Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 53
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 53
s t u ð u l l
var Michael Ballack, fótboltamaður úr
Chelsea og þjóðarhetja Þjóðverja.“
Hverju þakkið þið árangursríkt
samstarf?
Samúel: „Í þessum bransa verður alltaf að
þakka fólkinu sem er í kringum mann.
Eins og auglýsingastofunum sem treysta
okkur fyrir handritunum sínum. Það þarf
auðvitað að ávinna sér þetta traust og
það hefur okkur Gunna tekist á síðustu
árum og því höfum við fengið stór og góð
verkefni. Hlutverk leikstjórans er svo að
bæta einhverju við; finna nýja vinkla, sem
gerir það að verkum að handritið verður
enn betra. Við Gunni höfum oft komið að
handritum nánast fullgerðum eða komið
inn í ferlið þar sem sjálf hugmyndavinnan
á sér stað. Við höfum líka komið með
hugmyndir sjálfir.“
Gunnar: „Já, okkar góða samstarf er
kannski merkilegt í ljósi þess hversu ólíkir
við erum, meira að segja foreldrar okkar
botna ekkert í þessu samstarfi. Við erum
eins og svart og hvítt. Sem er líklega
einmitt góður grunnur. Við eigum sinn
vinahópinn hvor og ég bý úti á Nesi en
Samúel uppi í Mosfellsbæ, þannig að við
búum eins langt í burtu frá hvor öðrum og
mögulegt er!
Það er hugsanlega mesti kostur
samstarfsins hvað við erum ólíkir. Auk
þess þekkjumst við mjög vel og virðum
styrkleika hvor annars og því hefur níu ára
samstarf okkar verið mjög farsælt.“
Uppáhalds íslenska auglýsingin - sem
þið hafið ekki gert sjálfir?
Gunnar: „Góð ímynd frá Íslandi“ fyrir
Icelandair sem Lárus Jónsson leikstýrði.
Engin spurning, vildi að ég hefði gert hana
sjálfur.“
Samúel: „Auglýsingar eru jú börn síns tíma
en ég get nefnt eina uppáhalds sem er frá
sama leikstjóra, Lárusi, og var unnin fyrir
Símann – internet.“
Hvernig veljið þið fólk í hlutverk?
Samúel: „Við erum með „casting
director“, eins og það kallast, sem tekur
fólk í prufur og kemur með tillögur.
Við notumst mikið við fólk af götunni
og stundum einnig módel og leikara.
Útlendir kollegar okkar hafa veitt því
eftirtekt að fólkið í auglýsingunum okkar
er ekki með stífan, ýktan leikstíl, eins
og gjarnan er í amerískum auglýsingum,
heldur fremur afslappaðan. Það má
segja að það sé eitt af einkennum okkar
auglýsinga.“
Tvíeykið Samúel Bjarki leikstjóri og Gunnar Páll leikstjóri eiga stuttan en glæsilegan feril að baki í gerð tónlistarmyndbanda og auglýsinga.
margVErðlaunað
lEikstjóradúó