Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 37

Frjáls verslun - 01.07.2009, Blaðsíða 37
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 37 Hugmyndin að baki fatahönnun hjá E-label er að sameina fjóra kosti. Fötin eiga að vera þægileg, endingargóð, í tísku og um leið sígild. Áður hefur ekki verið framleidd fatalína sem sameinar alla þessa fjóra eiginleika. E-label er aðeins rúmlega tveggja ára gamall sproti. Fyrsti vísirinn kom upp á bjartsýnis- árinu 2007 og síðan hefur gengið á ýmsu bæði hjá fyr- irtækinu og efnahag heimsins. Stofnendur og eigendur eru þær Ásta Kristjánsdóttir og Heba Hallgrímsdóttir. Ásta stofnaði áður Eskimo og var meðal annars á vegum þeirra í Mumbai – eða Bombay – á Indlandi. Þar byrjaði E-label að þróast og nú eru fötin frá fyr- irtækinu saumuð þar og efnin eru indversk. Það er raunar sérstætt að fyr- irtæki sem framleiðir tískuvörur notar aðeins sex afbrigði af fataefni og allt í sama lit. Enn sem komið er eru fötin frá E- label bara svört og áhersla er lögð á að hafa öll ferli einföld og milliliði sem fæsta. Einfalt en flott „Hugmynd okkar er að höfða til nútímakvenna á ferð og flugi og reyna að einfalda daglegt líf þeirra,“ segir Ásta. „Fötin eiga að vera einföld og handhæg og allt á að passa saman. Þetta á að vera endingargott en samt ódýrt og fallegt.“ „Við leggjum líka áherslu á að ekki eru allar konur eins vaxnar og þær þurfa ekki endi- lega að vera ungar til að vera glæsilegar. Lífinu er ekki lokið um sextugt,“ segir Ásta. Elsta fyrirsætan hjá E-label er því 65 ára og sú yngsta 17 ára. Í fyrstu hafa fötin verið seld í verslun í Reykjavík og í Net- verslun E-label. Ætlunin er hins vegar að ná lengra og nú er búið að stofna útibú í London. Heba sér um það og fötin hafa verið tekin inn í verslanir Top Shop í Englandi. Markmiðið er að ná enn lengra og fara inná Japans- og Ameríkumarkaðinn á næstu tveimur árum. Ásta segir að fjölga verði litum yfir sumartím- ann fyrir erlendan markað. En svört föt ganga vel á Íslandi allan ársins hring. Erlendar tekjur mikilvægar „Fyrir okkur er mikilvægt að fá erlendar tekjur,“ segir Ásta. Hrun íslensku bankanna og íslensku krónunnar hefur haft veruleg áhrif á starfsemina, bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt. „Það getur verið erfitt að reka fyrirtæki þegar maður veit aldrei hvert gengi krónunnar er,“ segir Ásta. Traust á Íslandi og íslenskum fyrirtækjum beið líka alvarlegan hnekki í hruninu í fyrrahaust. Það verða stjórn- endur fyrir- tækja eins og E-label áþreif- anlega varir við. „Íslend- ingum er ekki treyst lengur. Fyrirgreiðsla fæst ekki eins og var og þeir sem áður veittu greiðslufresti vilja nú stað- greiðslu,“ segir Ásta. „Þetta er ein ástæða þess að fyrirtækið er nú að hluta rekið frá London.“ Um leið hafa innflutt aðföng hækkað í verði og nauðsynlegt að selja meira til annarra landa. ,,Við erum búnar að lenda í allskonar málum á þessum tveimur árum en að sama skapi hefur hrunið líka sína kosti,“ segir Ásta. „Íslendingar eyða peningum sínum hérlendis og kaupa frekar íslenskt. Þar af leiðandi hefur salan vaxið jafnt og þétt og fyrirtækið dafnað vel á þessum tíma. Núna stefnum við að því að ná fótfestu á alþjóðlegum markaði.“ Gera allt sjálfar Til þessa hafa þær Ásta og Heba fjármagnað reksturinn að mestu með veltu félagsins og eiginfé. Þær hafa ekki hlotið styrki úr þróunarsjóðum til þessa en eru að undirbúa umsóknir. Lítið sem ekkert er fengið að láni. Þá hafa þær einnig sjálfar sinnt flestum verkum innan fyr- irtækis. „Það tekur ef til vill mest á í svona rekstri að verða að geta gert allt,“ segir Ásta. Hún er hönnuður, ljósmyndari, rekstrarstjóri, fjármálastjóri og sinnir markaðs- málum. Heba hefur sinnt hönnun, framleiðslu- málum og sölu og auk þess starfar hönnuður og starfsfólk í verslun E-label. „Annars vinnum við þetta allt mjög mikið saman og hjálp- umst að við hin ýmsu verkefni,“ segir Ásta. ,,Þetta er í raun og veru mörg fyrirtæki í einu og við erum alltaf að skipta um hlut- verk,“ segir Ásta Kristjáns- dóttir. Ásta Kristjánsdóttir hjá hönnunarfyrirtækinu E-label: „Við leggjum líka áherslu á að ekki eru allar konur eins vaxnar og þær þurfa ekki endilega að vera ungar til að vera glæsilegar. Lífinu er ekki lokið um sextugt.“ einfAlt og þægilegt Heba Hallgrímsdóttir og Ásta Kristjánsdóttir hjá E-label.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.