Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
forsíðu grein SPrOtaFYrIrtÆkI
hvað þarf til þess að byggja upp Ísland? Hvað þarf til að byggja upp ný fyrirtæki? Þýski heimspekingurinn Hegel sagði eitthvað á þá leið „að ekkert stórkostlegt verður til
án ástríðu“. Það má til sanns vegar færa þar sem oft er það trúin og
viljinn til þess að gera eitthvað sem hefur úrslitaáhrif á að þetta eitt-
hvað verði að veruleika. Þetta er mikilvæg lexía. Frumkvöðlar eins
og Michael Dell og Anita Roddick hafa talað um þennan mikilvæga
kraft, eldinn sem er drifkraftur árangurs.
Mikið hefur verið skrifað og skrafað um mikilvægi ástríðu í upp-
byggingu fyrirtækja en tiltölulega lítið er til af rannsóknum sem hægt
er að styðjast við. Nýleg fræðigrein eftir Cardon og félaga (2009) gerir
þó ágæta tilraun til þess að skilgreina um hvað þetta tal um ástríðu
snýst. Ástríða frumkvöðulsins felst í sterkum jákvæðum tilfinningum
sem hafa merkingu og tilgang fyrir frumkvöðulinn og þau verk sem
hann vinnur. Ástríðan hefur áhrif hvort sem er í hugmyndavinnunni,
uppbyggingunni eða vaxtarferlinu í gegnum áræði, þátttöku og frum-
legar lausnir vandamála.
Ástríðan er oft X-faktorinn sem gerir það að verkum að bæði
frumkvöðullinn og þeir sem fylgja honum eru tilbúnir til þess að
gera eitthvað stórkostlegt að veruleika. Margir frumkvöðlar hafa
þessa ástríðu og hún smitar út frá sér. Ástríðan tryggir ekki árangur
en eykur líkurnar á að uppbyggingin verði árangursrík. Það er mik-
ilvægt að þessi ástríða sé til staðar þegar þörf er fyrir uppbyggingu,
sérstaklega þegar á að byggja eitthvað úr litlu sem engu. Það er oft
ástríðan sem brúar bilið á milli stöðu og stefnu, núverandi ástands og
framtíðarsýnar. Þá er ekki þar með sagt að fólk eigi ekki að hafa neitt
raunveruleikaskyn, það er ekki síður mikilvægt en það er þetta jafn-
vægi á milli þess að sjá lengra en núverandi staða gefur tilefni til og að
átta sig á aðstæðum sem skiptir sköpum. Oft er það ástríðan sem knýr
fólk yfir næstu hæð þar sem aðstæður eru allt aðrar en í þeim öldudal
sem fólk var fyrir. Um þetta snýst ástríða fyrir uppbyggingu.
Það er tómt mál að tala um uppbyggingu þegar það eina sem
fólk hugsar um er að viðhalda lífsstíl 2007. Eins sorglegt og það er
þá þurfa æði margir að byrja aftur á byrjunarreit. Nýtt upphaf krefst
ástríðu fyrir uppbyggingu. En breytingar fela í sér tækifæri og það
eru frumkvöðlarnir sem þurfa að gera tækifærin að fyrirtækjum sem
skapa atvinnu og verðmæti. Þeir sjá glasið hálffullt en ekki hálftómt.
Tímaramminn er fimm til tíu ár. Ávinningurinn er áhugaverðara
Ísland en nokkru sinni fyrr, þar sem atvinnulífið blómstrar með
fjölbreyttum tækifærum en drukknar ekki ruðningsáhrifum risafyrir-
tækja, þar sem lífið gengur út á að skapa verðmæti en ekki innantóm-
ar bólur og þar sem drifkrafturinn er ástríðan fyrir uppbyggingu en
ekki efnishyggjan.
texti: dr. eyþór ívar jónsson
ÁstrÍða fyrir
uppbyggingu
Frumkvöðlarnir sjá glasið hálffullt en ekki hálftómt.
Þýski heimspekingurinn Hegel sagði eitthvað á þá leið „að ekkert stórkostlegt verður til
án ástríðu“. Það má til sanns vegar færa þar sem oft er það trúin og viljinn til þess að
gera eitthvað sem hefur úrslitaáhrif.
Hvað ÞaRF til að byggJa Upp Ísland?