Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 62

Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 n æ r m y n d a F a ð a l H E i ð i H é ð i n s d ó t t u r Í k a F F i t á r i en í dag er reksturinn orðinn mjög góður og fyrirtækið stendur vel. Því er skipt í tvennt, annars vegar eru kaffihúsin og hins vegar heildsalan sem selur kaffi til verslana og fyrirtækja. Á síðastliðnu ári veltum við um 710 milljónum sem skiptist nokkuð jafnt milli beggja hlutanna. Mitt aðalstarf í dag er einhvers konar leiðtogahlutverk en ég læt aðra að mestu um daglegan rekstur enda með alveg frábært starfsfólk og stjórnendateymi. Hjá mér fer mikill tími í ferðalög, oft- ast við kaffikaup en einnig sem dómari við að velja uppskerur ársins í ýmsum löndum. Kaffi sem við notum kemur aðallega frá Mið- og Suður-Amer- íku en mest frá Níkaragva. Þegar fyrirtækið komst upp í þá stærð að geta keypt og flutt inn tuttugu feta gáma með nítján tonnum af kaffibaunum beint frá kaffiræktunarlandinu breyttust allar forsendur og við gátum farið að versla beint við framleiðendur. Í dag flytjum við inn þrettán slíka gáma á ári beint frá bændum auk þess sem við kaupum nokkra gáma í gegnum milliliði,“ segir Aðalheiður. Helsta nýjungin súpa og brauð „Helsta nýjungin hjá okkur undanfarið er að við leggjum meiri áherslu á mat í kaffihúsunum. Í upphafi skilgreindum við okkur eingöngu sem kaffifyrirtæki og ætluðum að halda okkur við það. Við höfum nokkrum sinnum í gegnum tíðina gert skoðanakannanir meðal viðskiptavina okkar og alltaf komið vel út hvað varðar kaffið en síður þegar kom að mat. Í framhaldi af því ákváðum við að þróa hádegisverðarlínu og léttar veitingar sem hafa mælst mjög vel fyrir. Í dag starfa hjá okkur tíu konur í Njarðvík sem eru á vöktum við að smyrja brauð sem við seljum á kaffihúsunum,“ segir Aðalheiður. líður vel við eldavélina Aðalheiður segir að auk reksturs Kaffitárs hafi hún áhuga á ferða- lögum og útivist. „Fjölskyldan á litla sumarhöll á hjólum sem við notum mikið til ferðalaga innanlands. Maðurinn minn er með golf- dellu en ég spila svona meira með í góðra vina hópi. Ég hef einnig mikinn áhuga á matargerð og er góður kokkur og líður best við eldavélina og fjölskyldunni þykir það ekkert leiðinlegt.“ Þess má geta að Aðalheiður var Íslandsmeist- ari í keppninni Lagt á borð, á landsmóti Ungmenna- félags Íslands sem haldið var í Keflavík árið 1984. allar ákvarðanir vel ígrundaðar „Rekstur fyrirtækis eins og Kaffitárs byggir á því að leita uppi tækifæri en eins og staðan er í dag er ekkert ákveðið í hendi sem við ætlum að S Ag T U M A ð AL H ei ð i H éð in S d ó TT U R : Hildur Petersen, stjórnarformaður Pfaff og Kaffitárs: til í allt með stuttum fyrirvara „Við Aðalheiður höfum þekkst í um áratug og deilum ríkri ást á öllu sem tengist mat. ég man eftir því þegar hún sagði mér að hún ætti það til að tapa sér í eldhúsinu, þá skildi ég alveg hvaða andrúmsloft hún var að tala um. Aðalheiður og eiríkur maður hennar eru miklir gestgjafar og mér finnst frábært að sjá hvað þau reiða fram glæsilega máltíð með lít- illi fyrirhöfn en lykillinn að því er falinn í þeim eiginleika þeirra að kunna að láta fólk vinna með sér. gestirnir fá umsvifalaust einhver verkefni, bretta upp ermar og vinna til jafns við þau að matarund- irbúningnum. Það þýðir ekkert fyrir jafnvel lunkna endurskoðendur að ætla að lýsa yfir getuleysi sínu á þessu sviði því þá eru þeim fundin verkefni við hæfi, svo sem barþjónustan. Og auðvitað eru þetta alltaf skemmtilegustu stundir boðsins. ég hef veitt því sérstaka athygli hvað Aðalheiður nýtur mikillar virðingar hvar sem hún kemur og held ég það sé fyrst og fremst vegna þess hversu blátt áfram og trúverðug hún er. Svo hefur hún þann eiginleika sem ég met mikils en það er að vera til í allt eða allavega flest og það með stuttum fyrirvara. Á 17. júní síðastliðinn hringdi ég í hana snemma að morgni og spurði hvort þau hjónin væru tilbúin að klífa Helgafell í Hafnarfirði með okkur eftir hádegi og svarið var auðvitað já. Og við komnar á toppinn nokkrum tímum síðar. Mér hefur líka fundist unun að því að fylgjast með hversu natin hún er í rekstri kaffitárs. Því það þarf mikinn þroska hjá frumkvöðlum eins og Aðalheiði að koma fyrirtækinu upp á næsta stall þar sem fagstjórnendur eru teknir við daglegum rekstri en skapa sér jafnframt rými sem ásýnd og þungamiðja rekstursins. Henni hefur tekist að varðveita heimilislegt andrúmsloft í fyrirtækinu auk þess sem henni er eðlislægt að hafa alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi. eitt frábært dæmi um það var á síðustu Ljósanótt þegar Aðalheiður sló upp balli í höfuðstöðvum kaffitárs í njarðvíkum og réð danskennara til að kenna öllu starfsfólkinu latneska dansa í vikunni fyrir ballið.“ Þorsteinn Bjarnason, innkaupastjóri Olís og svili: óhrædd við að prófa nýja hluti Helstu kostir Aðalheiðar er þeir að hún á auðvelt með að fá fólk með sér í að fram- kvæma hlutina. Hún hefur sannfæringarkraft og trú á verkefninu á þann hátt að þeir sem eru í kringum hana hrífast með. Þar sem ég hef þekkt hana í 32 ár eða svo hefur maður orðið var við þessa framtakssemi. Þannig var að þegar hún bjó í Madison í Wisconsin í Bandaríkjunum og eiríkur eiginmaður hennar var við nám varð hún að finna sér eitthvað að gera á meðan. Hún fékk því ættingja og vini til að koma með fullar töskur af lopa og svo sat hún við og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.