hann væri til í að kenna
mér að brenna kaffi og það sem ég þyrfti
að vita til að getað opnað kaffihús á Íslandi.
Í framhaldi af því vann ég hjá honum í
tæpt ár, lærði að smakka og brenna kaffi og
blanda kaffidrykki áður en við fluttum heim.
Mamma er mjög góður kokkur og mikil
matarmenning er á heimili foreldra minna
og ég held að áhugi minn á kaffi og mat-
argerð almennt eigi rætur sínar þar.
Þegar við fluttum heim voru tiltölulega
fá kaffihús á Íslandi. Hugmyndin var upp-
haflega að opna kaffibrennslu og kaffihús
með fjölbreyttum kaffidrykkjum en það
kom fljótlega í ljós að slíkt myndi ekki ganga
upp.
Við ákváðum því að setja á stofn kaffi-
brennslu á efri hæðinni í trésmiðjunni hans
pabba í Njarðvíkum. Húsnæðið var 300
fermetra lager sem við breyttum í brennslu.
Því næst keyptum við kaffibrennsluofn og
kaffibaunir í Bandaríkjunum af manninum
sem ég hafði verið að vinna hjá og fluttum
inn. Næsta skref var að koma vörunni á
framfæri í verslunum eins og Hagkaupum og
Samkaupum og það gekk hægt og bítandi.
Í fyrstu skráðum við fyrirtækið undir
heitinu Sælkerakaffi, sem mér þykir alveg
skelfilegt í dag, en nafnið Kaffitár á vinkona
mín sem lagði það til. Í fyrstu gleymdum við
því en svo kom það upp aftur og við breytum
nafninu,“ segir Aðalheiður.
reka átta kaffihús
Fyrsta kaffihús Kaffitárs er stofnað í litlu
horni í Kringlunni árið 1994 en tveimur
árum seinna opnar Kaffitár í Bankastræti
og í dag rekur Kaffitár átta kaffihús, fimm í
Reykjavík og þrjú á Suðurnesjum.
Aðalheiður segir að frá fyrsta ári hafi
vöxtur fyrirtækisins verið 20 til 30% á ári.
„Persónulega tel ég að galdurinn á bak við
góðan rekstur felist í mikilli vinnu og því
að hafa gaman af því sem maður er að gera.
Maður verður einnig að vera opinn fyrir
nýjum tækifærum og kunna að notfæra sér
þau. Fyrstu árin unnum við langan vinnudag
aðalHEiður
Í kaFFitári
Aðalheiður Héðinsdóttir í Kaffitári.
kaffitár er rekið með
hugmyndafræði sem er
niðri á jörðinni og allar
ákvarðanir teknar að vel
ígrunduðu máli. Við höfum
aldrei anað að neinu og sú
stefna hefur borgað sig.
nafn: Aðalheiður Héðinsdóttir.
fædd: 23. apríl 1958.
Maki: eiríkur Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Vísindagarða HÍ og
forstöðumaður Viðskipta-
stofnunnar HÍ.
Börn: Andrea 29 ára, Héðinn 23
ára og Bergþóra 21 árs.
Starf: Forstjóri kaffitárs.
Aðalheiður situr í stjórn
eftirfarandi félaga:
Samtök iðnaðarins
Tækniskóli Íslands
ÁTVR – stjórnarformaður