Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 36

Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 36
36 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 Forsíðu grein SPROTAFYRIRTÆKI fyrstu viðbrögð við lýs-ingu Arnar Haraldssonar á hugmyndinni að baki MindGames eru: Nei, þetta hlýtur að vera einhver vitleysa! Svona gerist ekki í alvöru. En samt: Það er víst hægt að slappa af með með því að hugsa hlýtt til farsímans síns. Hugarorka er til í raun og veru og hún er bæði mælanleg og nýt- anleg. Það er hægt að flytja hug- arorku úr heilanum og í rafknúið tæki. Innan taugavísindanna heitir þetta ElectroEncephalo Graphy – skammstafað EEG – og er raforkan sem flytur taugaboð um heilann. Við þetta er ekkert dularfullt þótt það sé skrýtið. En hugmyndin að baki sprotafyrirtækinu MindGames í Reykjavík er að nýta þessa orku við að stýra tölvuleikjum í farsíma, leikjum sem hafa það að markmiði að þjálfa notand- ann í að auka einbeitingu og draga úr streitu. Gömul tækni „Hugmynd okkar er að búa til tölvuleik þar sem framgang- urinn í leiknum ræðst af hug- arástandi notandans,“ segir Örn Haraldsson, tölvunarfræðingur og jógakennari. „Leikirnir verða af ýmsum toga en eiga það sam- eiginlegt að aukin slökun og einbeiting gefur jákvæðan fram- gang í leiknum.“ Til að leika EEG-tölvuleik á farsíma þarf auk símans sér- stakan heilabylgjuskynjara. Það er tæki sem lítur út eins og venjuleg heyrnartól auk þess sem armur liggur út á ennið. Örn segir að þessi tækni sé ekki ný. Menn hafi lengi vitað um heilabylgjurnar og heilabylgjuskynjarar hafa verið á markaði um nokkurt skeið. Það sem er nýtt núna er að skynj- ararnir eru orðnir það ódýrir að hver sem er getur keypt þá. Verð á skynjurum stefnir í að verða á bilinu fimm til 10 þúsund krónur og núna eru æ fleiri framleiðendur tölvuleikja að uppgötva þessa aðferð við að stjórna tölvuleikjunum. Því má búast við að verð lækki enn með meiri fjöldaframleiðslu. Engan æsing Til þessa hefur EEG-tæknin verið notuð til að stýra leikjum í venjulegum borðtölvum. Hjá MindGames er þessi tækni notuð til að stýra farsíma- leikjum sem hægt er að grípa í til að draga úr spennu og auka einbeitingu. „Við byggjum leikina þannig upp að stress og æsingur dugar ekki til að komast áfram,“ segir Örn. „Ef hugurinn er í jafnvægi og einbeiting góð fær þátttak- andinn umbun fyrir það. Sem dæmi má nefna kappakstursleik þar sem allt situr fast ef menn eru stressaðir.“ Örn segir að nýmælin hjá MindGames felist í að leikirnir þjálfi færni notenda í að draga úr streitu og auka einbeitingu, með aðstoð farsíma. Í fyrstu eru leikirnir hannaðir fyrir iPhone en síðar er ætlunin að hanna fyrir fleiri gerðir síma. Þverfaglegur hópur Fyrirtækið er svo að segja nýtt. Fyrstu hugmyndir urðu til í janúar á þessu ári en skipuleg vinna hófst ekki fyrr en í maí í vor. Enn er þetta því alger sproti og núna er verið að endurskoða fyrstu viðskiptaáætlun, sækja um styrki og leggja drög að því að koma leikjum á markað eftir áramótin. Stofnendur MindGames mynda fjölbreyttan hóp með mismunandi bakgrunn og þekkingu. Auk Arnar eru það Deepa Lyengar, bandarísk kona af indverskum uppruna, sérfræðingur í taugavísindum frá MIT-tækniháskólanum í Bandaríkjunum; Hannes Högni Vilhjálmsson, lektor við Háskól- ann í Reykjavík og sérfræðingur í gerð tölvuleikja til kennslu; Hjalti Kolbeinsson hugbúnaðar- verkfræðingur og grafísku hönn- uðirnir Ragnar Már Nikulásson og Katla Rós Völudóttir. Enn á sparipeningunum Til þessa hefur fyrirtækið að mestu verið rekið með framlagi eigenda sinna og launalausri vinnu þeirra. „Við erum komin að því marki að verða að búa til fyr- irtæki með fólk á launum,“ segir Örn. „Það er hægt að vinna launalaust eða með öðrum verkum í einhvern tíma og sleppa þá að kaupa sér fellihýsi í staðinn. Svo kemur að því að fá þarf fjármagn inn í fyrirtækið til að geta sett kraft í þróun og markaðssetningu.“ Og það liggur á því allt ger- ist hratt í tölvuheiminum. Þau hjá MindGames eru ekki eina fólkið í heiminum sem fæst við gerð leikja fyrir farsíma. Það er hörð samkeppni á þessum markaði og mikilvægt að skapa sér sérstöðu. ,„Enn sem komið er getum við ekki talað um samkeppni í gerð svona EEG-leikja fyrir farsíma en hún á eftir að koma fram,“ segir Örn Haraldsson. Örn Haraldsson, einn aðstandenda leikjasprotans MindGames: ,,Hugmynd okkar er að búa til tölvu- leiki þar sem framgangurinn í leiknum ræðst af hugarástandi notandans.“ HugsA fAllegA til fArsímAns Deepa, Arnar og Örn hjá MindGames.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.