Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
m á r G u ð m u n d S S o n , n ý r S E ð l A b A n k A S t j ó r i , í n æ r m y n d
„Þetta var 16. aldar hús, orðið nokkuð lúið og hafði hlotið hæfilega
mikið viðhald,“ segir Einar um húskostinn. Þarna varð smám saman
til dálítil félagsmiðstöð hóps stúdenta, þar á meðal Íslendinganna.
„Við vorum á þessum tíma hættir að deila um pólitík þótt hvor
hefði sína skoðun,“ segir Einar. Vinátta þeirra hefur staðið föstum
fótum til þessa dags en þó pólitík beri oftast á góma þegar þeir
hittast, þá er hún hætt að verða þeim að alvöru rifrildisefni, eins og
var fyrrmeir.
„Ég held að með tíð og tíma höfum við báðir færst inn að miðjunni
og svo erum við ekki eins vígdjarfir nú og áður,“ segir Einar.
ákaflega hæfur hagfræðingur
„Í dag er Már ákaflega hæfur hagfræðingur og ég held ekki að
bernskuskoðanir hans hafi þar nokkur áhrif,“ segir Einar. Hann
hefur ekki trú á að kenningar Karls Marx hafi mikil áhrif á störf
seðlabankastjóra.
Einar lýsir Má sem góðum félaga, ljúfum í umgengni en
ákveðnum.
„Hann er viss í sinni sök, efast sjaldan um að hann hafi á réttu að
standa en er alltaf til í að rökræða,“ segir Einar. „Hann hefur enga
minnimáttarkennd gagnvart sjálfum sér og það skiptir ekki síður
máli í núverandi stöðu en fagið. Hann þorir að halda fram sínum
sjónarmiðum og standa við þau.“
Már er einnig að sögn kunningja hans fyrirferðarmikill og honum
liggur hátt rómur.
„Mér skilst að hann hafi einhvern tíma lagt stund á lúðrablástur
og leikið í lúðrasveit. En hann þarf yfirleitt ekkert hjálpartæki svo að
heyrist í honum. Það heyrist vel hvar hann er. Honum liggur þannig
rómur,“ segir Stefán Jóhann.
„Hann er kjarnyrtur og hress og til í spjall þegar tími leyfir.
Hann hefur gaman af að tala og talar þá hátt og skýrt, en er þó ekki
langorður,“ segir Stefán Jóhann.
„Már er nákvæmnismaður og gerir miklar kröfur um fagleg
vinnubrögð,“ segir Stefán Jóhann. „Ég geri ráð fyrir að margir hafi
fengið skjöl sín með athugasemdum til baka frá honum. Ég þekki það
af eigin raun.“
of góður með sig?
Ragnar Stefánsson tekur undir þessa lýsingu á Má, segir að hann sé
góður félagi, einlægur og með mikið sjálfstraust. Og upptekinn af
fræðunum.
„Hann er kannski einum of góður með sig,“ segir Ragnar. „Ég benti
honum einu sinni á það og hann sagði þá að hann hefði vel efni á því.
En hann var í sjálfu sér aldrei einstrengingslegur sem kommúnisti en
samt upptekinn af hinni fræðilegu hlið.“
Aðspurður nefnir Ragnar að það hafi vissulega verið rætt í
Fylkingunni hvort umbylting þjóðfélagsins, sem var lokamarkmiðið,
yrði blóðug eða ekki. Trotskíistar voru allir á því að byltingin myndi
verða alþjóðleg.
„Við töldum að alþýða manna ætti að keyra fram þessa
þjóðfélagsbyltingu án þess að hún yrði blóðug þótt okkur væri líka
ljóst að afleiðingarnar gætu verið blóðugar,“ segir Ragnar og vísar þar
til reynslu frá Spáni og Chile.
Ragnar telur ekki endilega að viðhorf Más frá Fylkingartímanum
hafi breyst við hagfræðinámið. Enn síður reiknar hann með að
marxisminn hái Má við störf í Seðlabankanum.
„Ég geri ráð fyrir að út frá hans sjónarmiði reyni hann að gera
undirstöður efnahagslífsins stöðugri. Því fari hann í þetta starf,“ segir
Ragnar.
Og að mati Ragnars ætti núverandi fjármálakreppa í heiminum
síst að koma marxistum á óvart. Kenning Karls Marx um kreppur
auðvaldsins er lykilatriði í þessum fræðum. Samkvæmt Marx lýkur
síðustu kreppunni með alheimsbyltingu öreiganna. Er þetta síðasta
kreppan?
Fræðin fyrst
Már hefur skrifað mikið um hagfræðileg efni. Á ritaskrá hans eru ekki
færri en 37 lengri og styttri ritsmíðar um hagfræðileg efni.
Utan vinnu og utan fræða sinna hefur Már að sögn hægar um
sig. Hann er þó áhugamaður um útivist og gönguferðir í félagi við
Elsu Þorkelsdóttur konu sína. Með í för er jafnan heimilishundur-
inn Mozart, svört skepna af ættum amerískra cocker-spaniela.
Már sækir líka sund, les bækur, hlustar á tónlist og annað það sem
hressir sál og líkama eftir átök vinnunnar. Þá voru þau Elsa kona hans
byrjuð að iðka golf í Basel.
Skólafélagar frá námsárunum í Englandi hafa einnig með sér
óformleg samtök – Essex-félagið. Starf í þessu félagi hefur þó orðið
minna en upphaflega var ætlað vegna anna félaganna við önnur störf
og flutninga milli landa.
skólabróðir:
„Í dag er Már ákaflega hæfur hagfræðingur og ég held ekki að
bernskuskoðanir hans hafi þar nokkur áhrif.“
Einar Kr. Guðfinnsson þingmaður um hagfræðinginn
Má Guðmundsson.
Flokksbróðir:
„Hann er kannski einum of góður með sig. Ég benti honum
einu sinni á það og hann sagði þá að hann hefði vel efni á
því.“
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur um
byltingarsinnann Má Guðmundsson.
starfsbróðir:
„Mér skilst að hann hafi einhvern tíma lagt stund á
lúðrablástur og leikið í lúðrasveit. en hann þarf yfirleitt ekkert
hjálpartæki svo að heyrist í honum.“
Stefán Jóhann Stefánsson hagfræðingur í
Seðlabankanum um yfirmanninn Má Guðmundsson.
Sagt uM MÁ guÐMuNdSSON:
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
70
37
0
8
/2
0
0
9
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta þess í
hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og ánægðara starfsfólki.
HLUNNINDI SEM FYRIRTÆKJASAMNINGUR VEITIR:
• Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki.
• Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla daga ársins.
• Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða Icelandair.
• Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?
ECONOMY COMFORT
Meiri þægindi, góð vinnuaðstaða,
rafmagnsinnstunga fyrir tölvu.