Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 30

Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9 forsíðu grein SPrOtaFYrIrtÆkI hvað er sagt um mig á blogginu? Er öllum illa við mig eða mitt fyrirtæki eða eru þar ljósir punktar? Og hvað segja aðrir fjölmiðlar? Til að fá svör við þessu er tvennt til ráða: Að lesa allt bloggið og allar greinar sjálfur. Eða að láta hið gervigreinda Clara gera það fyrir þig meðan þú bloggar eitthvað ljótt um náungann. Clara er barn hóps ungs fólks, sem á það sameiginlegt að vera nýskriðið úr háskóla og hefur áhuga á tölvum og þá sérstaklega gervigreind. Hugmyndin er gömul og margreynd. Það er ekkert nýtt við að fyrirtæki eða jafnvel einstaklingar láti vaka yfir umfjöllun fjölmiðla fyrir sig. Lengi hefur þetta verið gert með skærum, lími og ljósritunarvél. Greinar voru klipptar út blöðunum, þær límdar á arkir og ljósritaðar. Þetta var handavinna sem gekk vel áður en tölvur urðu miðlægar í allri fjölmiðlun. Nú er öldin önnur. Einungis lítið brot af því sem sagt er opinberlega birtist í einhverju áþreifanlegu formi sem hægt er að klippa, líma og ljósrita. Þarna kemur Clara til skjalanna. Clara er ekki kvenmannsnafn í þessu samhengi heldur skammstöfun á enska heitinu „Collective Large-scale Affect Research and Analysis“ og beygist ekki. Fylgir umræðunni á Netinu „Öllum er ljóst að umræða, til dæmis á blogginu, hefur mikil áhrif,“ segir Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, verkfræðingur og einn foreldra Clara. „Bloggið er þó ekkert úrtak sem sýnir almennar skoðanir fólks, en tónninn í blogginu hefur mikil áhrif og skjót. Þess vegna er áhugi á að fylgjast með því sem sagt er.“ Gunnar bendir á að ef óánægður neytandi segir kunningjum sínum frá slæmri reynslu af fyrirtæki berst sagan til fárra manna og dreifist hægt. Fari sama saga á flot á Netinu er hún komin til ótölulegs fjölda fólks á skömmum tíma. Það er líka vitað að reynslusögur hafa miklu meiri áhrif en auglýsingar. Þeir hjá Clara hafa einbeitt sér að gerð forrits sem nýtir gervigreind við að greina umræðu í öllum fjölmiðlum Netsins. Þetta hefur í fyrstu verið hugsað fyrir fyrirtæki. Til þessa hafa þeir unnið með þremur fyrirtækjum að umræðueftirlitinu. Nú er einnig unnið að lausn sem einstaklingar, til dæmis stjórnmálamenn, geta nýtt sér. Enn ráða tölvur ekki við að greina tilfinningar í umræðunni en með gervigreind er hægt að bera kennsl á hvaða fyrirtæki eru nefnd og hvaða fólk. Þeir hjá Clara segja að hugbúnaðurinn greini á milli þess sem sagt er um hana sjálfa og einhverjar Klörur úti í bæ. Gunnar segir að Clara sé einskonar þversnið af bakgrunni foreldra sinna. Þarna koma verkfræðingar, sálfræðingar, tölvufræðingar, markaðsmenn og fyrrum starfsmenn fjármálafyrirtækja við sögu. Styrkir hafa komið frá Rannís og samvinna hefur verið við gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík. Þá hefur stuðningur Háskóla Íslands verið verulegur. Clara á leið út í heim Núna er fyrirtækið komið að þeim mörkum að fara að selja vöru sína. „Við höfum kynnt hugmyndina fyrir nokkrum fyrirtækjum og erum á því stigi að fara með kerfið á markað,“ segir Kári Þór Rúnarsson, fyrrum framkvæmdastjóri markaðsmála hjá 66° Norður. Hann sinnir nú viðskiptaþróun hjá Clara. Á síðasta ári var farið með Clara í alþjóðlega frumkvöðlakeppni kennda við Ventura Cup í Kaupmannahöfn. Þar vann hún til verðlauna og þeir hjá Clara segjast hafa komist í góð sambönd við aðra nýsköpunarmenn. Breyttar aðstæður í fjármálaheimi Íslands hafa haft áhrifin á þróunarvinnuna hjá Clara. Núna starfa þar fjórir fyrrverandi bankamenn. Fyrir hrun gátu veikburða sprotar ekki keppt við bankana um starfsfólk. Núna er hæft fólk á lausu. „Það er líka miklu skemmtilegra að vinna við þetta en í banka,“ segir Kári Þór. Auk þess er nú hægt að fá góðar notaðar tölvur fyrir lítið og einnig húsgögn eftir bankahrunið. Ráðið sem þeir félagar gefa öðru sprotafólki, nú þegar Clara er að verða tveggja ára, er að tala um hugmyndina við aðra og leita ráða hjá öðrum sem hafa reynslu af að koma sprota á legg. „Bloggið er ekkert úrtak sem sýnir almennar skoðanir fólks, en tónninn í blogginu hefur mikil áhrif og skjót.“ gunnar hólmsteinn og kári Þór hjá umræðueftirlitinu Clara: Clara les bloggið fyrir þig Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson og Kári Þór Rúnarsson hjá Clara.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.