Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 52

Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 k V i k m y n d a g E r ð Hvernig hófst ferillinn? Samúel: „Leikstjórnaráhugi minn kviknaði í Versló en ég var í vídeónefnd þar í tvö ár. Í kjölfarið fór ég að vinna við eftirvinnslu á sjónvarpsþáttum hjá Birni Brynjólfssyni hjá Hugsjón og fór síðan sjálfur að gera tónlistarmyndbönd. Þá var Gunni Palli einmitt „free-lance“ klippari hjá fyrirtækinu og þar lágu leiðir okkar fyrst saman. Ég fékk Gunna til að klippa tónlistarmyndband sem gekk mjög vel og varð það vinsælt að Skífan fékk mig til að gera myndband fyrir hljómsveitina Sálina hans Jóns míns. Við Gunni ákváðum að vinna myndbandið í sameiningu. Upp frá þessu fórum við síðan að vinna saman að öllum verkefnum. Við gerðum heilan helling af tónlistarmyndböndum, t.d. með Stuðmönnum, Skítamóral og fleiri hljómsveitum. Vendipunkturinn var þó myndband fyrir Sálina sem hét „Á nýjum stað“ en það hlaut Edduverðlaunin fyrir besta myndband ársins. Þá fóru auglýsingastofurnar að sýna okkur áhuga og biðja okkur fyrir verkefni og við hösluðum okkur völl á þeim markaði hægt og rólega. Árið 2004 komum við hingað upp í Saga Film og höfum verið hér síðan.“ Gunnar: „Við Samúel komum úr ólíkum áttum; hann var í Versló en ég kem úr MH þar sem ég var í vídeónefnd. Þaðan lá leið mín til Íslensku kvikmyndasamsteypunnar þar sem ég var svokallaður „runner“ eitt sumarið við vinnslu á kvikmyndinni Perlur og svín og einnig danskrar myndar. Síðan fékk ég ýmis verkefni við að klippa myndir og vann m.a. í hálft ár með Hrafni Gunnlaugssyni. Ég klippti heimildamyndina Popp í Reykjavík auk þess sem ég klippti mikið af „trailerum“ fyrir Kvikmyndasamsteypuna. Í kjölfarið færði ég mig yfir í sjónvarpið og flutti mig þá til Hugsjónar þar sem ég klippti t.d. nokkra þætti af Íslenskum sakamálum og Íslenska kjötsúpu (Johnny National).“ Þið hafið hlotið fjöldann allan af verðlaunum og útnefningum? Samúel: „Já, við höfum tvisvar sinnum fengið Edduverðlaun fyrir tónlistarmyndbönd, fyrrgreint myndband með Sálinni og svo „Crazy Bastard“ með Quarashi, Sveppa, Audda og Pétri, sem var meira flipp en nokkuð annað, en þótti svona athyglisvert. Við höfum hlotið nokkrar slíkar tilnefningar á Eddunni og í þrígang á FM hátíðinni. Fyrsta auglýsingaherferðin sem fólk man líklega eftir gerðum við fyrir sjónvarpsstöðina Sýn og var með Eiði Smára og Sveppa í aðalhlutverkum. Hún var valin bæði sjónvarpsauglýsing ársins og herferð ársins 2004 á Ímarkhátíðinni það árið. Þá áttum við jafnframt Almannaheilla auglýsingu ársins sem var fyrir V-daginn og kallaðist „Ertu vinur í raun?“ Þetta ár (2004) unnum við þrennu eða fullt hús! Það var gríðarlega gaman, sérstaklega þar sem við vorum nýir í bransanum. Síðan höfum við fengið ýmsar tilnefningar og í ár áttum við metár, með alls 15 tilnefningar. Þar af voru fjórar af fimm í flokknum sjónvarpsauglýsing ársins en í fyrra hrepptum við verðlaun fyrir bestu sjónvarpsauglýsinguna, Jesúsauglýsinguna svokölluðu, sem eflaust er umdeildasta auglýsing þessa áratugar.“ Gunnar: „Það er dálítið merkilegt að auglýsingin sem við gerðum fyrir Vínbúðina, „Láttu ekki vín breyta þér í svín“ er orðin að eins konar stuttmynd. Hún hefur farið víða um heiminn og verið tilnefnd nær alls staðar. Hún er núna tilnefnd til Cresta-verðlaunanna. Hún vann líka á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor en það var í fyrsta skipti í þrjú ár sem við ákváðum að fara ekki til Cannes! Það er líka gaman að segja frá því að við gerðum auglýsingu fyrir Samsung í Bretlandi sem var valin ein af 50 bestu sjónvarpsauglýsingunum í þar í landi í ár. Hún hlaut að auki verðlaun í New York fyrir mánuði síðan, svokölluð Telly Award, en við vorum einmitt að fá styttuna heim, sem er hönnuð af sama fyrirtæki og gerði Óskarsstyttuna frægu. Aðalleikarinn í henni Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson hafa unnið saman sem leikstjóratvíeyki í nokkur ár og hafa engir íslenskir leikstjórar fengið jafnmargar tilnefningar og verðlaun fyrir tónlistarmyndbönd og auglýsingar og þeir félagar. margVErðlaunað lEikstjóradúó TexTi: hrund hauksdóttir • Mynd: geir ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.