Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 10
10 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 Fyrst þetta ... „Orðið atvinnuleitandi kom frá atvinnulausum einstaklingi sem ég kalla atvinnuleitanda númer eitt,“ segir Jóhanna. „Þetta orð höfðar til nýrra tækifæra meðan á atvinnuleysi stendur og að mínu mati skiptir það miklu máli.“ Atvinnuleysi hefur mikil og margvísleg áhrif og Jóhanna segir nauðsynlegt að fólk forðist að loka sig af við þær aðstæður. „Þegar fólk missir vinnuna upplifir það margskonar tilfinningar, t.d. reiði og sorg. Þá er hætta á að einstaklingurinn festist í ákveðnu fari doða og vonleysis og því er mikilvægt að viðkomandi finni sér einhvers konar afþreyingu eða hlutverk. Það er líka vert að benda á mikilvægi verkalýðsfélaga á tímum atvinnuleysis. Það er nauðsynlegt fyrir atvinnuleit- endur að halda áfram að greiða félagsgjöld til þess að missa ekki mikilvæg réttindi sem þeir hafa áunnið sér.“ uppbygging mikilvæg Jóhanna segir mikilvægt að virkja einstaklinginn meðan á atvinnuleysi stendur og jafnvel að byrja á því á uppsagnartím- anum. „Fólk á að líta á atvinnuleysi sem tækifæri og nýta tímann til þess að auka þekkingu sína og byggja sig upp. Það skiptir miklu máli þegar sótt er um annað starf að hægt sé að sýna atvinnuveitendum fram á að umsækjandinn hafi verið að gera eitthvað uppbyggilegt. Við höfum ýmislegt í boði fyrir félagsmenn og teljum okkur hafa náð góðum árangri. Í dag eru 2795 VR-ingar sagðir atvinnuleitendur en sú tala er í rauninni ekki rétt því stór hluti þeirra er á 50% launum og fær atvinnuleysisbætur á móti.“ Atvinnuskapandi tengslanet Jóhanna leggur áherslu á að verkalýðsfélög séu ekki atvinnumiðlun. „Aðalviðfangsefni okkar er alls kyns námskeiðahald. Við erum m.a. í samstarfi við Nýttu kraftinn og starfsemin þar hefur reynst félagsmönnum okkar vel. Þar er unnið metnaðarfullt starf og stór hluti þeirra sem sóttu fyrstu námskeiðin hefur fengið vinnu. Lögð er áhersla á ný tengslanet, fólk úr mismunandi atvinnugreinum kemur saman og hver og einn fær sinn eigin mentor. Með þessu móti skap- ast atvinnuskapandi tengingar. Við erum líka í samstarfi við Hlutverkasetrið á Laugavegi 26 þar sem boðið er upp á fjöl- breytt námskeið, allt frá jóga til rússnesku. Þar hafa félagmenn okkar jafnvel fengið hlutverk og það auðveldar þeim að finna aftur tilgang með lífinu. Einnig niðurgreiðum við líkamsræktar- kort til félagsmanna, en öll hreyfing bætir líðan okkar,“ segir Jóhanna að lokum. Að vera atvinnuleitandi felur í sér tækifæri Jóhanna Elísabet Vilhelmsdóttir, verkefnastjóri hjá VR: Jóhanna Elísabet Vilhelmsdóttir er verkefnastjóri hjá VR og hjálpar atvinnuleitandi fólki að byggja sig upp. Hugaðu að heilsu og líðan starfsmanna Vinnuvernd ehf. aðstoðar fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á sviði heilsuverndar, vinnuverndar og heilsueflingar VINNUVERND vellíðan í vinnu www.vinnuvernd.is | s.578 0800 | vinnuvernd@vinnuvernd.is Heilsuvernd VinnuverndHeilsuefling Trúnaðarlæknir Heilbrigðisþjónustuver Læknisskoðanir Sálfræðiþjónusta Bólusetningar Áhættumat Vinnustaðaúttekt Líkamsbeiting Félags-og andlegur aðbúnaður Vinnuvistfræðileg ráðgjöf Heilsuefling á vinnustað Heilsufarsmælingar Heilsufarsmat Ráðgjöf um næringu Álags og streitustjórnun C M Y CM MY CY CMY K AuglVinnuvernd1.pdf 2/17/09 5:07:37 PM Atvinnuleitandi er betra orð og jákvæðara en atvinnulaus.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.