Frjáls verslun - 01.07.2009, Qupperneq 23
fyrir ári síðan tók undirritaður saman lista yfir 100 áhugaverð sprotafyrirtæki á Íslandi fyrir Frjálsa verslun. Listinn, sem var byggður á gagnagrunni Samtaka iðnaðarins og tilnefningum
fjárfesta og ráðgjafa, vakti mikla athygli enda einskorðaðist umræðan
um sprotafyrirtæki á Íslandi oftast um Össur, Marel og CCP. Þessi
fyrirtæki hafa verið góðir fánaberar nýsköpunar og vaxtarfyrirtækja
á Íslandi en geta varla talist til sprotafyrirtækja lengur. Þau eru vaxin
upp úr þeim fasa.
Listinn yfir 100 áhugaverð sprotafyrirtæki sýndi hins vegar að það
er miklum mun meira að gerast í grasrót íslenska fyrirtækjamarkaðar-
ins en flestir gera sér grein fyrir. Fjöldi fólks vinnur að því að byggja
upp áhugaverð fyrirtæki. Íslendingar hafa mörg þau einkenni sem
oft eru tengd frumkvöðlum í fræðilegri umræðu, s.s. mikla bjartsýni,
áræði, þrautseigju og frumkvæði. Þó er ekki þar með sagt að íslend-
ingar séu betri en aðrir í að búa til fyrirtæki þar sem tilgátur um mikil-
vægi menningar og eiginleika hafa átt undir högg að sækja. Líklegra
er að það séu aðstæður sem ráða meiru um fjölda nýrra fyrirtækja og
árangur en eiginleikar. Þetta er þó allt mjög umdeilt. Engu að síður er
athyglisvert hversu vel Íslendingar hafa staðið sig sem frumkvöðlar.
Einkarekstur er í raun tiltölulega nýlegur á Íslandi í sögulegu sam-
hengi og til dæmis er íslenska kauphöllin einungis unglingur ennþá.
Þeir Danir – og þeir eru til – sem hafa dáðst að Íslendingum á und-
anförnum árum hafa bent á að kannski séu Íslendingar of miklir
frumkvöðlar þar sem óbilandi trúin á eigið ágæti og glórulaus bjart-
sýni hafi hlaupið með marga í gönur. Mistökin snerust um að skilja
ekki aðstæður og ofmeta þann árangur sem náðst hafði. Allar líkur
eru þó á að þjóðin verði fljót til að snúa við blaðinu vegna þess að
margir eiginleikar stereótýpu frumkvöðulsins eru guðs gjöf í kreppu;
úrræði, ósérhlífni og sjálfsbjargarviðleitni. Fleiri og betri fyrirtæki en
við höfum séð áður eiga eftir að verða til á Íslandi á næstu árum, um
leið og aðstæður leyfa.
Í ár hefur verið tekinn saman listi yfir 200 áhugaverð sprotafyr-
irtæki á Íslandi. Ákveðið var að tvöfalda listann frá því í fyrra til að
sýna hversu mikið er að gerast í sprotabransanum á Íslandi. Hægt
hefði verið að birta lista yfir enn fleiri fyrirtæki en það bíður næsta árs.
Þessi samantekt er að mestu gerð
til þess að vekja athygli á mik-
ilvægi nýrra og áhugaverða
fyrirtækja. Grunn-
urinn að þessum
lista eru fyrirtæki
sem voru í úrtaki í einni allra fyrstu rannsókn á sprotafyrirtækjum á
Íslandi (sem greint er frá í greininni „Sprettur á Íslandi“).
Það sem vekur athygli þegar sprotaumhverfið er skoðað er hve
áhugaverð fyrirtæki eru að spretta upp í ólíkum geirum. Fjárfestingar
í tölvuleikjafyrirtækjunum Gogogic og Ice on the Rocks, tónlist-
arsamfélaginu Gogoyoko, viðskiptaþjónustufyrirtækjunum Trackwell
og AGR og tískuvörufyrirtækinu Andersen & Lauth styðja þetta.
Leikjafyrirtæki hafa vakið sérstaklega mikla athygli á undanförnu og
vekur það spurningar um hvort gamla þriðja stoðin – upplýsinga-
tæknigeirinn eða jafnvel leikjatæknigeirinn – sem talað var um á
tíunda áratugnum vaxi nú að afli og muni leika lykilhlutverk í framtíð
Íslands. Fjöldinn allur af athyglisverðum fyrirtækjum sem tengjast
heilsu og upplifunariðnaðinum sprettur nú einnig upp sem aldrei fyrr
og ferðaþjónustan hefur fengið óvæntan stuðning með lægra gengi
krónunnar. Miðað við fjölda Íslendinga með fésbókarsíðu mætti
líka ætla að næsta kortlagning þjóðarinnar verði félagsleg en ekki
erfðafræðileg. Aðalatriðið er að það er fullt af tækifærum á Íslandi sem
verður að reyna að þróa í arðsaman rekstur á komandi árum.
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 23
áhugaverð
sprotafyrirtæki200
texti: dr. eyþór ívar jónsson