Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 80
80 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
K
YN
N
iN
G
Þann 3. október 2008 var undirritaður
starfssamningur um Hátækni- og
sprotavettvang sem miðar að því að efla
uppbyggingu sprotafyrirtækja á Íslandi.
Iðnaðar-, mennta-, fjármála- og
utanríkisráðuneyti standa að samningnum
ásamt fernum félagasamtökum; Samtökum
sprotafyrirtækja, líftæknifyrirtækja og
upplýsingatæknifyrirtækja og Samtökum
iðnaðarins.
Á fjölmennum fundi sprota- og
nýsköpunarfyrirtækja – NÚNA er
tækifærið, mánuði síðar, tilkynnti Össur
Skarphéðinsson að ríkisstjórnin hefði
samþykkt að atvinnuleysistryggingasjóður
myndi koma til móts við sprota- og
nýsköpunarfyrirtæki sem ráða starfsfólk
af atvinnuleysisskrá. Sjóðurinn greiði
fyrirtækinu atvinnuleysisbætur viðkomandi
starfsmanns í allt að 12 mánuði gegn því
að fyrirtækin greiði síðan bæturnar til
starfsmannsins og leggi sjálf jafnháa fjárhæð
á móti.
Að sögn Davíðs Lúðvíkssonar,
forstöðumanns stefnumót-
unar og nýsköpunar hjá
Samtökum iðnaðarins og
stjórnarformanns Hátækni-
og sprotavettvangs, er unnið
að fjölmörgum verkefnum
innan vettvangsins og Davíð
segir mesta áherslu lagða á
fjögur verkefni.
Góður árangur í samstarfi
við stjórnvöld
„Þessi verkefni eru uppbyggingaferli
hátækni- og sprotafyrirtækja, sem er lang-
tímaverkefni þar sem skoðuð er staða og
þróun sprotafyrirtækja á Íslandi; skattalegir
hvatar til fjárfestinga í hátækni- og sprota-
fyrirtækjum; endurgreiðsla rannsókna- og
þróunarkostnaðar þar sem skoðað er að taka
upp endurgreiðslukerfi vegna rannsókna- og
þróunarkostnaðar fyrirtækja að norskri fyr-
irmynd, og efling Tækniþró-
unarsjóðs – verkefnastyrkir,
frumherja- og brúarstyrkir.
Með því að auka framlög til
sjóðsins um t.d. 500–1000
m.kr. á næsta ári, væri rík-
issjóður að fjárfesta í mjög
vænlegum verkefnum sem
gætu skilað margfaldri þeirri
fjárhæð í verðmætasköpun á
tiltölulega stuttum tíma.
Gott samstarf hefur náðst við stjórnvöld,
ráðuneyti og samtök sem að vettvanginum
koma. Þannig vinnur t.d. lögfræðingateymi
iðnaðar - og fjármálaráðuneyta núna að
því að semja lagafrumvörp um tvö af
framangreindum áhersluverkefnum.“
Samtök iðnaðarins
NÚNA er tækifærið
„Það góða samstarf
sem náðst hefur við
stjórnvöld og milli
þeirra ráðuneyta og
samtaka sem að
vettvanginum koma
vegur þungt.“
Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins og stjórnarformaður Hátækni- og sprotavett-
vangs: Unnið er að fjölmörgum verkefnum innan vettvangsins.