Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 17

Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 17
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 17 Talaris Research Institute og The Swedish Medical Center í Seattle og birt var fyrir tveimur árum, sýni að af þeim pörum sem sóttu námskeiðið upplifðu 22,5% (í stað 67%) að gæði sambandsins minnk- uðu eftir fæðingu barns. „Önnur jákvæð niðurstaða er að bæði feður og mæður sem sóttu námskeiðið voru næmari fyrir þörfum barnanna og brugðust betur við þeim. Þetta átti sérstaklega við um feð- urna. Börnin sýndu einnig merki um minni streitu og þau brostu meira. Það sem er sérstakt við þetta námskeið og fellur að markmiði evrópsku ráðherranefndarinnar er að það þjónar karlmönnum. Feðrum. Meðvitað og ómeðvitað er pabbanum oft ýtt frá.“ Gates-hjónin búa í Seattle og nýtur The Swedish Medical Center þess. Að auki er Bill and Melinda Gates Foundation bakhjarl Talaris Research Institute. „Kathleen Hebert, fyrrverandi varafor- seti Microsoft Corporation, er forstjóri Talaris. Þau fjórtán ár sem hún starfaði hjá Microsoft var hún einn af lykilstarfs- mönnum í þróun og markaðssetningu fjölda vara, þar á meðal Microsoft Office. Terry Meersman er stjórnarformaður Talaris. Hann var fyrsti forstjóri Gates Foundation og samdi starfsreglur sjóðsins. Hann var áður framkvæmdastjóri hjá Save The Children og stjórnaði verkefnum meðal annars í Asíu, Ástralíu og Evrópu. Talarisstofnunin vinnur að útbreiðslu fræðsluúrræða byggðum á rannsóknum og prófunum fyrir foreldra 0–5 ára barna. Atvinnulífið hér hefur átt mikilvægan þátt í innleiðingu námskeiðsins. Forstjóri Microsoft hér á landi átti auðvelt með að feta í fótspor frumkvöðulsins Gates og styrkti verkefnið. Þegar fólk í atvinnulífinu áttar sig á því að um 20.000 einstaklingar, á hverjum tíma, eru í slæmu tilfinningalegu jafnvægi, jafnvel í uppnámi, vegna barn- eigna síðastliðin þrjú ár áttar það sig á ávinningnum af verkefninu fyrir atvinnulífið. Þetta er unga fólkið sem er sá hópur sem gerðar eru hvað mestar kröfur til í end- urreisninni.“ Að rækta parsambandið Að sögn Ólafs segja fræðimenn í Banda- ríkjunum að mæður séu samhæfðar unga- barninu 30% af tímanum – þær skilja þarfir þess 30% af tímanum. „Í Evrópu segja þeir að í 60% tilfella séu samskiptin ekki skaðleg. Við sem þjóð þurfum að leita leiða til að vera sátt um eitthvað á þessum umrótartímum. Hér liggur máttur okkar og það mundi skila okkur miklum fram- förum að mynda sátt um að þetta sé óvið- unandi. Heilbrigður þroski barnsins á sér stað í því að foreldrið skilur það og svarar þörfum þess. Á námskeiðinu, sem er 12 klukkutímar, er hægt að gjörbreyta þessu. Ástæðan fyrir því að mæður eru aðeins samhæfðar barninu 30% tímans er oft að þær eru stressaðar og hafa ekki fengið fræðslu. Ríkasta uppsprettan fyrir stuðning og að líða vel er parsamband. Þá minnkar stressið. Hluti af því sem fólk þarf að gera til að verða góðir foreldrar er að eiga tíma til að rækta sjálft sig og parsambandið. Góðir foreldrar eru ekki alltaf með barnið sitt. Það getur haft áhrif á barnið ef foreldrunum líður ekki vel en þroskagrunnur barnsins tengist jafnvægi parsins.“ Á meðal þess sem þátttakendur á námskeiðinu hafa sagt er: „Okkar líðan endurspeglast í barninu.“ „Okkur fannst þetta efni mjög áhugavert og hjálpaði okkur að læra hvað tilfinningar skipta miklu máli í uppeldi.“ „Við áttuðum okkur á því að við leikum of mikið hvort í sínu lagi við dóttur okkar.“ u p p E L d I Ólafur Grétar Gunnarsson. „Eins og við vitum er mikilvægt að styðja börnin okkar á tímum enduruppbyggingar samfélagsins. Það er mikilvægt að vita hvar máttur okkar liggur og hvernig við getum þroskast sem samfélag.“

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.