Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 89
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 89
haustið er tíminn
Ráðgjafahópur á skrifstofu félagsins í Hafnarfirði.
og margt annað. Einnig hefur verið ráðinn
safnafræðingur til Gagnavörslunnar til að
þróa áfram hvernig best sé að varðveita lista-
verk svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið leggur
mikla áherslu á að vinna með fagaðilum á
markaðnum og í því sambandi hefur verið
leitað til Landsbókasafns
og Þjóðskjalasafnsins auk
Þjóðminjasafnsins en
hjá öllum þessum stofn-
unum starfa margir góðir
sérfræðingar með mikla
reynslu.
Mikil sérfræðiþekking
og öflugt hugbúnaðarsvið
Lykillinn að velgengni Gagnavörslunnar
er öflugur eigenda- og starfsmannahópur.
Í því sambandi má nefna að Nýsköp-
unarsjóður keypti hlut í fyrirtækinu nú
í sumar sem styrkir það enn frekar. Hjá
Gagnavörslunni starfa 30 sérfræðingar með
víðtæka menntun og mikla starfsreynslu,
meðal annars á sviði tölvunar-, bókasafns-
og upplýsingafræða, rafmagnsverkfræði,
viðskiptafræði, auk sérfræðinga í verk-
efnastjórnun, safna- og sagnfræði.
„Öflugt hugbúnaðarsvið fyrirtækisins
hefur þróað nýtt upp-
lýsingastýringakerfi
Core2 ECM (Enterprice
Content Management)
með nýrri tæknilegri
nálgun á stýringu upp-
lýsinga,“ segir Brynja.
Core2 leggur áhersla á notendavænt og lipurt
viðmót. Notandinn tengist kerfinu yfir vef-
inn hvar sem er í öruggu umhverfi. Hér eru
farnar alveg nýjar leiðir í hugbúnaðargerð
hvað varðar þróun, kostnað og rekstur.
„Okkar lausnir,“ segir Brynja „eru unnar
í nánu samstarfi við notendur.“ Core2 er
byggt á opnum og frjálsum hugbúnaði sem
er í samræmi við stefnu stjórnvalda. Gögnin
Gagnavarslan veitir
heildarlausn til
hagræðingar og aukinnar
skilvirkni.
Hluti af starfsmönnum hugbúnaðarsviðs á þróunarfundi.
sem geymd eru hjá Gagnavörslunni eru því
ekki í læstu heldur opnu formi. Kostnaður
er umtalsvert lægri heldur en tíðkast um
sambærileg kerfi. „Rétt er að bæta því við
að við seljum þjónustu en ekki hugbúnað,“
segir Brynja „sem er ný hugsun á mark-
aðnum. Enginn stofnkostnaður fylgir þjón-
ustunni heldur einungis þekktur kostnaður
í hverjum mánuði og er rekstur kerfisins
og afritun innifalin í upphæðinni. Core²
hentar mjög vel fyrir allar atvinnugreinar og
auðvelt er að laga það sérstaklega að þörfum
hvers viðskiptavinar. Sem dæmi um þetta
hefur kerfið verið séraðlagað að þörfum
skiptastjóra, slitastjórna og annarra með
svipaðar þarfir eins og lögfræðistofur.“
Þá hefur Gagnavarslan verið að sérhæfa
sig í ýmsum hugbúnaðarlausnum sem bygg-
jast á opnum og frjálsum hugbúnaði til að
bjóða viðskiptavinum fleiri valkosti til að
spara í kostnaði vegna hugbúnaðarleyfa.
Hugarfarsbreyting í kjölfar hrunsins
Brynja segir að hugarfarsbreyting hafi átt
sér stað í kjölfar bankahrunsins. „Mikilvægt
er að gögn séu geymd á öruggan og rekj-
anlegan hátt (bæði rafræn gögn og papp-
írsskjöl) og að hægt sé að finna þau fljótt
og auðveldlega.“ Brynja bætir við að fjár-
málastofnanir, slitastjórnir og skilanefndir
bankanna hafi meðal annars fengið ráðgjöf
og notið þjónustu Gagnavörslunnar. Stór
þáttur í þjónustunni er ráðgjöf sérfræð-
inga á sviði upplýsingastýringa við að koma
rafrænum upplýsingum og skjölum í ferli.
Fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum
upp á að sjá alveg um alla skjalastýringu og
einnig að það vinni náið með skjalastjórum
þeirra. Við þetta má bæta að Gagnavarslan
hefur byggt upp stórt og öflugt teymi sem
hefur sérhæft sig í skönnun og skráningu.
Auk þess sem fyrirtækið býður upp á ráðgjöf
í verkefnastjórn og ráðgjöf í ferlagreiningu
til að einfalda ferla og gera þá skilvirkari.
Gagnavarslan er þakklát fyrir góðar mót-
tökur en náðst hefur að skapa mörg ný störf
í nýsköpun og nú er einmitt verið að ráða
fleiri nýja starfsmenn til að efla starfsemina
enn frekar.