Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 41
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 41
af frumkvöðlastarfi. Samhoud fjallaði um nauðsyn þess að þjóðin
þjappaði sér saman um ákveðin gildi en Taylor deildi með gestum
þeim lærdómi sem hann hefur dregið af áralöngu og árangursríku
frumkvöðlastarfi. Auk þeirra flutti Hermann Guðmundsson, forstjóri
N1, erindi um þau tækifæri sem felast í framtíð Íslands. Guðjón Már
Guðjónsson var fundarstjóri, hann fjallaði um nauðsyn á framtíð-
arsýn og hélt samantekt á fundinum.
Hermann segir að um fjögurhundruð manns hafi mætt á mál-
þingið og að hann telji að flestir hafi farið af þinginu með bjartar
vonir um hvað framtíðin gæti borið í skauti sér. „Málþingið var
hugsað sem kveikja að því að leysa úr læðingi einhverja krafta sem
fólk ber í brjósti og í framhaldi af henni var svo ákveðið að fara á stað
með hugmyndasamkeppnina.“
Vegleg verðlaun
Fyrstu verðlaun fyrir bestu viðskiptahugmyndina eru ein milljón
króna, önnur verðlaun fimmhundruð þúsund krónur og þriðju
verðlaun tvöhundruð og fimmtíu þúsund krónur. Vinningshöfum
stendur einnig til boða að fá fagráðgjöf sérfræðinga við að þróa hug-
myndina áfram. Þá mun N1 hjálpa til við að skapa viðskiptatengsl
milli eiganda vinningshugmynda og mögulegra samstarfsaðila, s.s.
fjárfesta og þróunaraðila.
Dómnefnd skipa Hermann Guðmundsson forstjóri N1, Guðjón
Már Guðjónsson hugmyndaráðuneytismaður, Jeff Taylor, stofnandi
monster.com, Ragnheiður H. Magnúsdóttir frumkvöðull og Margrét
Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu.
Árni segir að þrátt fyrir að um sé að ræða peningaverðlaun fyrir
bestu hugmyndirnar sé ekki síður mikilvægt að líta til þess að N1
ætlar að aðstoða vinningshafana við að koma hugmyndunum á fram-
færi. „Aðalmálið er hugmyndirnar en ekki umbúðirnar utan um þær.
Hugmyndirnar þurfa ekki á nokkurn hátt að vera tengdar eða falla að
starfsemi N1 og við vitum ekki fyrirfram hvað kemur út úr keppn-
inni en vonum að þær verði sem fjölbreyttastar. Ef ákveðin hugmynd
tengist starfsemi okkar munum við að sjálfsögðu athuga möguleika
á að vinna með viðkomandi að framgangi hennar, en ef ekki ætlum
við að aðstoða þátttakendur við að komast í samband við rétta aðila,
hvort sem það er við að stofna fyrirtæki eða til vöruþróunar.“
Allar góðar hugmyndir verða studdar
„Við ætlum okkur einnig að tengja saman hagsmunaaðila sem gætu
nýtt sér hugmyndirnar,“ segir Hermann. „Með þessu á ég við að N1
mun nýta tengslanet sitt til að koma á samstarfi milli hugmynda-
smiðanna og þeirra sem gætu hrint hugmyndinni í framkvæmd.
Einnig teljum við skynsamlegt að tengja saman aðila með svipaðar
hugmyndir ef slíkt kemur upp á.
Hugmyndin er sú að þrjár innsendar hugmyndir fái formlega
viðurkenningu en ef það verður offramboð á góðum hugmyndum
munum við ekki henda þeim í ruslið. Við áskiljum okkur fullan rétt
til að verðlauna fleiri hugmyndir sérstaklega ef við teljum þær verð-
skulda slíkt. Annaðhvort með því að vekja sérstaka athygli á þeim og
koma þeim í vinnslu eða með því að bæta við verðlaunum. Ein leið
sem hefur verið rædd er að halda opinn kynningarfund þar sem þeir
hugmyndasmiðir sem skara fram úr geti kynnt hugmyndir sínar fyrir
hugsanlegum fjárfestum. Þetta er vel þekkt form erlendis og ekkert
því til fyrirstöðu að framkvæma slíkt hér,“ segir Hermann.
Frestur til 30. september
Að lokum segist Hermann þeirrar skoðunar að atvinnulífið eigi að
stuðla meira að nýsköpun en það hafi gert í gegnum tíðina en ekki
ýta ábyrgðinni yfir á stjórnvöld og menntakerfið eins og gert hefur
verið. „Stór og burðug fyrirtæki eiga að taka samfélagslega ábyrgð og
ein leið til þess er að stuðla að nýsköpun sem gerir atvinnulífinu gagn
með því að auka veltuna í hagkerfinu.“
Frestur til að leggja inn hugmyndir er til 30. september og að sögn
Hermanns og Árna er stefnt að því að dómnefndin vinni hratt og skili
áliti sínu um miðjan október. Nánari upplýsingar um hugmyndasam-
keppnina er að finna á www.n1.is/start.
Jeff Taylor, bandarískur frumkvöðull og stofnandi monster.com, Hermann Guðmundsson forstjóri N1,
Salem Samhoud, hollenskur frumkvöðull og Guðjón Már Guðjónsson hugmyndaráðuneytismaður.