Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 29
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 29
stjörnu-Oddi er dæmi um sprota- fyrirtæki sem náð hefur að hasla sér völl á sínu sviði. Það er framleiðsla
nákvæmra mælitækja við hafrannsóknir
og matvælaframleiðslu. Og hjá Stjörnu-
Odda er stefnt á vöxt en hann verður
tæpast á Íslandi: Markaðurinn er of lítill og
gjaldmiðillinn ónýtur.
Stjörnu-Oddi hefur verið til í nær aldar-
fjórðung, fyrst sem ráðgjafafyrirtæki
eiganda síns en síðan sem framleiðandi
ýmissa mælitækja til hafrannsókna og
matvælaframleiðslu. Upphafsmaðurinn,
Sigmar Guðbjörnsson, segist hafa alist
upp við sögur af fiskum og hátterni
þeirra. Og hann segir að áhugamálin séu
fiskur og tækni! Þetta sameinar hann í
frumkvöðlastarfi sínu hjá Stjörnu-Odda.
Sigmar kom heim frá Danmörku
árið 1993 eftir nám og síðar vinnu við
að þróa farsímastaðlana NMT og GSM.
Hann segir að sig hafi langað að gera
eitthvað spennandi og kom heim að eigin
sögn sprengfullur af hugmyndum og trú
á tækni – og ekki alveg reynslulaus af
frumkvöðlavinnu.
Fyrstu fimm árin fóru í þróunarvinnu
við að búa til mælitæki við fiski- og
hafrannsóknir.
„Hafrannsóknir eru grein þar sem menn
eru vanir að vinna við púsl þar sem marga
kubba vantar. Það er spennandi,“ segir
Sigmar.
Fiskurinn fyrstur
Árið 1999 var ráðist í að endurhanna
alla framleiðsluna og hefja undirbúning
fyrir að koma fullbúnum mælitækjum á
markað. Mælum frá Stjörnu-Odda er til
dæmis komið fyrir á eða í fiskunum og þau
safna upplýsingum um ferðir fisksins og
hegðun. Við endurheimtur er hægt að lesa
upplýsingarnar sem safnast hafa.
Hjá Stjörnu-Odda er einnig að finna
tæki sem gerir fiskifræðingum kleift að
merkja fisk neðansjávar í sínum náttúrulegu
aðstæðum.
Hin síðari árin hafa einnig
verið framleidd hjá Stjörnu-Odda
fjölbreytt mælitæki til notkunar við
matvælaframleiðslu, fiskeldi, í borholum
og jafnvel í kjarnorkuverum. Það nýjasta er
tæki til að fylgjast með
áhrifum lyfja á dýr. Tæki
til lyfjaþróunar er nýr
markaður fyrir Stjörnu-
Odda.
Sigmar segir að um
liðin aldamót hafi til-
raunatímabilinu verið
lokið og rekstrartíminn
hjá Stjörnu-Odda hafist.
Upphaflega vann hann einn hjá fyrirtækinu
og fjármagnaði tilraunirnar með eigin fé auk
þess að leggja fram ómælda vinnu. Síðan
fjölgaði starfsfólki. Átta voru í vinnu þegar
eiginleg framleiðsla hófst en nú eru 15 hjá
fyrirtækinu auk tveggja ráðgjafa.
Nýsköpunarsjóður er hluthafi en annars
hefur Sigmar nýtt fé sem hann fékk við sölu
á sínum hlut í símafyrirtækinu í Danmörku.
Síðustu fimm ár hefur fyrirtækið verið rekið
með hagnaði.
Komið að mörkunum innanlands
Sigmar segir að góðir möguleikar séu á
vexti í fyrirtækinu en tæpast á Íslandi. Það
skiptir miklu máli að stutt sé í notendur
ef þróa á og framleiða afurðir í samstarfi,
vinnuumhverfi er annars gott á Íslandi.
„Því miður hafa rannsóknarstofnanir
verið í fjársvelti og hafa einfaldlega ekki efni
á að kaupa afurðirnar,ekki einu sinni til að
fylgjast með fiskinum
í hafinu,“ segir Sigmar.
Því megi búast við
að vöxturinn verði að
mestum hluta erlendis
þar sem markaðurinn er.
Aðstæður eru að
sumu leyti hagstæðari
á Íslandi en var fyrir
hrun bankanna. Það er
auðveldara að fá menntað fólk í vinnu og
tekjur í íslenskum krónum aukast. Þó er
mjög erfitt að reka fyrirtæki og gera áætlanir
án stöðugs gjaldmiðils.
„Tiltrú á krónuna var farin löngu fyrir
hrun og fyrirtækið ekki háð henni. Nær
allar tekjur okkar eru í erlendri mynt,“ segir
Sigmar.
„Við rekstur sprotafyrirtækis verða
menn að gera strax í upphafi áætlun um
hvert skuli stefna og endurskoða áætlunina
reglulega,“ segir Sigmar. „Það er gott að afla
sér reynslu af rekstri áður en byrjað er en
það eru líka mörg dæmi um fólk sem komið
hefur beint frá prófborðinu og byggt upp
fyrirtæki. Þarna er ekkert algilt annað en að
það kostar mikla vinnu að koma sprotanum
á legg.“
„hafrannsóknir eru
grein þar sem menn
eru vanir að vinna við
púsl þar sem marga
kubba vantar. Það er
spennandi.“
Sigmar guðbjörnsson, stofnandi stjörnu-odda:
allur vöxtur erlendis
Sigmar Guðbjörnsson, stofnandi og aðaleigandi Stjörnu-Odda.