Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
m A n n A r á ð n i n G A r
rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja hefur verið nokkuð sér-stakt á undanförnum árum. Það sem einkenndi ástandið var að atvinnuleysi var mjög lítið. Mjög lítið atvinnuleysi veldur því að atvinnumarkaðurinn verður seljendamarkaður þar
sem starfsfólk getur gengið inn og út án nokkurra teljandi vandræða.
Fyrirtæki í leit að starfsmanni hafa ekki haft úr miklu að velja og því
oft þurft að taka því sem að þeim var rétt. Stundum gekk það vel og
stundum ekki eins vel.
Þessi þörf fyrir að fylla í stöður hefur verið drifkrafturinn við ráðn-
ingar frekar en að leggja áherslu á að velja inn rétta fólkið. Aðallega
vegna þess að það hefur ekki verið úr miklu að velja.
Þessi staða er nú gjörbreytt og við erum komin inn í tímabil þar
sem íslenski atvinnumarkaðurinn er orðinn að kaupendamarkaði. Á
kaupendamarkaði hefur kaupandinn meira val, hann getur skoðað
sig um, leitað að og fundið, einstakling sem raunverulega upp-
fyllir kröfur starfsins. Einstaklingi sem fellur að þeirri menningu og
venjum sem eru innan fyrirtækisins, einstaklingi sem er líklegur til að
þróast áfram innan þess.
Virði þess að velja hinn eina rétta liggur í augum uppi þrátt fyrir
að stundum sé erfitt að festa á það krónur og aura. Þessi munur
kemur fram í framlegð hvers starfsmanns. Rannsóknir1 hafa sýnt að
þeir starfsmenn sem eru í lægstu 15% séu virði launanna sinna, hæstu
15% séu virði 2,5x launanna sinna og þau 70% sem eru í miðjunni
séu virði um það bil 2x launanna sinna. Það liggur þannig ljóst fyrir
að verulegir hagsmunir eru tengdir því að vanda valið.
Við val á starfsfólki er gott að horfa til þriggja þátta.
Geta: Til að sinna hverju starfi þarf starfsmaður að hafa til að bera
ákveðna grunngetu. Hvort sem hún felst í að kunna að reikna út úr
flóknum formúlum eða geta staflað kössum skynsamlega á bretti.
Höfundur þessarar greinar getur þannig bæði reiknað út úr flóknum
formúlum og staflað kössum á bretti. Það er um leið ljóst að stærð-
fræðingur og reyndur löndunarmaður geta leyst þessi verkefni hraðar
og sennilega betur.
Hæfni: Það er spurning hvort umsækjandi uppfylli þær kröfur
sem eru gerðar til hans í ákveðnu starfi. Starfi sem er leyst af hendi
innan óáþreifanlegs en þó vel mótaðs ramma sem samanstendur af
umhverfi, fólki og ferlum. Löndunarmaðurinn getur verið frábær í
að stafla kössum, gert það hratt og örugglega. Ef hann aftur á móti
á erfitt með að fylgja reglum og fyrirmælum þá er hann ekki góður
löndunarmaður. Hann er hættulegur sjálfum sér og félögum sínum.
Gildi: Svo við höldum okkur við löndunarmanninn þá gæti hann
verið að vinna hjá fyrirtæki sem leggur minni áherslu á hraða og meiri
áherslu á gæði. Ef löndunarmaðurinn okkar er þannig þenkjandi að
fjöldi bretta á klukkutíma eru mikilvægari en að vel sé raðað og það
slæðist engir ufsakassar með þorskinum þá er ekki víst að hann sé hjá
réttu fyrirtæki.
Við val á starfsfólki er gott að horfa til þriggja þátta; getu, hæfni og gildi. Öll fyrirtæki vilja
starfsfólk sem sýnir frumkvæði, er gott í mannlegum samskiptum og hefur þjónustulund.
texti: hinrik sigurður jóhannesson • MyNd: geir ólaFsson
aÐ RÁÐa StaRFSMeNN:
Hinn Eini SAnni?