Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 93

Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 93
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 8 93 uppljóstrarinn steven soderbergh situr ekki auðum höndum frekar en fyrri daginn og sendir frá sér tvær kvikmyndir á árinu. Þegar hefur The Girlfriend Experience verið sýnd á ýmsum kvik- myndahátíðum en mun ekki fara í almenna dreifingu í Bandaríkjunum. um er að ræða ódýra kvikmynd sem soderbergh gerði á fáeinum vikum og fjallar um unga gleðikonu sem býr á manhattan. myndin hefur meðal ann- ars vakið athygli fyrir það að í aðalhlut- verkinu er tvítug klámstjarna, sasha Grey, sem þrátt fyrir ungan aldur hefur leikið í hátt á annað hundrað klámmyndum. Öllu viðameiri er The Informant, sem frumsýnd verður í lok september. sú kvikmynd er byggð á sönnum atburðum og á margt sam- eiginlegt með þeirri ágætu mynd The Insider. Í myndinni leikur matt damon háttsettan mann innan landbúnaðar- fyrirtækis sem safnar upplýsingum um verðsvindl og afhendir FBi, sem vill fá hann til að vitna gegn fyrirtækinu. The Informant verður tekin til sýningar hér á landi í lok október. Matt Damon í hlutverki uppljóstrarans. Menntun Hin danska lone scherfig, sem þekkt- ust er fyrir hina vinsælu Ítalska fyrir byrjendur, frumsýndi nýjustu kvikmynd sína, An Education, á sundance- kvikmyndahátíðinni og fékk hún áhorfendaverðlaunin. Þetta er fyrsta enskumælandi kvikmynd scherfig og gerð í Englandi. nick Hornby skrifar handritið og byggir það á minningum blaðakonunnar lynn Barbie. An Education gerist í upphafi sjöunda áratugarins og segir frá sautján ára stúlku, Jenny, sem lendir í ástarsam- bandi við veraldarvanan mann, david, sem er mun eldri en hún. Hún hrífst af lífsstíl hans og allar áætlanir um að sækja um háskóla í Oxford verða að engu. Í hlutverki Jenny er ung og lítt þekkt leikkona, Carey mulligan, sem hefur leikið í nokkrum þekktum breskum sjónvarpsseríum og er Jenny fyrsta aðalhlutverk hennar í kvikmynd. Í hlutverki davids er Peter saarsgaard. Aðrir leikarar eru Emma thompson, Alfred molina, rosamunda Pike og Olivia Williams. Vegurinn rithöfundurinn Cormac mcCarthy, sem skrifaði skáldsöguna No Country For Old Men, sem Coen-bræður gerðu úr eftirminnilega óskarsverðlaunakvik- mynd, er höfundur The Road en fyrir hana fékk hann Pulitzer-verðlaunin eft- irsóttu fyrir tveimur árum. um miðjan október verður frumsýnd kvikmynda- útgáfa af The Road. Gerist myndin eftir að jörðin hefur verið lögð í rúst, aldrei er gefið upp af hverju. Faðir og sonur eru á suðurleið til að forðast kaldan, endalausan vetur. Á leið þeirra þurfa þeir að forðast flóttamenn, skipulagðar hersveitir og mannætur. leikstjóri er John Hillcoat, ástralskur leikstjóri sem ekki hefur leikstýrt áður utan heimalandsins. Í hlutverkum feðganna eru viggo mortensen og kodi smit-mcPhee. Í minni hlutverkum eru Charlize theron, Guy Pearce, robert duvall og molly Parker. Viggo Mortensen í hlutverki sínu í The Road. hafi verið út úr klefanum. Teddy hefur persónulegan áhuga á geðveikum morðingjum þar sem eiginkona hans féll fyrir hendi eins slíks. Þegar til eyjarinnar er komið rekast þeir félagar fljótt á þagnarmúr sem virðist einkenna bæði starfsmenn og sjúklinga. Stutt er frá stríðslokum og ljóst er að starfandi yfirlæknir á sér skuggalega fortíð. Teddy fer fljótt að halda að hann hafi verið sendur til eyjarinnar vegna fortíðar sinnar þegar læknar fá áhuga á heilsufari hans. Honum gengur samt vel í rannsókninni en fær neitun þegar hann óskar eftir aðgangi að skjölum sjúkrahússins. Þegar fellibylur dynur á eyjunni fara undarlegir hlutir að gerast sem gera það að verkum að Teddy einangrast, trúir ekki félaga sínum og fer að lokum að efast um minni sitt. Auk fyrrnefndra leikara eru fleiri góðir leikarar í myndinni og ber þar fyrst að nefna Max Von Sydow í hlutverki yfirlæknisins, Ben Kingsley sem stjórnar geðsjúkrahúsinu og Michele Williams sem leikur látna eiginkonu Teddys, en hann er oftar en ekki með hugann við hana. Mörg járn í eldinum Nokkuð er síðan Paramount kvikmyndafyrirtækið keypti réttinn á skáldsögu Dennis Lehane og þar á bæ höfðu menn fyrst í huga Wolfgang Pedersen til að leikstýra myndinni og var Robert Downey jr. þá orðaður við myndina. Ekkert varð úr því og um tíma leit út fyrir að David Fincher myndi leikstýra Shutter Island og þá með Brad Pitt í aðalhlutverki. Þegar þeir félagar sáu sér ekki fært að gera myndina vegna anna við önnur verkefni var leitað til Scorsese sem sá þarna gott tækifæri fyrir sig og Leonardo DiCaprio þar sem ljóst var að myndin um Theodore Roosevelt yrði sett í biðstöðu. Um þessar mundir er Martin Scorsese með mörg járn í eldinum. Áður hefur verið minnst á heimildarmyndina um George Harrison og nú er áætlað að The Rise of Theodore Roosevelt verði gerð 2011. Þá er undirbúningur hafinn á Sinatra, sem Scorsese mun leikstýra. Miklar umræður hafa verið um hver muni fara með hlutverk stórsöngvarans en ekkert er ákveðið í þeim efnum. Ekki kæmi þó á óvart ef Leonardo DiCaprio yrði fyrir valinu ef hann vill á annað borð bregða sér í hlutverkið, en í myndinni verður áhersla lögð á tengsl Franks Sinatra við mafíuna. Áður en kemur að þessum tveimur kvikmyndum mun Scorsese að öllum líkindum leikstýra The Silence sem fjallar um tvo presta sem ferðast til Japans á átjándu öld til að boða kristna trú og lenda í miklum hremmingum. BíóFrÉTTIr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.