Frjáls verslun - 01.07.2009, Side 28
28 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
forsíðu grein SPrOtaFYrIrtÆkI
oft eiga lífvænlegir sprotar upphaf sitt í tilraun til að leysa vandamál í hefðbundnum atvinnugreinum. Þannig er það með TrackWell. Fyrsta verkefni fyrirtækisins var
hin sjálfvirka tilkynningaskylda fyrir íslensk skip. Núna nýtist
hugmyndin bæði á sjó og landi við stýringu á forðum fyrirtækja.
Upphaf TrackWell má rekja allt til ársins 1996 og raunar
enn lengra þar sem stofnendurnir höfðu unnið saman í nokkur
ár fyrir þann tíma. Fyrsta verkefnið var að þróa kerfi fyrir
sjálfvirka tilkynningaskyldu íslenskra skipa og í framhaldi af því
fiskveiðieftirlitskerfi fyrir Landhelgisgæsluna og Vaktstöð siglinga.
„Fyrstu árin gekk starfsemi TrackWell út á að selja öðrum
lausnir sem þeir nýttu í sinni starfsemi,“ segir Jón Ingi Björnsson,
framkvæmdastjóri TrackWell. „Við unnum náið með Símanum
hér heima og vorum í samstarfi við tæknifyrirtæki eins og Nokia,
Gemplus og Ericsson. Við seldum þeim vinnu og þekkingu en fyrir
rúmum fimm árum var ákveðið að pakka þekkingunni inn sem
vöru og selja undir vörumerki fyrirtækisins.“
Forðastýring og ferilvöktun
Allt lýtur þetta að forðastýringu og ferilvöktun. TrackWell býður
upp á þrjú meginkerfi, Tímon fyrir starfsmenn, Flota fyrir farartæki
og SeaData fyrir fiskiskip. Í öllum lausnum er fjarskiptasamband
nýtt til að taka við skráningum og fylgjast sjálfvirkt með því hver er
að gera hvað, hvar og á hvaða tíma.
Jón Ingi segir að hugtakið „forðastýring“ lúti að verklagi til þess
að stýra mannafla og tækjakosti fyrirtækja á hagkvæman hátt. Það er
þýðing á enska heitinu Mobile Resource Management – MRM.
„Markmið okkar er að bjóða upp á heildstæðar lausnir á
afmörkuðum sviðum,“ segir Jón Ingi. „Við höfum þegar langa
reynslu af forðastýringu fyrir fiskveiðiskip og sú lausn hefur vakið
áhuga í nágrannalöndunum, m.a. í Færeyjum og Noregi, og höfum
við töluverðar væntingar til þess að SeaData nái útbreiðslu þar.“
TrackWell hefur einnig sett stefnuna á Bandaríkin og er að
markaðssetja sérhæfða lausn fyrir flutningafyrirtæki. Stofnað hefur
verið dótturfyrirtæki í Houston í Texas og kerfið hefur verið sett
upp í rúmlega 300 trukkum. Markmiðið er að í lok næsta árs verði
fleiri farartæki í þjónustu vestra en hér heima.
Núna vinna um 30 manns hjá fyrirtækinu,
þar af fjórir í Bandaríkjunum. TrackWell er
eitt fjölmargra sprotafyrirtækja sem stóðu utan
fjármála- og eignabólunnar á Íslandi árin fyrir
hrunið síðastliðið haust. Fyrirtækið hefur alltaf
lifað af eigin aflafé og hlutafé auk styrkja frá
opinberum þróunarsjóðum. Þar af leiðandi er
skuldsetning fyrirtækisins nær engin.
Stöðugleiki er mikilvægur
Gengisfall krónunnar hefur styrkt útflutninginn – tekjurnar vaxa
í krónum talið en á móti veldur það vanda við markaðssetningu
erlendis. Markaðskostnað erlendis þarf að borga með íslenskum
tekjum áður en erlendar tekjur fara að berast.
„Auðvitað er mikilvægt að hafa stöðugt ytra umhverfi, sem ég
tel að myndi nást með aðild að Evrópusambandinu,“ segir Jón
Ingi. „Það er nauðsyn að hafa stöðugan gjaldmiðil og geta gert
áætlanir án þess að forsendur breytist frá degi til dags.“
Ráð Jóns Inga til þeirra sem hafa hugmyndir og vilja gefa
þeim sprotum líf er að gera áætlun um allt ferlið áður en lagt er
í kostnaðarsama þróunar- og markaðsvinnu.
„Það er mikilvægt að skoða alla leiðina strax,“ segir Jón Ingi.
„Á einhverjum tímapunkti þarf hugmyndin að skila tekjum.
Frumkvöðlar þurfa að vita hvaða vanda þeir ætla að leysa,
hvernig og fyrir hvern. Þeir þurfa að finna fjármagn og vita af
hverju væntanlegir viðskiptavinir muni kaupi af þeim en ekki af
keppinautunum. Og ekki gleyma að þetta er langhlaup sem krefst
mikillar þolinmæði.“
Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri trackWell:
heimamarkaður fyrst
Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri hjá TrackWell.
„auðvitað er mikilvægt
að hafa stöðugt ytra
umhverfi, sem ég tel að
myndi nást með aðild
að evrópusambandinu.“
viðtöl: gísli kristjánsson